Ferill 643. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1486 — 643. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um sérskóla og sérdeildir.
1. Hversu há framlög hefur Reykjavíkurborg fengið ár hvert undanfarin fimm ár frá ríkinu á grundvelli samnings um rekstur sérskóla og sérdeilda á grunnskólastigi?
Reykjavíkurborg annast rekstur þeirra sérskóla/sérdeilda sem áður voru rekin af ríkinu. Sveitarfélagið fær greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á grundvelli samnings milli Reykjavíkurborgar, Jöfnunarsjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt upplýsingum frá innviðaráðuneyti hefur Reykjavíkurborg fengið eftirfarandi framlög á grundvelli samningsins undanfarin fimm ár:
| Ár | Upphæð (kr.) |
| 2021 | 1.555.235.022 |
| 2022 | 1.755.293.269 |
| 2023 | 1.955.661.488 |
| 2024 | 2.107.525.673 |
| 2025 | 2.212.875.000 |
2. Hver hefur verið árlegur rekstrarkostnaður sérskóla og sérdeilda undanfarin fimm ár sem fá framlög frá ríkinu á grundvelli þessa samnings?
Reykjavík eina sveitarfélagið sem fær greiðslur á grundvelli samningsins. Mennta- og barnamálaráðuneyti aflaði því upplýsinga frá Reykjavíkurborg um rekstrarkostnað sveitarfélagsins vegna sérskóla og sérdeilda.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg rekur sveitarfélagið sjálft tvo sérskóla, Klettaskóla og Brúarskóla og tvenns konar sérdeildir almennra grunnskóla, þ.e. einhverfudeildir og táknmálsdeildir. Sveitarfélagið nýtir jafnframt Arnarskóla sem er sjálfstætt starfandi sérskóli. Í eftirfarandi töflu koma fram árlegar fjárhæðir Reykjavíkurborgar vegna hvers úrræðis undanfarin fimm ár, í millj. kr. á verðlagi hvers árs. Fjárhæðirnar taka mið af þeim kostnaði og tekjum sem tengjast viðkomandi úrræði.
| 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | |
| Klettaskóli 1 | 1.163 | 1.263 | 1.373 | 1.468 | 1.702 |
| Brúarskóli | 506 | 514 | 588 | 540 | 588 |
| Arnarskóli | 155 | 224 | 260 | 307 | 342 |
| Sérdeildir, einhverfudeildir | 400 | 424 | 465 | 506 | 561 |
| Sérdeildir, táknmálsdeildir | 137 | 145 | 150 | 159 | 170 |
Í svari Reykjavíkurborgar kemur jafnframt fram að sveitarfélagið beri eftirfarandi kostnað, í millj. kr. á verðlagi hvers árs, af sértækum stuðningi í almennum grunnskólum og einkareknum grunnskólum:
| 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | |
| Sértækur stuðningur, alm. | 1.562 | 1.735 | 1.982 | 2.228 | 2.609 |
| Sértækur stuðningur, einkar. | 63 | 70 | 105 | 96 | 96 |
3. Hyggst ráðherra gera sambærilegan samning og að framan er nefndur við Akureyrarbæ um rekstur Hlíðarskóla?
Mennta- og barnamálaráðuneyti er ekki aðili að samningi Reykjavíkurborgar, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga um rekstur sérdeilda og sérskóla. Samningurinn er byggður á ákveðnum forsendum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en í því sambandi má benda á að framlög til Reykjavíkurborgar úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla lúta öðrum reglum en framlög til annarra sveitarfélaga, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 56/2025. Beiðni um samning við Akureyrarbæ er ekki til meðferðar í mennta- og barnamálaráðuneyti.
1 Það athugast að Klettaskóli þjónustar allt landið. Sá kostnaður sem birtist í töflu þessari tekur þó eingöngu til kostnaðar vegna barna með skráð lögheimili í Reykjavíkurborg.