Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1496 — 488. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um loftgæði í Reykjavík.
Samkvæmt vegalögum, nr. 80/2007, ber veghaldari ábyrgð á veghaldi vegar og við veghaldið skal meðal annars litið til umhverfissjónarmiða. Samkvæmt þeim lögum ber Vegagerðin ábyrgð á þjóðvegum í þéttbýli en viðkomandi sveitarfélag, í þessu tilfelli Reykjavíkurborg, ber ábyrgð á sveitarfélagavegum innan borgarmarkanna.
Þegar kemur að svifryksmengun þá eru það fyrst og fremst þær götur sem hafa mesta umferðarmagnið og mesta hraðann sem meginpartur af menguninni kemur frá.
Þjóðvegir í Reykjavík þar sem Vegagerðin er veghaldari eru eftirfarandi: Vesturlandsvegur, Hallsvegur, Suðurlandsvegur, Breiðholtsbraut, Reykjanesbraut, Sæbraut, Miklabraut, Kringlumýrarbraut, Bústaðavegur frá Hringbraut að Kringlumýrarbraut, Hringbraut, Njarðargata, Eiðsgrandi og Ánanaust.
Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa verið í góðri samvinnu varðandi rykbindingu en starfandi er viðbragðsteymi sem sér um að framfylgja viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar um loftgæði. 1 Í teyminu sitja fulltrúar Vegagerðarinnar, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar.
Samkvæmt 36. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, skulu heilbrigðisnefndir gefa út áætlun þar sem m.a. koma fram aðgerðir til að bæta loftgæði. Í áætlun Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur er m.a. fjallað um ýmsar aðgerðir til að bæta loftgæði, þar á meðal þvott gatna og rykbindingu.
2. Hyggst ráðherra grípa til aðgerða til að draga úr svifryksmengun í Reykjavík?
Áhrif loftmengunar á heilsu manna hér á landi eru með þeim minnstu samanborið við önnur ríki. Þrátt fyrir það leggja íslensk stjórnvöld áherslu á að vinna gegn loftmengun og skaða af hennar völdum í samræmi við markmið um að stuðla að loftgæðum og heilnæmu umhverfi fyrir almenning á Íslandi. Í því sambandi má benda á áætlun stjórnvalda um loftgæði á Íslandi 2018–2029, Hreint loft til framtíðar, sem nú er í endurskoðun.
Í áætlun um loftgæði eru settar fram aðgerðir til að bæta loftgæði. Í núgildandi loftgæðaáætlun er eitt af markmiðunum að draga úr svifryksmengun og eru settar fram nokkrar aðgerðir til að vinna að því markmiði. Þær aðgerðir eru margvíslegar, t.d. gjaldtaka vegna nagladekkja og möguleg takmörkun á umferð, og á ábyrgð ýmissa aðila.
Unnið er að endurskoðun á loftgæðaáætlun og hefur ráðherra skipað stýrihóp um eftirfylgni áætlunar um loftgæði á Íslandi. Mögulegar aðgerðir til að draga úr svifryksmengun eru því í sífelldri skoðun og með þeim aðilum sem borið gætu ábyrgð á þeim aðgerðum.
Þá má nefna að til skoðunar er nýleg tilskipun ESB um loftgæði og hreinna loft í Evrópu, nr. 2024/2881, vegna upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Tilskipunin leggur aukna áherslu á vernd heilsu almennings, sérstaklega viðkvæmra hópa, t.d. með kröfum til aðgerðaáætlana stjórnvalda. Alþjóðastofnanir eins og WHO hafa einnig lagt til að sett séu strangari viðmiðunarmörk fyrir loftmengun byggt á nýjustu rannsóknum á heilsufarsáhrifum hennar.
1 Viðbragðsáætlunina má sjá hér: reykjavik.is/sites/default/files/vidbragdsaaetlun_um_loftgaedi.pdf