Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1487  —  527. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um greiðsluþátttöku einstaklinga á hjúkrunarheimilum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver var heildargreiðsluþátttaka einstaklinga vegna dvalarkostnaðar á hjúkrunarheimilum síðastliðin 20 ár? Svar óskast sundurgreint eftir fjölda greiðenda á ári, upphæð á ári og heildarupphæð sem hlutfall af rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila ár hvert.

    Ekki er auðvelt að finna gögn 20 ár aftur í tímann, nema með mun meiri vinnu, m.a. vegna breytinga á ráðuneytum og kerfum. Eftirfarandi eru upplýsingar frá Sjúkratryggingum Íslands vegna áranna 2018–2025 og frá heilbrigðisstofnunum vegna áranna 2019–2025 varðandi greiðsluþátttöku og heildarrekstrarkostnað og 2022–2025 varðandi fjölda greiðenda.
    Upplýsingar frá Sjúkratryggingum Íslands vegna hjúkrunarheimila á samningi við stofnunina koma fram í eftirfarandi töflu (fjárhæðir eru í milljónum króna):

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.












    Upplýsingar frá heilbrigðisstofnunum og úr bókhaldskerfi ríkisins vegna hjúkrunarheimila sem rekin eru af heilbrigðisstofnunum koma fram í neðangreindum töflum (fjárhæðir eru í þúsundum króna):


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Greiðsluþátttaka hjá HVE fyrir árið 2019 er óvenju há og því líklegt að eitthvað fleira en greiðsluþátttaka íbúa hafi bókast á þann lið árið 2019.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


                             
    Ekki liggur fyrir svar við fjölda greiðenda öll árin frá 2019, en í eftirfarandi töflu kemur fram fjöldi greiðenda samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Athuga ber að margir íbúar greiða ekki fyrir þjónustu á hjúkrunarheimili vegna lágra tekna:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.