Ferill 665. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1481 — 665. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Heiðbrá Ólafsdóttur um verðlagsgrundvöll og rekstrartap kúabænda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra bæta rekstrartap kúabænda með vísan í nýjan verðlagsgrundvöll kúabúa? Ef svo er, með hvaða aðgerðum?
Verðlagsnefnd búvara ákvarðar afurðaverð mjólkur til bænda og heildsöluverð mjólkur og helstu mjólkurvara. Við verðlagningu afurðaverðs mjólkur styðst verðlagsnefnd við verðlagsgrundvöll kúabús sem er reiknilíkan sem líkir eftir rekstri kúabús af hagkvæmri stærð. Megintilgangur reiknilíkana nefndarinnar er að gera það kleift að fylgjast með þróun framleiðslukostnaðar mjólkur.
Í 1. mgr. 8. gr. búvörulaga, nr. 99/1993, er kveðið á um verðlagningu lágmarksverðs mjólkur (afurðaverð), þar sem „áætlað vinnuframlag [bænda] skili endurgjaldi hliðstæðu og gerist hjá starfsstéttum sem bera sambærilega ábyrgð á rekstri og mæta hliðstæðum kröfum um viðveru og færni“.
Síðla árs 2024 var nýr verðlagsgrundvöllur samþykktur og hefur hann verið notaður í störfum nefndarinnar síðan þá. Nýr verðlagsgrundvöllur tók við af verðlagsgrundvelli sem hafði verið nær óbreyttur frá síðustu aldamótum og var orðinn úreltur sé tekið mið af búrekstrarháttum í dag. Hinn nýi verðlagsgrundvöllur endurspeglar betur rekstur kúabúa í dag, t.d. með hliðsjón af bústærð og þróun vél- og tæknibúnaðar í fjósum. Verðlagsgrundvöllur verðlagsnefndar er hins vegar reiknilíkan og er ætlað að endurspegla hlutfall kostnaðarliða og sýna þróun kostnaðar frá einum tíma til annars.
Bent hefur verið á töluverðan mismun milli annars vegar lágmarksverðs mjólkur og hins vegar niðurstöðu verðlagsgrundvallar kúabús um framleiðslukostnað mjólkur. Málið hefur verið til umræðu innan verðlagsnefndar og hjá atvinnuvegaráðuneytinu. Sérstakur umræðufundur verðlagsnefndar um málið fór fram þann 4. maí 2026. Þar kom m.a. í ljós að lágmarksverð mjólkur hafi nokkurn veginn fylgt takti hlutfallslegra breytinga verðlagsgrundvallar en að stuðningur á hvern lítra hafi dregist saman, litið yfir tímabilið frá aldamótum. Í því sambandi verður þó að hafa í huga að mikil hagræðing og framleiðniaukning hefur átt sér stað. Verðlagsnefnd komst að þeirri niðurstöðu að of einfalt væri að horfa á mismun reiknaðrar niðurstöðu verðlagsgrundvallar og lágmarksverðs mjólkur, enda fleiri þættir sem hafa áhrif og því þyrfti að taka málið fyrir á breiðari vettvangi og æskilegt að stjórnvöld kæmu að málinu. Málið liti þannig ekki síður að stuðningsumhverfi greinarinnar og umgjörð.
Nýverið var undirritað samkomulag af stjórnvöldum og Bændasamtökum Íslands um framlengingu búvörusamninga um eitt ár. Vinna við mótun stuðnings- og starfsumhverfis landbúnaðar eftir að framlengdum gildistíma búvörusamninga lýkur í árslok 2027 er hafin. Málefni kúabænda og verðlagning mjólkur er engin undantekning í þeirri vinnu. Stjórnvöld og Bændasamtök Íslands hafa einnig gert samkomulag um viðræðuáætlun vegna endurskoðunar stuðningsumhverfis landbúnaðar og er þar til að mynda gert ráð fyrir sérstakri umræðu um málefni nautgriparæktar, framtíð framleiðslustýringar, greiðslumarks og stuðnings við mjólkur- og nautakjötsframleiðslu. Ákvörðun um breytingar liggur því ekki fyrir en málið verður skoðað í tengslum við áðurnefnda vinnu.