Ferill 671. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1478  —  671. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um umferðarstjórn í Hvalfjarðargöngum vegna sólmyrkva.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig verður umferðarstjórn í Hvalfjarðargöngum háttað að því er varðar umferðaröryggi og flutningsgetu í aðdraganda sólmyrkva 12. ágúst 2026 og að honum loknum?

    Áætlanir um fyrirkomulag umferðarstýringar í tengslum við almyrkvann liggja fyrir í meginatriðum en endanleg útfærsla á þvi með hvaða hætti umferð verður stýrt um Hvalfjarðargöng liggur ekki fyrir á þessari stundu.
    Unnið er að því að meta hugsanlega umferð og greina afleiðingar af þeim sviðsmyndum sem geta komið upp í tengslum við atburðinn. Þegar það liggur fyrir verður sett fram hvernig og með hvaða hætti umferð verður stýrt um Hvalfjarðargöng sem og aðra vegi umræddan dag.
    Ljóst er að almenningur verður upplýstur um öll áform sem ákveðin verða um umferðartakmarkanir um Hvalfjarðargöng sem og aðra vegi. Nú þegar er byrjað að upplýsa um það sem ákveðið hefur verið á slóðinni: 1




1     www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/vidburdir/almyrkvi-a-solu