Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.

157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1491  —  680. mál.
Leiðréttur texti og töflur.

Svar

mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Á. Andersen um dreifingu einkunna.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert var hlutfall þeirra nemenda sem útskrifuðust úr grunnskóla árin 2023–2026 sem fengu A, þeirra sem fengu B+, þeirra sem fengu B o.s.frv.? Svar óskast einnig sundurliðað eftir sveitarfélögum og skólum.

    Með hliðsjón af orðalagi fyrirspurnarinnar gerir mennta- og barnamálaráðuneyti ráð fyrir því að óskað sé eftir upplýsingum um hlutfallslega dreifingu lokaeinkunna eftir námsgreinum en ekki heildarhlutfalli nemenda sem fengu A, B+, B o.s.frv. óháð námsgrein í lokavitnisburði við útskrift úr grunnskóla á umræddu tímabili. Í töflum að aftan eru því birtar upplýsingar um dreifingu einkunna við lok grunnskóla, annars vegar sundurliðaðar eftir sveitarfélögum og hins vegar eftir skólum. Með vísan til 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, þar sem segir að miða skuli við að fyrirspurn sé svarað í stuttu máli, eru upplýsingar um einkunnir takmarkaðar við kjarnagreinarnar stærðfræði og íslensku.
    Einkunnirnar tilheyra 19.377 nemendum úr 142 grunnskólum sem útskrifuðust úr grunnskóla árin 2023, 2024, 2025 og 2026. Rétt er að taka fram að ráðuneytið hefur ekki undir höndum tæmandi upplýsingar um einkunnir nemenda í öllum skólum öll ár tímabils þess sem fyrirspurnin tekur til. Þó er um að ræða óverulegt magn gagna sem vantar. Þá koma upplýsingar um nemendur sem útskrifuðust úr sérskólum, þ.e. Klettaskóla, Hlíðarskóla, Brúarskóla, Arnarskóla, Ásgarðsskóla – skóla í skýjunum eða Suðurbæjarskóla, ekki fram í töflunum.
    Í töflunum eru einkunnir tveggja ára birtar saman, þ.e. annars vegar fyrir tímabilið 2023– 2024 og hins vegar 2025–2026. Framsetningin skýrist af persónuverndarsjónarmiðum, þar sem leitast er við að lágmarka líkur á rekjanleika, og af því markmiði að draga úr áhrifum árgangssveiflna. Í töflunum eru einkunnir nemenda sem útskrifuðust með stjörnumerkta einkunn, fengu undanþágu eða voru ekki með skráða einkunn sameinaðar í einn flokk innan hvers skóla og sveitarfélags. Einkunnir nemenda úr skólum þar sem færri en 30 útskrifuðust á hvoru tímabili um sig eru sýndar í töflu með yfirskriftinni Færri en 30 nemendur til að koma í veg fyrir rekjanleika. Þannig birtast ekki upplýsingar fyrir 16 sveitarfélög og 46 grunnskóla. Í tilvikum þar sem færri en 30 nemendur útskrifuðust á öðru hvoru tímabilinu eru hlutfallstölur eingöngu birtar við viðkomandi skóla og sveitarfélag fyrir það tímabil þar sem 30 nemendur eða fleiri útskrifuðust. Jafnframt eru einkunnir nemenda sem ekki voru skráðir með neinn grunnskóla teknar saman í töflu með yfirskriftinni Skóli ekki skráður og þeir nemendur sem ekki höfðu skráð sveitarfélag voru teknir saman í töflu með yfirskriftinni Sveitarfélag ekki skráð.
    Í aðalnámskrá er námsmatskvarðinn A–D skilgreindur þannig að nemandi sem fær B, B+ eða A hefur náð hæfniviðmiðum í 10. bekk. Má því gera ráð fyrir að þeir nemendur sem ná þeim viðmiðum búi yfir hæfni til þess að hefja nám í íslensku og stærðfræði í framhaldsskóla á öðru hæfniþrepi. Stjörnumerkt einkunn merkir að nemandi hefur stundað nám að fullu eða að hluta eftir einstaklingsnámskrá í samræmi við metnar stuðningsþarfir og er því ekki metinn samkvæmt almennum matsviðmiðum aðalnámskrár.
    Rétt er að taka fram að upplýsingar í töflum að aftan byggjast ekki á samræmdu námsmati, enda voru próf við lok grunnskóla hvorki samræmd né stöðluð á því tímabili sem um ræðir. Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er ávallt um einstaklingsmiðað námsmat að ræða og ber grunnskóli ábyrgð á því að matið sé réttmætt og áreiðanlegt við lok grunnskóla. Jafnframt ber að líta til þess að skólar og sveitarfélög standa frammi fyrir ólíkum áskorunum sem tengjast m.a. umhverfi og félagslegu baklandi nemendahópsins og geta haft áhrif á námsárangur nemenda óháð gæðum skólastarfs. Af framangreindum ástæðum áréttar ráðuneytið að gæta verður varúðar við samanburð milli skóla og sveitarfélaga á grundvelli upplýsinga í töflum að aftan.
    Til viðbótar við nefndar töflur má finna myndræna framsetningu upplýsinganna í fylgiskjölum.

Tafla 1. Lokaeinkunnir í stærðfræði og íslensku við útskrift úr grunnskóla eftir sveitarfélögum árin 2023–2026.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

Tafla 1, framhald.

Tafla 2. Lokaeinkunnir í stærðfræði og íslensku við útskrift úr grunnskóla eftir grunnskólum árin 2023–2026.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

Tafla 2, framhald.

Fylgiskjal I.

Dreifing lokaeinkunna í 10. bekk árin 2023 og 2024.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1491-f_I.pdf

Fylgiskjal II.

Dreifing lokaeinkunna í 10. bekk árin 2025 og 2026.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1491-f_II.pdf