Ferill 691. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1485 — 691. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skipun ráðuneytisstjóra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Á hverju byggist ný skipun ráðuneytisstjóra atvinnuvegaráðuneytisins án auglýsingar? Mun fyrrverandi ráðuneytisstjóri snúa aftur og ef svo er, hvenær? Var einhverjum vandkvæðum bundið að auglýsa stöðuna?
Kolbeinn Árnason var fluttur úr embætti skrifstofustjóra á skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu í embætti ráðuneytisstjóra á grundvelli heimildar í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands.
Ekki er ráðgert að fyrrverandi ráðuneytisstjóri snúi aftur í embættið.
Þegar framangreindar heimildir til flutnings embættismanna eru nýttar er ekki skylt að auglýsa embætti laust til umsóknar, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996.