Ferill 650. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1498 — 650. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa.
1. Í hvaða nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hvert sæti á kjörtímabilinu, til hversu langs tíma og hvaða póstar eru launaðir?
Eftirfarandi nefndir, ráð, vinnu- og starfshópar sem forsætisráðherra skipar í eru starfandi eða var skipað í á kjörtímabilinu.
Aðgerðahópur um brúun bils milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Skipaðir fulltrúar: Henný Hinz, formaður, Anna Hrefna Ingimundardóttir, Björk Óttarsdóttir, Elmar Björnsson, Halla Gunnarsdóttir, Haraldur Freyr Gíslason, Heiða Björg Hilmisdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Stefán Daníel Jónsson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
Skipunartími var frá 6. júní til 1. nóvember 2025. Formaður fékk greidda þóknun fyrir störf sín í aðgerðahópnum.
Atvinnustefnuráð.
Skipaðir fulltrúar: Robert-Jan Smits, formaður, Gylfi Zoëga, Nana Bule, Pétur Þ. Óskarsson og Tanya Zharov.
Skipunartími er frá 9. september 2025. Fulltrúar í atvinnustefnuráði fá greitt fyrir störf sín í ráðinu.
Framkvæmdahópur um Hóla í Hjaltadal.
Skipaðir fulltrúar: Margrét Hallgrímsdóttir, formaður, Hrafn Hlynsson, Pétur Berg Matthíasson og Hólmfríður Sveinsdóttir.
Skipunartími var frá 15. apríl til 31. ágúst 2025. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í framkvæmdahópnum.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík.
Nefndin var skipuð á grundvelli laga nr. 40/2024 og lauk skipunartíma hennar 31. maí 2026. Á kjörtímabilinu voru Jóhanna Lilja Birgisdóttir og Skarphéðinn Berg Steinarsson skipuð í nefndina. Fulltrúar fengu greitt fyrir störf sín í nefndinni.
Hagræðingarhópur.
Skipaðir fulltrúar: Björn Ingi Victorsson, formaður, Gylfi Ólafsson, Hildur Georgsdóttir og Oddný Árnadóttir.
Skipunartími var frá 21. janúar til 28. febrúar 2025. Fulltrúar fengu greidda þóknun fyrir störf sín í hagræðingarhópnum.
Hagtalnanefnd.
Nefndin var skipuð í september 2024 en forsætisráðherra skipaði nýjan formann, Daníel Svavarsson, 23. janúar 2025. Skipunartími var til 1. maí 2025. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í hagtalnanefnd.
Hrafnseyrarnefnd.
Nefndin var skipuð í ágúst 2023 en forsætisráðherra skipaði nýjan formann, Guðna Th. Jóhannesson, 1. júlí 2025. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í Hrafnseyrarnefnd.
Málnefnd Stjórnarráðsins.
Skipaðir fulltrúar: Ragnheiður Jónsdóttir, formaður, Anna Sigríður Einarsdóttir, Björgvin Andersen, Dúi Jóhannesson Landmark, Elva Björk Sverrisdóttir, Eva Sigríður Ólafsdóttir, Hallgrímur Ámundason, Hanna María Harðardóttir, Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, Margrét Erlendsdóttir og Þórmundur Jónatansson.
Nefndin starfar á grundvelli málstefnu Stjórnarráðs Íslands og er skipunin ótímabundin. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í nefndinni.
Orðunefnd.
Forseti Íslands skipar í nefndina eftir tillögu forsætisráðherra samkvæmt ákvæðum forsetabréfs um hina íslensku fálkaorðu. Á kjörtímabilinu hafa Guðrún Pétursdóttir og Þorlákur Hilmar Morthens verið skipuð í nefndina en nefndarmenn eru skipaðir til sex ára í senn. Nefndarstarfið er heiðursstarf án launa.
Peningastefnunefnd.
Forsætisráðherra skipar tvo nefndarmenn í peningastefnunefnd en auk þess eiga þar sæti seðlabankastjóri, varaseðlabankastjóri peningastefnu og varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika. Þeir fulltrúar sem ráðherra skipar voru síðast skipaðir í mars 2022 og í febrúar 2023 en skipunartími er fimm ár. Fulltrúar sem ráðherra skipar í nefndina fá greitt fyrir störf sín.
Samstarfsnefnd um málefni þjóðlendna.
Nefndin er skipuð á grundvelli 4. gr. laga um þjóðlendur, nr. 58/1998 og er skipunin ótímabundin. Valdís Ösp Árnadóttir var skipuð í nefndina á kjörtímabilinu en aðrir fulltrúar voru skipaðir á síðasta kjörtímabili. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í nefndinni.
Starfshópur um atvinnumál á Seyðisfirði.
Skipaðir fulltrúar: Karl Guðmundsson, formaður, Anna Borgþórsdóttir Olsen, Hólmfríður Sveinsdóttir, Jón Skafti Gestsson og Rafn Helgason.
Skipunartími er frá 13. apríl til 1. september 2026. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur um breytingar á viðmiðum við launaákvarðanir æðstu embættismanna.
Skipaðir fulltrúar: Jóhannes Karl Sveinsson, formaður, Andri Árnason, Ólafur Garðar Halldórsson, Karen Ósk Níelsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir.
Skipunartími var frá 4. júlí 2025 til 20. apríl 2026. Formaður starfshópsins fékk greidda þóknun fyrir störf sín.
Starfshópur um fjarskiptamál.
Skipaðir fulltrúar: Atli Viðar Thorstensen, formaður, Birgir Rafn Þráinsson, Bjarki Þórsson, Ingilín Kristmannsdóttir, Martin Eyjólfsson, Ragna Bjarnadóttir og Tómas Orri Ragnarsson.
Skipunartími var frá 8. til 21. janúar 2025. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur um málefni barna með vímuefnavanda.
Skipaðir fulltrúar: Anna Sigrún Baldursdóttir, formaður, Anna María Káradóttir, Birna Sigurðardóttir og Linda Hrönn Ingadóttir.
Skipunartími var frá 29. desember 2025 til 1. febrúar 2026. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur um málefni einkaskóla á framhaldsskólastigi og á mörkum skólastiga.
Skipaðir fulltrúar: Rósa Guðrún Erlingsdóttir, formaður, Íva Sigrún Björnsdóttir, Jón Vilberg Guðjónsson og Katrín Pálsdóttir.
Skipunartími var frá 13. nóvember 2025 til 1. maí 2026. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur um málefni Grenlækjar.
Skipaðir fulltrúar: Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður, Svanur Geir Bjarnason, Guðni Guðbergsson, Marianne Jensdóttir Fjeld, Birkir Snær Fannarsson, Ingvar Atli Sigurðsson og Óðinn Þórarinsson.
Skipunartími var frá 28. apríl til 30. júní 2025. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur um mótun tillagna um hvernig tryggja megi mannúðlegt og skilvirkt móttökukerfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Skipaðir fulltrúar: Atli Viðar Thorstensen, formaður, Ásta Margrét Sigurðardóttir og Lilja Borg Viðarsdóttir.
Skipunartími var frá 3. til 21. febrúar 2025. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur um viðbrögð stjórnvalda vegna stöðu atvinnumála á Húsavík og nágrenni.
Skipaðir fulltrúar: Helgi Valberg Jensson, formaður, Anna Borgþórsdóttir Olsen, Arnar Freyr Einarsson, Hólmfríður Sveinsdóttir og Jón Skafti Gestsson.
Skipunartími var frá 13. júní til 1. október 2025. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Starfshópur vegna lagasetningar um rannsóknarnefnd í kjölfar Bakkakotsmáls og um almennar sanngirnisbætur.
Skipaðir fulltrúar: Páll Þórhallsson, formaður, Berglind Bára Sigurjónsdóttir, Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, Maren Albertsdóttir, Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen og Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Skipunartími er frá 7. apríl til hausts 2026. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.
Stefnuráð Stjórnarráðsins.
Fulltrúar í stefnuráði voru skipaðir á síðasta kjörtímabili en þar sitja fulltrúar allra ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Skipun í ráðið er ótímabundin. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í ráðinu.
Stýrihópur Stjórnarráðsins vegna rannsóknar á fátækt og áætluðum samfélagskostnaði.
Skipaðir fulltrúar: Rósa Guðrún Erlingsdóttir, formaður, Esther Hallsdóttir, Birna Sigurðardóttir, Guðmann Ólafsson, Hanna Dóra Hólm Másdóttir og Vífill Harðarson.
Skipunartími er frá 6. febrúar 2025 til loka verkefnis. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Stýrihópur um eflingu áfallaþols.
Skipaðir fulltrúar: Daníel Svavarsson, formaður, Drífa K. Sigurðardóttir, Jónas G. Allansson og Ingilín Kristmannsdóttir.
Skipunartími er frá 19. desember 2025 til loka verkefnis. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Stýrihópur um framtíðarfyrirkomulag meðferðarúrræða fyrir börn með vímuefnavanda.
Skipaðir fulltrúar: Anna Sigrún Baldursdóttir, formaður, Anna María Káradóttir, Áslaug Magnúsdóttir, Helga Sif Friðjónsdóttir og Linda Hrönn Ingadóttir,
Skipunartími er frá 8. apríl 2026 til 31. desember 2027. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Stýrihópur um innleiðingu atvinnustefnu Íslands.
Skipaðir fulltrúar: Sveinbjörn Finnsson, formaður, Bergþór Sigurðsson, Hallveig Ólafsdóttir, Jón Ásgeirsson, Karl Guðmundsson, Ragna Skinner, Sigríður Valgeirsdóttir, Sveinn K. Einarsson og Tryggvi Haraldsson.
Skipunartími er frá 22. maí 2026 til 22. maí 2029. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Stýrihópur um sjálfbært Ísland.
Fulltrúar í stýrihópnum voru skipaðir á síðasta kjörtímabili. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Stýrihópur um skipulag á Stjórnarráðsreit.
Fulltrúar í stýrihópinn voru skipaðir á síðasta kjörtímabili og miðast skipunartími við lok verkefnis. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Stýrihópur vegna almyrkva.
Skipaðir fulltrúar: Atli Viðar Thorstensen, formaður, Dagný Arnarsdóttir, Guðlín Steinsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Kjartan Jón Bjarnason, Sunna Þórðardóttir og Viðar Helgason.
Skipunartími er frá 30. janúar til 15. október 2026. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í stýrihópnum.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Skipað var í nefndina 20. nóvember 2023 en skipunartími er fjögur ár. Nefndarmenn fá greitt fyrir störf sín.
Vinnuhópur um hvernig minnast eigi fórnarlamba helfararinnar.
Skipaðir fulltrúar: Anna Sigrún Baldursdóttir, formaður, Ásgerður Kjartansdóttir, Davíð Logi Sigurðsson, Hjalti Ómar Ágústsson og Páll Rafnar Þorsteinsson.
Skipunartími er frá 25. mars til 30. september 2026. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í vinnuhópnum.
Vinnuhópur um stefnumiðuð samskipti vegna áfallaþols.
Skipaðir fulltrúar: Sighvatur Arnmundsson, formaður, Ásgeir Erlendsson, Helena Rós Sturludóttir, Þórdís Valsdóttir og Ægir Þór Eysteinsson.
Skipunartími var frá 19. febrúar til 30. júní 2026. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í vinnuhópnum.
Vinnuhópur um stjórnskipulag á hættutímum.
Skipaðir fulltrúar: Atli Viðar Thorstensen, formaður, Halla Tinna Arnardóttir, Hinrika Sandra Ingimundardóttir, Ragnar Ingibergsson og Sigurjón Ingvarsson.
Skipunartími er frá 23. desember 2025 til loka verkefnis. Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í vinnuhópnum.
Vinnuhópur um stofnun innviðafélags.
Skipaðir fulltrúar: Sveinbjörn Finnsson, formaður, Árni Freyr Stefánsson og Jón Gunnar Vilhelmsson.
Skipunartími var frá 21. nóvember 2025 til 31. janúar 2026. Ekki var greitt sérstaklega fyrir störf í vinnuhópnum.
Vísinda- og nýsköpunarráð.
Ráðið er skipað á grundvelli 2. gr. laga um vísinda- og nýsköpunarráð, nr. 137/2022. Anne Ephrussi var skipuð í ráðið á kjörtímabilinu en aðrir fulltrúar voru skipaðir í júlí 2023. Skipunartími er til fjögurra ára en fulltrúar fá greitt fyrir störf sín í ráðinu.
Þingvallanefnd.
Alþingi kýs í upphafi hvers kjörtímabils sjö alþingismenn í Þingvallanefnd samkvæmt lögum um þjóðgarðinn á Þingvöllum, nr. 47/2004. Forsætisráðherra skipar formann og varaformann úr hópi nefndarmanna sem á þessu kjörtímabili eru Sigurður Helgi Pálmason og Ása Berglind Hjálmarsdóttir.
Þjóðhagsráð.
Þjóðhagsráð starfar á grundvelli samkomulags ríkisstjórnar, aðila vinnumarkaðar og Seðlabanka Íslands en forsætisráðherra stýrir fundum þess. Þar eiga sæti formenn stjórnmálaflokka sem sitja í ríkisstjórn, þó ætíð forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra ásamt forystufólki Alþýðusambands Íslands, BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands.
Þjóðaröryggisráð.
Þjóðaröryggisráð starfar á grundvelli laga um þjóðaröryggisráð, nr. 98/2016. Forsætisráðherra er formaður ráðsins en þar eiga auk þess sæti ráðherra sem fer með utanríkis- og varnarmál, ráðherra sem fer með almannavarnir, ráðuneytisstjórar viðkomandi ráðuneyta, ríkislögreglustjóri, forstjóri Landhelgisgæslunnar, fulltrúi Landsbjargar auk tveggja alþingismanna, annar er úr þingflokki sem skipar meiri hluta á Alþingi en hinn úr þingflokki úr minni hluta.
Þar að auki skipar forsætisráðherra ráðherranefndir á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Nú eru starfandi sjö ráðherranefndir: ráðherranefnd um efnahagsmál, ráðherranefnd um málefni barna og ungmenna, ráðherranefnd um ríkisfjármál, ráðherranefnd um samræmingu mála sem varða fleiri en eitt ráðuneyti, ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun, ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál og ráðherranefnd um öldrunarþjónustu.
2. Í hvaða stjórnir er skipað á vegum ráðherra? Hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir í hverja stjórn á kjörtímabilinu og til hversu langs tíma? Hverjir þeirra eru jafnframt starfsmenn ráðuneyta og í hvaða stjórnum sitja þeir?
Forsætisráðherra skipar ekki í neinar stjórnir.