Ferill 707. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1479 — 707. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um útgáfu frímerkja.
1. Stendur til að óska eftir heimild Byggðastofnunar til að gefa út frímerki í tilefni af almyrkva á sólu sem sjást mun hér á landi 12. ágúst nk.?
Samkvæmt 14. gr. laga um póstþjónustu, nr. 98/2019, veitir Byggðastofnun póstrekendum heimild til útgáfu frímerkja. Byggðastofnun er einnig heimilt að kveða á um að alþjónustuveitandi skuli gefa út frímerki.
Kvöð um útgáfu frímerkja féll niður árið 2020 og þá hætti Íslandspóstur útgáfu frímerkja. Eftir það hefur fyrirtækið aðeins gefið út frímerki einu sinni, árið 2023, til að minnast þess að 150 ár voru liðin frá því að fyrsta frímerkið var gefið út hér á landi og var aflað leyfis Byggðastofnunar fyrir þeirri útgáfu.
Innviðaráðuneytið hefur aflað upplýsinga frá Byggðastofnun og Íslandspósti um hugsanleg áform um útgáfu frímerkja vegna almyrkva á sólu í ágúst 2026. Ekki er vitað til þess að áform séu uppi um útgáfu frímerkis.
Innviðaráðherra hyggst ekki hafa frumkvæði að útgáfu slíks frímerkis.
2. Stendur til að óska eftir heimild Byggðastofnunar til að gefa út frímerki í tilefni af því að í júlí 2027 verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu svokallaða?
Vísað er til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar að breyttu breytanda.