Ferill 699. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1494 — 699. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Pawel Bartoszek um hjólaleiðsögn í rafrænum kortaveitum á Íslandi.
1. Hefur ráðuneytið eða stofnanir á vegum þess átt í samskiptum við tæknifyrirtæki á borð við Google eða Apple um innleiðingu á hjólaleiðsögn fyrir Ísland í kortaforritum þeirra?
Framkvæmdir og þjónusta við hjólastíga eru almennt á forræði sveitarfélaga. Frá árinu 2011 hefur Vegagerðin styrkt sveitarfélög til hjóla- og göngustígagerðar meðfram umferðarmestu þjóðvegunum. Fyrstu árin var það mest á höfuðborgarsvæðinu en eftir 2019 hefur fjárveiting til hjóla- og göngustíga í samgönguáætlun eingöngu farið til sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Betri samgöngur ohf. hafa frá árinu 2019 séð um framkvæmdir á stofnhjólaneti höfuðborgarsvæðisins (sjá fylgiskjal).
Opinberir aðilar hér á landi hafa ekki átt formleg samskipti við tæknifyrirtæki á borð við Google eða Apple vegna hjólaleiðsagnar. Umræða um þetta hefur þó komið upp á reglulegum samráðsfundum hjólahóps SSH sem er samstarfsvettvangur fulltrúa frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðinni, SSH og Betri samgöngum. Hjólahópurinn telur þörf á að koma upplýsingum á framfæri til að virkja leiðsögn fyrir hjólandi vegfarendur á kortaveitum á Íslandi.
2. Eru landfræðileg gögn (GIS-gögn) um hjólastíga, hjólalandsnetið og aðra innviði hjólreiða á Íslandi aðgengileg á því formi og samkvæmt þeim stöðlum sem alþjóðleg tæknifyrirtæki kalla eftir til að virkja slíka þjónustu?
Vegagerðin á til landfræðileg gögn um hjólastíga sem hún hefur styrkt utan höfuðborgarsvæðisins sem hægt væri að kalla eftir. Það eru u.þ.b. 100 km af stígum um allt land.
Betri samgöngur eiga til GIS-gögn fyrir allar þær hjólaleiðir sem samgöngusáttmálinn fjármagnar. Betri samgöngur halda ekki utan um gögn fyrir aðrar hjólaleiðir en vert er að taka það fram að samgöngusáttmálinn fjármagnar hluta þeirra stíga sem eru í uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu en sveitarfélögin eru oft einnig í framkvæmdum á sínum vegum. Þar af leiðandi búa Betri samgöngur ekki yfir heildstæðum landfræðilegum gögnum yfir alla stíga á höfuðborgarsvæðinu.
Líklegt er að sveitarfélög eigi til landfræðileg gögn af öðrum hjóla- og göngustígum. Til að fá heildarmynd af landfræðilegum gögnum yfir stíga á landsvísu þyrfti að kalla eftir upplýsingum um hvaða gögn eru til hjá sveitarfélögunum. Þær upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Innviðaráðuneyti mun á næstu vikum setja af stað verkefnastjórn um innleiðingu aðgerða til að efla virka ferðamáta. Til greina kæmi að skoða hvort forsendur séu fyrir innleiðingu á hjólaleiðsögn fyrir Ísland í kortaforritum í þeirri vinnu.
Fylgiskjal.
Stofnhjólanet höfuðborgarsvæðisins 2040. www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1494-f_I.pdf