Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1499  — 413. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um höfnun á rannsókn á afdrifum barna sem hafa verið vistuð á meðferðarheimilum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða rök stóðu til þess að hafna beiðni umboðsmanns barna um að rannsókn færi fram á aðstæðum barna sem hafa verið vistuð á meðferðarheimilum á vegum ríkisins?

    Í erindi umboðsmanns barna til forsætisráðherra, dags. 8. október 2025, var óskað eftir því að gerð yrði sérstök rannsókn á afdrifum barna sem vistuð hafa verið í úrræðum skv. 79. gr. barnaverndarlaga frá því að ríkið tók við rekstri þeirra samhliða því að Barnaverndarstofa var sett á fót árið 1996. Fram kemur að embættið telji tilefni m.a. til að rannsaka sérstaklega dánartíðni, atvinnuþátttöku, menntun, húsnæðisstöðu, örorku, afplánun dóma og geðheilbrigði. Markmið slíkrar rannsóknar væri að leggja mat á gæði veittrar þjónustu.
    Í svarbréfi forsætisráðuneytis til umboðsmanns barna, dags. 12. janúar 2026, er tiltekið að ráðuneytið væri reiðubúið til frekara samtals um tillögu umboðsmanns barna um rannsókn á afdrifum þeirra barna sem vistuð hafa verið á vegum ríkisins í úrræðum skv. 79. gr. barnaverndarlaga. Þá kemur fram að þrátt fyrir að mikilvægt kunni að vera að greina stuðning stjórnvalda við börn og ungmenni í vímuefnavanda og fjölskyldur þeirra á undanförnum áratugum, þ.m.t. að kanna afdrif barna, telji forsætisráðuneytið skynsamlegri ráðstöfun, að svo stöddu, að verja tíma og fjármunum í brýnni aðgerðir. Að mati ráðuneytisins væri mikilvægt að forgangsraða aðgerðum til framtíðar í þágu bættra og fjölbreyttari úrræða fyrir börn og ungmenni í vímuefnavanda, sem og fyrir fjölskyldur þeirra. Við þá forgangsröðun yrði horft til þeirrar gagnrýni sem komið hafi fram hvað varðar stuðning stjórnvalda við börn og ungmenni með vímuefnavanda og fjölskyldur þeirra.
    Forsætisráðherra skipaði 29. desember 2025 starfshóp um málefni barna með vímuefnavanda og skilaði hann tillögum sínum um aukna samþættingu þjónustu fyrir þennan hóp barna til ríkisstjórnarinnar 17. mars 2026. Í framhaldi af þeirri vinnu hefur forsætisráðuneytið leitt stýrihóp um framtíðarfyrirkomulag meðferðarúrræða fyrir börn með vímuefnavanda. Meginmarkmið þeirrar vinnu er að styrkja samþættingu þjónustu, skýra ábyrgð og verkaskiptingu kerfa og tryggja samfellu í þjónustu við þennan hóp barna. Í samstarfi við hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir voru gerðar breytingar á frumvarpi til nýrra laga um barnavernd sem miða að því að skýra ábyrgð og framkvæmd heilbrigðisþjónustu gagnvart börnum innan barnaverndarkerfisins, styrkja lagalegan grundvöll samstarfs heilbrigðis- og barnaverndarkerfisins og tryggja börnum með vímuefnavanda aðgang að viðeigandi heilbrigðisþjónustu og samfelldri þjónustu óháð mörkum milli kerfa. Þá er stýrihópnum ætlað að kanna fýsileika stofnunar sérstakrar fíknigeðdeildar fyrir börn og ungmenni en slík deild myndi sinna einstaklingum í alvarlegasta vandanum. Slík þjónusta yrði á forræði heilbrigðiskerfisins sem að sama skapi mun kalla á þétt samráð við félagslega þjónustu, þ.m.t. barnavernd.