Ferill 670. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1477 — 670. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um hringveginn um Austfirði.
Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ráðist verði í framkvæmdir á hringveginum um Austfirði, nánar tiltekið á vegarköflunum U3–U4 (Fáskrúðsfjarðarbotn–Vík) og U5 (Vík– Stöðvarfjörður), fyrr en segir í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040? Ef svo er, hvernig? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?
Í samgönguáætlun 2026–2040, sem samþykkt var á Alþingi 12. júní 2026, er verkefninu Hringvegur um Suðurfirði skipt í fjóra áfanga. Gert er ráð fyrir að unnið verði stöðugt í framkvæmdum á veginum frá árinu 2027 og þar til áætlað er að framkvæmdir klárist árið 2037, að undanskildu árinu 2029.
Forgangsröðun verkefna gerir ráð fyrir að framkvæmdum við Reyðarfjarðarbotn verði sinnt fyrst á árunum 2027–2028, en í kjölfarið verði ráðist í framkvæmdir á kaflanum Stöðvarfjörður–Kambaskriður á árunum 2030–2031. Samhliða undirbúningi og framkvæmdum á kaflanum Stöðvarfjörður–Kambaskriður verður metið hvaða ráðstafanir eru raunhæfar til að efla umferðaröryggi á Kambanesskriðum.
Í framhaldi af því er áætlað að fara í verkefnið Fáskrúðsfjarðarbotn–Vík á árunum 2032– 2035 og að lokum í kaflann frá Vík að Stöðvarfirði á árunum 2036–2037.
Skapist frekara svigrúm innan áætlunarinnar mun það koma til skoðunar hvort flýta megi seinni tveimur áföngum verksins.