Ferill 717. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1493 — 717. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um fjölgun hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra í hyggju að flýta fyrirhugaðri uppbyggingu hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð í ljósi þess að nú þegar er uppsöfnuð og vaxandi þörf fyrir hjúkrunarrými í sveitarfélaginu? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?
Samkvæmt framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á árunum 2026–2030 er gert ráð fyrir stækkun hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar í Fjarðabyggð um 20 hjúkrunarrými árið 2030.
Mennta- og barnamálaráðherra fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila, sbr. breytingu á forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra, nr. 4/2026. Ef flýta á ákveðnum verkefnum í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila sem gildir fyrir árin 2026–2030 krefst það ákvörðunar viðeigandi ráðherra. Heilbrigðisráðuneyti hefur lagt til að flýta ferli uppbyggingar hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð, enda vaxandi þörf fyrir hjúkrunarrými á svæðinu.