Ferill 724. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1495 — 724. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um endurreisn Grindavíkur.
Kaup og sala fasteigna Þórkötlu er alfarið á vegum félagsins sjálfs. Tímasetningar og fyrirkomulag er ákvörðun stjórnar félagsins.
Í nágrenni Grindavíkur er enn landris og hæg kvikusöfnun. Að mati Veðurstofunnar mun það enda með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Það er því mikilvægt að gæta fyllsta öryggis. Ákvörðun um endurkaup fasteigna í Grindavík verður því að taka mið af áhættumati svæðisins.
Viðamikil vinna hefur átt sér stað undanfarið varðandi endurskoðun á fyrirkomulagi og aðferðafræði við gerð áhættumats. Hefur sú vinna verið unnin á vegum stjórnvalda í nánu samstarfi við heimamenn í Grindavík. Ráðgjöf hefur verið frá verkfræðistofunni Verkís og Alþjóðabankanum. Eftir að Grindavíkurnefnd lauk störfum ákvað dómsmálaráðherra að fela almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra ábyrgð á gerð áhættumats. Verður það unnið í nánu samstarfi við heimamenn.
Samstarf og samráð stjórnvalda við bæjarstjórn Grindavíkur er mikilvægt við þá endurreisn sem fram undan er í Grindavík. Það er í gangi og verður fest í sessi með skipun samráðshóps. Þar verður samtal við Grindvíkinga um endurreisn bæjarins á grundvelli þess sem talið er ásættanlegt á grundvelli gildandi áhættumats á hverjum tíma.
2. Kemur til greina að gera leigusamninga við Grindvíkinga í stað hollvinasamninga?
Ákvörðun um fyrirkomulag á ráðstöfun húsnæðis í eigu Þórkötlu er alfarið í höndum stjórnar félagsins.
3. Hvaða rök eru fyrir svokallaðri tólf daga reglu í hollvinasamningum við Grindvíkinga?
Ákvörðun um fyrirkomulag á ráðstöfun húsnæðis í eigu Þórkötlu er alfarið í höndum stjórnar félagsins.
Svokölluð tólf daga regla hefur ekki tekið gildi. Það hefur verið afstaða stjórnar Þórkötlu og kallað hefur verið eftir því frá Grindvíkingum að þörf sé á að skýra betur ákvæði gistiviðauka hollvinasamninga um að ekki sé heimild til fastrar búsetu. Mun umrætt ákvæði hafa átt að koma til móts við það og taka gildi í september.
4. Hvaða rök eru fyrir því að takmarka heimildir Grindvíkinga til rafrænnar vöktunar á eignum sínum?
Samkvæmt upplýsingum frá Þórkötlu er þörf á að afmarka og skýra betur þær heimildir sem félagið hefur til að annast eignir félagsins. Öll skylda til viðhalds, varðveislu og umsjónar eignanna er í höndum Þórkötlu þó að fyrrum eigendum hafi verið heimilað með samningi að hagnýta sér með takmörkunum þá eign sem þeir áður áttu. Til að standa undir þessum skyldum þurfa starfsmenn Þórkötlu að geta haft aðgang og eftirlit með eignunum. Þó að fyrrum eigandi hafi takmarkaðan afnotarétt af eign þá eru þar engin réttindi sem fylgja eignarrétti eða leigurétti samkvæmt lögum. Umrædd fasteign er ekki heimili þess sem hefur þennan afmarkaða afnotarétt.
5. Verða íbúar sem ekki seldu fasteignafélaginu Þórkötlu fasteignir sínar settir undir sömu kvaðir og gilda samkvæmt hollvinasamningum?
Engar heimildir að lögum eru til að takmarka ráðstöfunarrétt annarra fasteignaeigenda í Grindavík.
6. Liggja fyrir tímasettar áætlanir um frekari endurreisn og uppbyggingu bæjarins?
Unnið er eftir aðgerðaáætlun 2 vegna innviðaframkvæmda, aðgerðaáætlun um farsæld og samfélagslegan stuðning við Grindvíkinga og aðgerðaáætlun um rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæslu í bænum sem framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ vann í samráði við Grindavíkurbæ og öðluðust gildi með samþykki forsætisráðherra samkvæmt lögum um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024.
Í apríl skilaði Grindavíkurnefnd forsætisráðherra rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur samkvæmt beiðni og samhliða var skýrsla Alþjóðabankans um sama efni afhent. Unnið verður að frekari áætlanagerð með hliðsjón af þessum skýrslum.
Mikilvægt er að endurreisn í kjölfar náttúruhamfara sé á forræði heimamanna. Það er almennt viðurkennd nálgun sem hefur reynst farsæl í öðrum löndum. Í nýlegri skýrslu Alþjóðabankans um endurreisn í Grindavík í kjölfar náttúruhamfara er lögð áhersla á þetta sjónarmið. Hlutverk ríkisins er þá að leggja þessari endurreisn lið með fjölþættum stuðningi stjórnvalda. Þetta samstarf stjórnvalda og Grindavíkurbæjar verður fest í sessi með skipan samráðsvettvangs sem mun eiga í nánu samráði við lykilaðila.
Í sveitarstjórnarkosningum í vor var kjörin ný bæjarstjórn í Grindavík sem er með skýrt umboð Grindvíkinga til að hafa forystu í endurreisn bæjarins. Ríkisstjórnin mun eiga gott samstarf við bæjarstjórnina um endurreisn Grindavíkur.
7. Verður skólahald heimilað í Grindavík á komandi skólaári?
Ákvörðun um skólahald grunnskóla og leikskóla í Grindavík er á forræði Grindavíkurbæjar, sbr. 5. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og 4. gr. laga um leikskóla, nr. 90/2008.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur eftirlit með því að sveitarfélög uppfylli þær skyldur sem lög um grunnskóla, nr. 91/2008, reglugerðir og reglur settar samkvæmt þeim og aðalnámskrá grunnskóla kveða á um. Mennta- og barnamálaráðherra skal jafnframt gæta þess að farið sé eftir ákvæðum laga um leikskóla, nr. 90/2008, og reglugerða settra á grundvelli þeirra.