Ferill 715. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1489 — 715. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um geðheilbrigði barna og ungmenna.
1. Hyggst ráðherra leggja til aukið fjármagn með það að markmiði að stytta biðtíma barna eftir fullnaðargreiningu að lokinni frumgreiningu Geðheilsumiðstöðvar barna og Ráðgjafar- og greiningarstöðvar í ljósi þess að biðtími er 24–36 mánuðir?
Ráðherra hefur lagt áherslu á að styrkja geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna. Einnig hefur verið unnið að því að bæta aðgengi að greiningu og meðferð vegna ADHD og annarra taugaþroskaraskana. Ljóst er að langir biðtímar eftir frekara mati og greiningu eru verulegt áhyggjuefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra og kalla á markvissar aðgerðir.
Ráðist hefur verið í fjölmargar aðgerðir sem miða að því að styrkja geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna. Aðgerðirnar ná bæði til eflingar sérhæfðrar þjónustu, uppbyggingar grunnþjónustu og aukins stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra. Þar má m.a. nefna:
– Innleiðingu umfangsmikils umbreytingarverkefnis í geðheilbrigðisþjónustu barna um land allt sem byggist á samræmdari þjónustuferlum, bættri forgangsröðun og aukinni samþættingu þjónustu. Innleiðing verkefnisins er hafin hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVEST) og stefnt er að innleiðingu hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) á haustmánuðum 2026. Um er að ræða umfangsmikla kerfisbreytingu sem tekur tíma að innleiða að fullu, en ætla má að hún stuðli til lengri tíma að bættri þjónustu, styttri biðtímum og skilvirkari nýtingu sérfræðiþekkingar.
– Fjármögnun sérstaks átaksverkefnis á Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) sem miðar að því að ljúka ADHD-greiningum hjá börnum á aldrinum 15–18 ára sem hafa beðið eftir frekara mati hjá Geðheilsumiðstöð barna (GMB). Verkefnið hefur gengið vel og er komið vel á veg.
– Eflingu Geðheilsumiðstöðvar barna. Á síðustu misserum hefur farið fram ítarleg ferlagreining og eftirfylgni með þjónustu miðstöðvarinnar með það að markmiði að bæta verklag, nýtingu mannafla og afköst þjónustunnar. Gengið hefur vel að fylgja umbótaverkefnum eftir og hefur framleiðni í greiningum aukist. Jafnframt hefur GMB verið styrkt með viðbótarfjármagni. Vorið 2025 voru veittar 30 millj. kr. til tveggja stöðugilda sérfræðinga í greiningarteymi taugaþroskaraskana. Haustið 2025 var starfsemin síðan styrkt um 50 millj. kr. til viðbótar vegna ráðningar tveggja sérfræðilækna. Þeir styrkja bæði þjónustu innan miðstöðvarinnar og veita öðrum heilbrigðisstofnunum faglegan stuðning við uppbyggingu ADHD-þjónustu í nærumhverfi barna.
– Eflingu geðheilbrigðisþjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, þar sem m.a. þjónusta vegna ADHD hefur verið styrkt. Reynslan af verkefninu mun nýtast við áframhaldandi uppbyggingu sambærilegrar þjónustu annars staðar á landinu.
– Þróun nýrra samstarfsverkefna milli sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu þar sem lögð er aukin áhersla á snemmtækan stuðning í nærumhverfi barna, m.a. innan skólaþjónustu, heilsugæslu og annarrar grunnþjónustu. Verkefnin miða að því að börn og fjölskyldur fái fyrr viðeigandi stuðning og að sérhæfð þjónusta nýtist þeim sem mest þurfa á henni að halda. Fyrstu þróunarverkefni af þessu tagi verða innleidd hjá HVEST, HSN og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSU).
– Samstarf heilbrigðisráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis um eflingu þjónustu við einhverf börn og ungmenni, þar sem unnið er að því að bæta samfellu þjónustu og skýra verkskiptingu milli kerfa.
– Varanleg styrking geðheilbrigðisþjónustu í framhaldsskólum um 96 millj. kr. Markmið þess verkefnis er að bæta aðgengi ungmenna að heilbrigðisþjónustu, efla stuðning við geðheilsu ungmenna innan skólakerfisins og tryggja snemmtæka aðstoð.
– Ný reglugerð um skólaheilsugæslu sem styrkir hlutverk skólaheilsugæslunnar í snemmtækri íhlutun, bætir aðgengi barna að stuðningi og eykur samvinnu milli skóla og heilbrigðisþjónustu.
– Aukin áhersla á snemmtæka greiningu og viðbrögð vegna ofbeldis gegn börnum, m.a. með innleiðingu skimunar fyrir ofbeldi meðal grunnskólabarna og undirbúningi Bryndísarhlíðar, áfalla- og ofbeldismiðstöðvar Landspítala, sem áætlað er að taki til starfa í febrúar 2027.
– Innleiðing heilbrigðisþjónustu á neyðarvistun Stuðla, sem unnin er í nánu samstarfi við BUGL og Barna- og fjölskyldustofu og hefur það að markmiði að tryggja börnum í viðkvæmri stöðu betri heilbrigðisþjónustu.
Markmið þessara aðgerða er að byggja upp heildstæða geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni þar sem stuðningur er veittur fyrr og í nærumhverfi barnanna. Jafnframt er leitast við að tryggja að sérhæfð greiningar- og meðferðarúrræði nýtist þeim börnum sem þurfa á þeim að halda og að sérhæfð þjónusta geti í auknum mæli sinnt flóknari og sérhæfðari verkefnum.
Mikilvægt er að hafa í huga að lengd biðlista segir ekki ein og sér til um framleiðni eða afköst þjónustunnar. Eftirspurn eftir ADHD-greiningum og mati vegna taugaþroskaraskana hefur aukist verulega og víða hraðar en þjónustukerfið hefur náð að bregðast við. Sambærileg þróun hefur átt sér stað í nágrannaríkjum Íslands. Langir biðlistar endurspegla því ekki eingöngu skort á afköstum heldur einnig aukna aðsókn og þörf fyrir heildstæða endurskipulagningu þjónustunnar.
Áhersla stjórnvalda er að byggja upp þjónustukerfi sem getur mætt aukinni eftirspurn til lengri tíma. Því er samhliða tímabundnum aðgerðum unnið að umfangsmiklum kerfisbreytingum sem mun taka tíma að innleiða en er ætlað að stuðla að varanlegum umbótum í aðgengi barna og ungmenna að þjónustu. Í þeirri uppbyggingu er lögð aukin áhersla á að börn og fjölskyldur þeirra fái viðeigandi ráðgjöf og stuðning eins snemma og kostur er. Jafnframt er þjónustan þróuð í þá átt að stuðningur taki í auknum mæli mið af þörfum barnsins, fremur en því hvort formleg greining liggi fyrir. Greining er áfram mikilvæg þegar þörf er á sérhæfðri meðferð, svo sem lyfjameðferð, en hún á ekki að vera forsenda þess að börn og fjölskyldur þeirra fái snemmtækan stuðning og viðeigandi þjónustu.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir auknu aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi fyrir börn og ungmenni? Ef svo er, með hvaða hætti?
Ráðherra hefur lagt áherslu á að efla geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna um allt land, þar á meðal á Austurlandi, með það að markmiði að bæta aðgengi að þjónustu nær heimabyggð og draga úr þörf á ferðalögum til höfuðborgarsvæðisins.
Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur tekið þátt í umfangsmiklu umbreytingarverkefni í geðheilbrigðisþjónustu barna sem nú er unnið að í samstarfi við heilbrigðisstofnanir, Geðheilsumiðstöð barna og Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Stefnt er að því að hefja innleiðingu verkefnisins hjá HSA á haustmánuðum 2026.
Markmið verkefnisins er að byggja upp samræmda geðheilbrigðisþjónustu barna um land allt þar sem börn og fjölskyldur þeirra fá viðeigandi stuðning fyrr og í nærumhverfi sínu. Jafnframt er lögð áhersla á að efla lágþröskuldaþjónustu, bæta samfellu í þjónustu og tryggja að sérhæfð úrræði nýtist þeim börnum sem mest þurfa á þeim að halda.
Ljóst er að landsbyggðin stendur frammi fyrir sérstökum áskorunum þegar kemur að aðgengi að sérfræðimenntuðu starfsfólki og þjónustu. Til að mæta þeim hefur verið unnið að því að efla miðlæga þjónustu sem er aðgengileg börnum og fjölskyldum um allt land, m.a. með auknu aðgengi að sálfræðiþjónustu samkvæmt rammasamningum, bættri fjarheilbrigðisþjónustu og þróun sértækra meðferðarúrræða á borð við FLIKK, sem er rafræn meðferð fyrir börn með kvíða.
Ráðherra mun áfram beita sér fyrir uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna á Austurlandi með áherslu á að efla þjónustu í nærumhverfi barna, bæta aðgengi að sérfræðiþjónustu og tryggja að börn og fjölskyldur þeirra fái viðeigandi stuðning eins snemma og kostur er, óháð búsetu.