Ferill 729. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1492  —  729. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Jens Garðari Helgasyni um heimild lögreglu til að nota sjúkraflugvélar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er sérsveitarmönnum eða öðrum handhöfum lögregluvalds heimilt að ferðast með sjúkraflugi í löggæslutilgangi þegar brýna nauðsyn ber til? Ef svo er ekki, telur ráðherra eitthvað því til fyrirstöðu að heimila slíkt í neyðartilvikum?

    Heilbrigðisráðuneytið lítur svo á að ekki sé heimilt af hálfu lögregluyfirvalda að ráðstafa loftförum, tækjum eða búnaði sem ætlaður er til sjúkraflugs þegar enginn er sjúklingur og fyrirhugaður flutningur tengist ekki sjúkraflutningi.
    Slík ráðstöfun fellur ekki undir gildandi samninga við þjónustuveitendur í sjúkraflugi sem miða að því að tryggja örugga og samfellda þjónustu við sjúkraflutninga. Jafnframt getur notkun sjúkraflugs í öðrum tilgangi en sjúkraflutningum rýrt viðbragðsgetu heilbrigðiskerfisins til að sinna bráðum sjúkraflutningum þegar þeirra er þörf.
    Til að meta seinni spurninguna þyrfti nánari upplýsingar og rökstuðning en að óbreyttu eru ekki forsendur til að heimila slíka ráðstöfun, enda yrði hún að samrýmast lögum, samningsbundnum skyldum og því meginmarkmiði að tryggja ávallt að sjúkraflug sé tiltækt fyrir bráðatilvik þar sem sjúklingar þurfa á þjónustunni að halda.
    Jafnframt er rétt að árétta að málefni löggæslu heyra undir dómsmálaráðherra. Samvinna heilbrigðisþjónustu og lögreglu í neyðarviðbrögðum er alla jafna góð og byggist á nánu samstarfi þar sem í hverju tilviki er metið hvaða viðbragð og hvaða úrræði henta best með hliðsjón af eðli og alvarleika aðstæðna. Í fámennu samfélagi með víðfeðmt landsvæði er samvinna og gagnkvæmur skilningur á hlutverki hvors aðila afar mikilvægur.