Ferill 672. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1488 — 672. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um lokanir í Hvalfjarðargöngum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu oft hefur Hvalfjarðargöngum verið lokað eða umferð um göngin stöðvuð tímabundið undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftir því hvort ástæða lokunar var viðhald, slys, forgangsakstur eða bilanir í ökutækjum.
Í meðfylgjandi töflum eru upplýsingar sem Vegagerðin hefur tiltækar varðandi lokanir Hvalfjarðarganga sundurliðaðar eftir árum. Erfitt er að gefa upp ástæðu hverrar lokunar fyrir sig en það er reynt eftir fremsta megni í eftirfarandi umfjöllun, í samræmi við efni fyrirspurnarinnar.
Alla jafna er reynt að sinna öllu viðhaldi og endurnýjun í Hvalfjarðargöngum án þess að koma þurfi til lokana. Þannig fer mest af viðhaldsvinnu fram á nóttunni þegar umferð er minnst. Á síðustu tveimur árum hefur umfang viðhaldsframkvæmda í jarðgöngunum verið meira en árin þar á undan. Búast má við að tími þar sem umferð er takmörkuð eða göngin lokuð fyrir umferð verði enn meiri 2026 vegna umfangsmikilla viðhaldsverkefna sem fóru fram á fyrri hluta árs. Fyrirséð er að á næstu árum verði þörf á fleiri viðhaldsverkefnum í göngunum sem munu kalla á lokanir.
Tafla 1 sýnir fjölda klukkustunda á ári undanfarin fimm ár þar sem umferð hefur verið takmörkuð, annaðhvort vegna fylgdaraksturs eða umferðarstýringar þar sem opið er inn í göngin í aðra áttina til skiptis eða alveg lokað:
Tafla 1.
| Takmörkuð umferð, klst. | |
| 2021 | 12 |
| 2022 | 7 |
| 2023 | 27 |
| 2024 | 47,5 |
| 2025 | 230,5 |
Lokanir vegna neyðaraksturs hafa aukist á undanförnum árum samhliða fjölgun íbúa og ferðamanna á landinu en aukin umferð almennt skýrir að miklu leyti aukningu í sjúkraflutningum á leiðinni. Gróft mat bendir til þess að slíkar lokanir eigi sér nú stað að meðaltali um þrisvar sinnum í viku. Þegar Vegagerðin tók við rekstri jarðganganna árið 2018 var eitt slíkt tilfelli í viku að jafnaði.
Slys eru sem betur fer fátíð í Hvalfjarðargöngum en þó nokkur óhöpp hafa orðið. Fjöldi tilfella þar sem þurft hefur að fjarlægja ökutæki úr göngunum af völdum bilana og óhappa er vel skráður og má sjá í töflu 2. Á fyrri hluta tímabilsins sem til skoðunar er var umferð um göngin minni og þá var mögulegt að vinna að því að fjarlægja ökutæki án þess að loka fyrir eða takmarka umferð. Í dag er umferð alltaf takmörkuð eða lokað fyrir hana þegar þarf að fjarlægja bifreið sem stöðvast hefur í göngunum. Það skýrir muninn á milli ára þegar kemur að fjölda klukkustunda þar sem umferð var takmörkuð.
Tafla 2.
| Fjöldi atvika | |
| 2022 | 77
|
| 2023 | 85 |
| 2024 | 80 |
| 2025 | 65 |
Af fyrrgreindum upplýsingum má ráða að lokanir vegna neyðaraksturs og viðhaldsvinnu hafa aukist á undanförnum árum. Meiri breytileiki er hins vegar á milli ára í fjölda lokana sem rekja má til bilaðra eða skemmdra ökutækja.