Ferill 674. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1483  —  674. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um útflutningsverðmæti á frystri loðnu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvert var meðalverð útflutningsverðmæta á frystri loðnu á síðustu vertíð (kr./kg), árið 2025, á grundvelli tollskýrslna Skattsins?

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitaði til Skattsins um upplýsingar til að svara fyrirspurninni. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum er meðalverð útflutningsverðmæta árið 2025 á frystri loðnu 389 kr./kg. Nánara niðurbrot á tollskrárnúmer og þyngd í hverjum flokki er hægt að sjá í eftirfarandi töflu.

Tollskrárnúmer Nettóþyngd Samtals tollverð í krónum
03035901 8.257.057 3.211.827.527
03035902 167.006 64.911.587
Samtals 8.424.063 3.276.739.114

    Rétt er að geta þess að tollakerfið tekur ekki sérstaklega til einstakra veiðivertíða og því miðast tölurnar í útflutningi við tollafgreiðsludag.