Ferill 664. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1482 — 664. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Heiðbrá Ólafsdóttur um blóðmerahald.
1. Hvernig sér ráðherra fyrir sér að framkvæmd skilyrts leyfis MAST fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum geti stuðlað að stöðugleika í starfsemi þeirra bænda sem starfa innan greinarinnar?
Starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum er veitt á grundvelli laga nr. 55/2013, um velferð dýra og reglugerðar nr. 460/2017, um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að takmörkun á notkun dýra í vísinda- og menntunarskyni, stuðla að velferð og virðingu fyrir dýrum sem notuð eru í slíkum tilgangi og að tryggja að dýr sem notuð eru í slíkum tilgangi séu ekki látin sæta óþarfa álagi. Leyfisveiting á grundvelli reglugerðarinnar tekur mið af þessu markmiði. Skilyrði útgefins leyfis eru skýr og fyrirsjáanleg og stuðla þannig að stöðugum starfsskilyrðum þeirra sem starfa innan greinarinnar. Framkvæmd leyfisins er því ekki til þess fallin að raska stöðugleika starfseminnar.
2. Eru þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á eftirliti og regluverki í kringum blóðmerahald nægilegar til að tryggja traust á starfsemi blóðmerabúa og skapa skýran ramma um greinina til framtíðar?
Breytingarnar sem gerðar hafa verið á regluverki og eftirliti með blóðmerahaldi hafa skýrt ramma starfseminnar verulega. Nú liggur skýrar fyrir hvaða kröfur eru gerðar til starfseminnar og á hvaða forsendum umsóknir eru metnar. Matvælastofnun hefur jafnframt sett skýr skilyrði um notkun hormóna sem unnin eru úr blóði fylfullra hryssna, takmarkað fjölda dýra sem heimilt er að nýta í starfseminni og gert kröfu um ráðstafanir til að lágmarka mögulegan skaða fyrir dýrin.
Eftirlit með starfseminni hefur lengi verið umfangsmikið og hefur verið aukið enn frekar á undanförnum árum. Nú byggist það jafnframt á regluverki um dýr sem notuð eru í vísindaskyni sem felur í sér skýrari kröfur til birgja, ræktenda og annarra sem koma að starfseminni. Þá eru gerðar auknar kröfur um hæfni, þjálfun og aðgang að sérfræðilegri ráðgjöf með það að markmiði að tryggja öryggi og velferð dýranna.
Í nýju starfsleyfi eru sett aukin skilyrði sem fela m.a. í sér að leyfishafi skuli fylgjast skipulega með blóðhag hverrar hryssu í blóðtöku á meðan á blóðtöku stendur. Skylt er að veita hryssum hvíld frá blóðtöku ef merki um blóðleysi koma fram. Skilyrðinu er ætlað að tryggja enn betri velferð og lágmarka mögulegan skaða af blóðtöku.
Þessar breytingar skapa skýrari ramma um greinina og styrkja forsendur fyrir trausti á starfseminni. Hvort þær reynist nægilegar til að tryggja traust til lengri tíma mun þó ráðast af framkvæmd þeirra og þeirri reynslu sem fæst af starfseminni undir hinu nýja regluverki.
3. Hefur ráðuneytið lagt mat á hvaða áhrif blóðmerahald hefur á atvinnu og tekjuöflun í dreifbýli?
Umrædd vinna hefur ekki farið fram á vegum ráðuneytisins.