Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1502 — 377. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið innheimtir engin þjónustugjöld.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála innheimtir engin þjónustugjöld
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
Gjaldskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar er sett á grundvelli 16. gr. laga um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (hér eftir HMS), nr. 137/2019, 52. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, 38. gr. a laga um brunavarnir, nr. 75/2000, og 24. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001. Þó er mikilvægt að hafa í huga að gjaldtaka skal aldrei vera hærri en sem nemur þeim kostnaði sem hlýst af því að veita þjónustuna. Stofnunin hefur einnig heimild til gjaldtöku á grundvelli annarra lagaákvæða. Núverandi gjaldskrá gildir frá 1. janúar 2026.
Útlán og stofnframlög.
HMS hefur heimild til þess að innheimta lántökugjald. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, er HMS heimilt að draga frá lántökugjald við útgreiðslu höfuðstóls HMS-veðbréfs.
Í 1. mgr. 7. gr. laga um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016, kveður á um að lánveitendum sé aðeins heimilt að krefja neytendur um gjöld sem tilgreind eru í samningi um fasteignalán, byggjast á hlutlægum grunni vegna kostnaðar sem lánveitandi hefur orðið fyrir og tengjast fasteignaláninu beint, auk vaxta. Þessi gjöld eru tilgreind hér að aftan.
1. Lántökugjöld.
1.1. Lántökugjald einstaklinga 64.500 kr.*
1.2. Lántökugjald húsnæðisfélaga allt að 1%.**
1.3. Lántökugjald sveitarfélaga allt að 1%.**
1.4. Lántökugjald leigufélaga allt að 1%.**
*Þó ekki hærra en 1% af lánsfjárhæð eða 0,5% vegna lána til sérþarfa. Lántökugjald er fellt niður hjá fyrstu kaupendum af láni á 1. veðrétti.
**Lántökugjald á lánum til lögaðila getur samkvæmt gjaldskrá stjórnar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar numið allt að 1% af lánsfjárhæð, en þó aldrei hærri fjárhæð en 2.500.000 kr. vegna hverrar lánveitingar.
2. Gjöld vegna innheimtu vanskila.
2.1. Greiðsluáskorun 8.750 kr. +vsk.
2.2. Nauðungarsölubeiðni 3.500 kr. +vsk.
2.3. Kröfulýsing í uppboðsandvirði 8.750 kr. +vsk.
2.4. Tilkynninga- og greiðslugjald vegna stofnunar gjalddaga 150 kr.
2.5. Heimsendur greiðsluseðill 350 kr.
2.6. Milliinnheimtubréf send eftir 10, 30 og 50 daga vanskil, kostnaður fyrir hvert bréf og leggst á hvert lán, 1.250 kr.
3. Gjöld vegna skjalagerðar.
3.1. Skuldbreyting 4.000 kr.
3.2. Veðleyfi 6.500 kr.
3.3. Veðbandslausn 6.500 kr.
3.4. Veðflutningur 15.000 kr.
3.5. Yfirtaka lána 15.000 kr.
3.6. Uppgreiðsla lána annarra en fyrirtækja 4.000 kr.
3.7. Umsýsla lána ef 14 daga skilaréttur er nýttur 5.000 kr.
3.8. Aðrar breytingar á skilmálum 4.000 kr.
3.9. Umsýslugjald vegna uppgreiðslu hlutdeildarlána 15.000 kr.
3.10. Endurrukkaður útlagður kostnaður vegna þinglýsingar skjala 2.700 kr.
4. Greiðslumat og gjöld vegna útlagðs kostnaðar.
4.1. Greiðslumat er framkvæmt í samstarfi við Creditinfo og er gjald vegna greiðslumats innheimt samkvæmt gjaldskrá Creditinfo hverju sinni.
4.2. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun er heimilt að krefjast greiðslu vegna útlagðs kostnaðar vegna vottorða og gagna sem aflað er annars staðar frá, svo sem veðbandayfirlits fasteignar, skuldastöðuskrá o.fl. Þá er einnig heimilt að krefjast greiðslu útlagðs kostnaðar vegna innheimtuaðgerða sem unnar eru af utanaðkomandi aðilum í samræmi við þjónustusamninga sem stofnunin hefur gert við viðkomandi aðila. Sem dæmi má nefna kostnað vegna birtingar greiðsluáskorunar, nauðungarsölugjald til ríkissjóðs og innheimtukostnað frá utanaðkomandi innheimtustofnunum.
4.3. Upp- og umframgreiðslugjald vegna útlána til lögaðila miðast við núvirt greiðsluflæði frá greiðsludegi fram að vaxtaendurskoðunardegi eða lokagjalddaga. Uppgreiðslugjald sjóðsins tekur mið af kostnaði Húsnæðissjóðs við uppgreiðslu fjármögnunar til ríkissjóðs.
Bruna- og mannvirkjamál.
Gjaldtaka vegna bruna- og mannvirkjamála byggist á 52. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, og 6. mgr. 38. gr. laga um brunavarnir, nr. 75/2000, sem nær m.a. til undirbúnings, útgáfu starfsleyfa og löggildinga, auk aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Þessi gjöld eru tilgreind hér að aftan.
5. Námskeið.
5.1. Námskeiðsgjald fyrir þjónustuaðila brunavarna 13.780 kr.
Gjaldið skal greitt við upphaf námskeiðs.
6. Starfsleyfi.
6.1. Byggingarstjórar.
6.1.1. Útgáfa starfsleyfis 14.330 kr.
6.1.2. Endurnýjun starfsleyfis 14.330 kr.
6.1.3. Endurskoðun og breyting á starfsleyfi 14.330 kr.
6.2. Skoðunarstofur.
6.2.1. Útgáfa starfsleyfis 45.190 kr.
6.2.2. Endurnýjun starfsleyfis 20.700 kr.
6.2.3. Endurskoðun og breyting starfsleyfis 20.700 kr.
6.3. Þjónustuaðilar brunavarna.
6.3.1. Útgáfa starfsleyfis 45.190 kr.
6.3.2. Endurnýjun starfsleyfis 20.700 kr.
6.3.3. Endurskoðun og breyting starfsleyfis 20.700 kr.
Gjaldið skal greitt við útgáfu starfsleyfis. Hafi vinna við úttekt á aðstöðu vegna starfsleyfis í för með sér meiri kostnað en sem nemur gjaldi samkvæmt grein þessari er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu og ferðakostnað skv. 15. kafla hér að aftan eða annan útlagðan kostnað samkvæmt framlögðum reikningum. Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu.
7. Löggildingar.
7.1. Hönnuðir 12.000 kr.
7.2. Iðnmeistarar 12.000 kr.
7.3. Slökkviliðsmenn 12.000 kr.
7.4. Rafverktakar 12.000 kr.
Gjaldið skal greitt við útgáfu löggildingar.
*Gjaldið er innheimt skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.
Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. laga nr. 114/2014, um byggingarvörur, skal sá sem óskar eftir staðfestingu á nothæfi byggingarvöru samkvæmt þeirri grein greiða allan kostnað sem af henni hlýst.
8. Leyfi, úttektir, vottorð o.fl.
8.1. Byggingarleyfi og byggingarheimild.
8.1.1. Lágmarksgjald við móttöku umsóknar um byggingarleyfi eða byggingarheimild 13.780 kr.
8.1.2. Endurnýjun byggingarleyfis eða byggingarheimildar 14.330 kr.
8.1.3. Vinna sérfræðinga vegna yfirferðar gagna, þ.m.t. hönnunargagna, er háð tímagjaldi skv. 15. gr.
8.2. Framkvæmdaleyfi.
8.2.1. Lágmarksgjald við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi 14.330 kr.
8.3. Stöðuleyfi.
8.3.1. Umsókn um stöðuleyfi 14.330 kr.
8.4. Móttaka gagna vegna tilkynningaskyldra framkvæmda 14.330 kr.
Greitt er fyrir vinnu starfsmanna sbr. liði 8.2–8.4 við yfirferð uppdrátta og annarra hönnunargagna, svo sem vegna burðarþols-, lagna- og séruppdrátta hönnuða, breytinga á innra skipulagi eða slökkvikerfa samkvæmt tímagjaldi í 15. kafla hér að aftan. Áætlun skal kynnt við upphaf vinnu.
8.5. Úttektir og vottorð.
8.5.1. Lágmarksgjald vegna áfangaúttektar 14.330 kr.
8.5.2. Lágmarksgjald vegna öryggisúttektar 26.000 kr.
8.5.3. Lágmarksgjald vegna lokaúttektar 39.000 kr.
8.5.4. Lágmarksgjald vegna stöðuskoðunar 13.000 kr.
8.5.5. Lágmarksgjald vegna byggingarstjóraskipta 26.000 kr.
8.5.6. Gjald fyrir vottorð og staðfestingu á úttektum samkvæmt liðum 8.5.1–8.5.5 13.000 kr.
8.6. Lágmarksgjald vegna úttektar á gæðastjórnunarkerfum byggingarfulltrúa 49.400 kr.
8.7. Lágmarksgjald vegna úttektar á gæðastjórnunarkerfum þjónustuaðila brunavarna verður 49.400 kr.
8.8. Lágmarksgjald vegna staðfestingar á nothæfi byggingarvöru með tilliti til brunaþols og brunaeiginleika byggingarvöru 49.400 kr.
8.9. Lágmarksgjald vegna gagnkvæmrar viðurkenningar gagna samkvæmt lögum um byggingarvörur 49.400 kr.
HMS er heimilt að krefjast greiðslu vegna kostnaðar við utanaðkomandi sérfræðiráðgjöf sem þörf er á í tengslum við mat á gögnum sem liggja til grundvallar umsókn, en þó aðeins að því marki sem lágmarksgjaldið nægir ekki til að greiða heildarkostnað vegna afgreiðslu umsóknarinnar. Kostnaður vegna utanaðkomandi sérfræðiráðgjafar skal vera í samræmi við þjónustusamninga sem HMS hefur gert við viðkomandi aðila. Þegar ljóst er að þörf er á utanaðkomandi aðstoð við mat á gögnum skal umsækjanda um gagnkvæma viðurkenningu gerð grein fyrir líklegum kostnaði vegna hennar í samræmi við áætlun sem HMS hefur fengið frá þeim aðila sem leitað verður til. Gjald samkvæmt þessum lið skal greitt við útgáfu yfirlýsingar HMS um gagnkvæma viðurkenningu gagna.
8.10. Útmælingar á mannvirkjum.
Gjald fyrir útmælingu mannvirkja skal miðast við vinnuframlag og skal ferðakostnaður og tímagjald innheimt skv. 15. kafla hér að aftan en annar útlagður kostnaður Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar samkvæmt framlögðum reikningum. Áætlun um kostnað vegna útmælingar skal gefin út og kynnt við upphaf vinnunnar. Gjaldið skal greitt við lok vinnu.
Hafi úttekt eða vinna við útgáfu leyfa, vottorða, úttekta o.fl. samkvæmt grein þessari í för með sér meiri kostnað en sem nemur gjaldi er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu skv. 15. gr., ferðakostnað skv. 15. gr. og annan útlagðan kostnað samkvæmt framlögðum reikningum. Þegar ljóst er að þörf er á umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu og skal reikningur gefinn út þegar úttekt eða vinnu er lokið.
Önnur gjöld samkvæmt þessari grein skulu greidd við upphaf úttektar eða vinnunnar.
Lögmælifræði – markaðseftirlit.
Samkvæmt 24. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, skal ráðherra ákveða gjald til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa varðandi löggildingu vigtarmanna. Skal fjárhæðin taka mið af kostnaði við námskeiðin og framkvæmd prófsins. Við námskeiðsgjald bætist löggildingargjald í samræmi við lög nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, eins og það er á þeim tíma sem löggilding fer fram.
Aðrar heimildir vegna gjaldtöku eru tilgreindar hér að neðan í hverjum gjaldalið.
9. Lögmælifræði – markaðseftirlit.
9.1. Löggildingar (skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs).
9.1.1. Löggilding vigtarmanna 12.000 kr.
9.1.2. Bráðabirgðalöggilding vigtarmanna 12.000 kr.
9.2. Vigtarmannanámskeið í Reykjavík (samkvæmt auglýsingu nr. 465/2018).
9.2.1. Almennt vigtarmannanámskeið 88.500 kr.
9.2.2. Endurmenntunarnámskeið vigtarmanna 37.200 kr.
Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dagpeningum, ferðakostnaði og ferðatíma.
9.3. Eðalmálmar (skv. 12. gr. laga um vörur unnar úr eðalmálmum, nr. 77/2002).
9.3.1. Viðurkenning og skráning á nafnastimpli 10.000 kr.
9.3.2. Eftirlitsgjald 12.000 kr.
Við eftirlitsgjald skv. 9.3.2 getur bæst tilfallandi kostnaður, líkt og kostnaður vegna sýnatöku og greiningar sýna og ferðakostnaður, eftir því sem við á.
9.4. Útseld ráðgjafar- og sérfræðiþjónusta (samkvæmt auglýsingu nr. 256/2019).
9.4.1. Sérfræðingur I 27.000 kr.
9.4.2. Sérfræðingur II 23.000 kr.
9.5. Nikótínvörur (samkvæmt rgl. 992/2022).
9.5.1. Tilkynningargjald vegna markaðssetningar nikótínvara 75.000 kr.
9.5.2. Vinnslugjald leyfisumsóknar 27.224 kr.
9.5.3. Tímagjald sérfræðings vegna eftirlits 18.216 kr.
Við eftirlitsgjald skv. 9.5.3 getur bæst tilfallandi kostnaður, líkt og ferðakostnaður, eftir því sem við á.
9.6. Eftirlitsgjöld fyrir vatns- og raforkumæla.
9.6.1. Umsóknargjald 61.300 kr.
Við umsóknargjald bætist ferðakostnaður, þegar það á við, samkvæmt auglýsingu ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum innan lands.
9.6.2. Leyfisgjald 5.700 kr.
9.6.3. Eftirlitsgjald fyrir færri en 5.000 mæla 61.400 kr.
9.6.4. Eftirlitsgjald fyrir færri en 50.000 mæla 122.300 kr.
9.6.5. Eftirlitsgjald fyrir 50.000 mæla og þar yfir 184.000 kr.
Fasteignaskrá, fasteignamat og brunabótamat.
Gjaldtaka á grundvelli laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001. Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laganna er fjallað um heimild HMS til þess að vinna úr og láta í té upplýsingar úr fasteignaskrá gegn gjaldi sem rennur til stofnunarinnar samkvæmt gjaldskrá sem stjórn HMS setur. Í 2. mgr. 24. gr. laganna er að finna upptalningu á þeim gjaldskrárliðum sem kveðið skal á um í gjaldskrá. Samkvæmt 3. mgr. 24. gr. laganna skal við ákvörðun á fjárhæð gjalda skv. 2. mgr. leggja til grundvallar kostnað vegna launa og launatengdra gjalda, framleiðslu, aksturs, þjálfunar og endurmenntunar, aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, húsnæðis, starfsaðstöðu, fjarskiptabúnaðar og tækja, stjórnunar- og stoðþjónustu og alþjóðlegrar samvinnu í þágu lögbundinna verkefna stofnunarinnar, auk ferða og uppihalds og útlagðs kostnaðar. Samkvæmt 5. mgr. 24. gr laganna er heimild til þess að veita afslátt eða fella niður gjald í sérstökum tilvikum, t.d. vegna námsmanna og rannsóknarverkefna.
Gjöld vegna fasteignaskrár eru tilgreind hér að aftan:
10. Gjöld fyrir afnot matsfjárhæða og matskerfa og skráningu nýrra fasteigna.
10.1. Gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta.
Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert. Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði.
10.2. Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi.
Vátryggingafélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi. Skal gjaldið nema 0,0021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega.
10.3. Gjald fyrir stofnun nýrrar fasteignar í fasteignaskrá 36.600 kr.
11. Gjald fyrir endurmat brunabótamats fasteigna.
11.1. Gjald fyrir endurmat brunabótamats fasteigna (samkvæmt gjaldskrá nr. 446/2001 og lögum nr. 48/1994) 6.000 kr.
Sé brunabótamat hærra en 25.000.000 kr. skal greiða 0,03% af gildandi brunabótamati.
Sé gildandi brunabótamat hærra en 500.000.000 kr. skal greiða 0,01% af þeirri upphæð sem umfram þá fjárhæð er (samkvæmt gjaldskrá nr. 446/2001 og lögum nr. 48/1994).
12. Gjald fyrir upplýsingar úr fasteignaskrá og þinglýsingarhluta.
12.1. Mánaðarlegt þjónustugjald vefþjónustu, FTP gagnaveitu og vefuppflettinga 5.600 kr.
12.2. Stofngjald vefþjónustu og FTP gagnaveitu 93.900 kr.
12.3. Gjald fyrir breytingar rafrænna skilríkja 9.500 kr.
12.4. Greiða skal einingarverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá. Einingarverð er miðað við fjölda fasteigna sem óskað er upplýsinga um og tekur mið af fjölda svæða fyrir hverja fasteign. Miðað er við notkun á einu almanaksári og reiknast afsláttur þegar tilteknum fjölda fasteigna er náð. Svæðin eru:
a. mannvirkja- og lóðasvæði,
b. matssvæði,
c. eigendasvæði.
Fjöldi fasteigna | Eitt svæði | Tvö svæði | Þrjú svæði
1–70.000 | 33 kr. | 66 kr. | 99 kr.
70.000–140.000 | 29 kr. | 58 kr. | 83 kr.
Fleiri en 140.000 | 25 kr. | 50 kr. | 75 kr.
12.5. Önnur einingarverð fyrir upplýsingar úr fasteignaskrá.
12.5.1. Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) 99 kr.
12.5.2. Eigendasaga fasteignar 99 kr.
12.5.3. Breytingasaga fasteignar 99 kr.
12.5.4 Upplýsingar um fyrstu kaup 99 kr.
12.6. Einingaverð úr þinglýsingabók.
12.6.1. Gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók 1.100 kr.
12.6.2. Mánaðargjald fyrir rafræna vöktun á breytingum á veðbandayfirliti eignar er miðað við fjölda eigna í vöktun:
Fjöldi eigna í vöktun | Verð fyrir hverja eign
1–100 | 99 kr.
101–1.000 | 63 kr.
1.001–10.000 | 54 kr.
10.001–20.000 | 43 kr.
Fleiri en 20.000 | 32 kr.
12.6.3. Skjalalisti (listi yfir rafræn endurrit skjala í þinglýsingabók) 99 kr.
12.6.4. Gjald fyrir rafrænt endurrit skjals í þinglýsingabók 395 kr.
13. Ýmis ákvæði.
13.1. Sérvinnslur.
13.1.1. Einingaverð upplýsinga úr fasteignaskrá skv. 12. gr.
13.1.2. Byrjunargjald sérvinnslu (innifalin 2 klst. vinna sérfræðings) 56.600 kr.
Vinna umfram 2 klst. er greidd skv. 15. kafla hér að aftan.
13.2. Vottorð, uppflettingar og ljósrit.
Vottorð sem krefjast sérvinnslu:
13.2.1. Tímagjald sérfræðings skv. 15. gr.
13.2.2. Afhending lista úr fasteignaskrá 950 kr.
13.2.3. Ljósrit á bls. 27 kr.
13.2.4. Staðfest ljósrit úr skrám 950 kr.
Eignastöðuvottorð.
13.2.5. Fyrir hverja kennitölu 4.300 kr.
13.2.6. Viðbótargjald fyrir hverja færslu 60 kr.
Rafræn afhending vottorða.
13.2.7. Eignastöðuvottorð í vefþjónustu fyrir hverja kennitölu 915 kr.
13.2.8. Vottorð fyrir áætlað fasteignamat fyrir fasteignir í byggingu 550 kr.
13.3. Miðlun upplýsinga úr skrám Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Miðlun upplýsinga úr skrám Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar er óheimil nema fyrir liggi samningur um miðlun. Með miðlun upplýsinga er átt við miðlun til þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar skv. 12. og 13. gr. eftir því sem við á.
Árgjald miðlara 456.000 kr.
13.4. Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar fyrir hönd þriðja aðila er óheimil nema fyrir liggi samningur um slíka vinnslu. Átt er við hvers kyns tölfræðivinnslu, úrtaksvinnslu eða aðra vinnslu fyrir þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar skv. 12. og 13. gr. eftir því sem við á.
Árgjald vinnsluaðila 62.800 kr.
13.5. Undanþágur frá gjaldskrá.
Heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:
a. Námsmönnum sem þurfa upplýsingar vegna verkefna í þágu náms.
b. Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum.
c. Fjölmiðlum ef upplýsingar varða heildarfjölda eða summutölur úr skrám.
d. Skráningaraðilum sem annast skráningu í skrár Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
e. Miðlurum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar er veittur 10% afsláttur af gjöldum vegna endursölu upplýsinga sem taldar eru upp í liðum 12.4 og 12.6.2.
Leigumál.
Gjaldtaka fer eftir 16. gr. laga nr. 137/2019, um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
14. Leiguskrá.
14.1. Afrit leigusamninga úr leiguskrá 0 kr.
14.2. Skráning pappírssamninga í leiguskrá 0 kr.
Sameiginleg ákvæði.
Gjaldtaka óháð málaflokkum fer eftir 16. gr. laga nr. 137/2019, um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Tímagjald tekur mið af meðalkostnaði á hvern starfsmann að teknu tilliti til orlofs og virks vinnutíma. Miðað er við hefðbundin viðmið í rekstri fyrirtækja sem selja ráðgjafarþjónustu þar sem um 80% tíma eru útseldir. Á grundvelli þessa er meðalkostnaður á hverja klukkustund hjá HMS um 21.500 kr. en þróun á gjaldskrá hefur ekki fylgt launaþróun á undanförnum árum og gjaldið því lægra.
15. Tímagjald starfsmanna og útlagður kostnaður.
15.1. Vinna almenns starfsmanns á klukkustund 13.300 kr.
15.2. Vinna sérfræðings á klukkustund 19.400 kr.
Fyrir útkall eftir almennan opnunartíma eru innheimtir að lágmarki fjórir tímar á taxta almenns starfsmanns.
15.3. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
15.4. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun er heimilt að krefjast endurgreiðslu vegna útlagðs kostnaðar og kostnaðar vegna útseldrar vinnu.
16. Innheimta.
16.1. Eindagi gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er 14 dögum eftir útgáfu reiknings, nema annað sé tekið fram.
16.2. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.
16.3. Gjalddagar einstakra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eru eftirfarandi:
16.3.1. Gjalddagi lágmarksgjalds vegna byggingarleyfis er við móttöku umsóknar og gjalddagi byggingarleyfisgjalds við útgáfu byggingarleyfis, en þó áður en leyfi er gefið út. Dragi umsækjandi umsókn sína til baka eða umsókn er synjað er lágmarksgjald ekki endurgreitt. Falli byggingarleyfishafi frá notkun byggingarleyfis eða byggingarleyfi fellur úr gildi er lágmarksgjald og byggingarleyfisgjald ekki endurgreitt.
16.3.2. Gjalddagi úttektargjalda áfangaúttekta er við útgáfu byggingarleyfis en þó áður en leyfi er gefið út.
16.3.3. Vottorð og staðfestingar á úttektum skulu greidd við afhendingu þeirra.
16.3.4. Gjalddagi skoðunargjalds er samhliða beiðni um skoðun.
16.3.5. Gjalddagi annarra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er samkvæmt ákvæðum um einstök gjöld.
16.3.6. Gjöldum skv. 51. og 52. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki, fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laganna.
Ríkissáttasemjari.
Ríkissáttasemjari innheimtir engin þjónustugjöld.
Sjónstöðin.
Sjónstöðin innheimtir engin þjónustugjöld.
Tryggingastofnun.
Tryggingastofnun innheimtir engin þjónustugjöld.
Umboðsmaður skuldara.
Umboðsmaður skuldara innheimtir engin þjónustugjöld.
Úrskurðarnefnd velferðarmála.
Úrskurðarnefnd velferðarmála innheimtir engin þjónustugjöld.
Vinnueftirlitið.
Vinnueftirlitið hefur heimild til að innheimta þjónustugjöld fyrir skráningar og skoðanir á vinnuvélum og tækjum, sbr. 2. mgr. 49. gr. laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980. Auk þess hefur stofnunin heimild til að innheimta þjónustugjöld fyrir ýmiss konar mælingar, námskeið og próf, útgáfu skírteina, leyfa o.fl., sbr. 4. mgr. 74. gr. sömu laga.
Ráðherra hefur síðan kveðið nánar á um þetta í gjaldskrá fyrir sérstök eftirlits- og þjónustustörf Vinnueftirlits ríkisins, nr. 1600/2021. Fyrirkomulagið er þannig að hver tegund gjaldskyldra tækjaflokka og þjónustu ber ákveðinn einingafjölda sem kemur fram í viðauka I við gjaldskrána. Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. gjaldskrárinnar er fjárhæðin sem greiða skal fyrir hverja gjaldaeiningu ákveðin og er þeirri fjárhæð breytt árlega með auglýsingu að fenginni umsögn stjórnar stofnunarinnar. Var henni breytt síðast 29. desember síðastliðinn með auglýsingu nr. 1509/2025.
Þjónustugjöld – vinnuvélaskoðanir – verkleg próf – skírteini – þrýstiprófanir:
| Tegund | Flokkar | Heiti | Einingar | Gjald |
| AB | Kranar | Byggingakranar (turnkranar) > 18 tm | 13,6 | 43.706 kr. |
| AH | Kranar | Hafnarkranar, iðnaðarkranar > 18 tm | 17,1 | 54.954 kr. |
| BB | Kranar | Grindarbómukranar á beltum > 18 tm | 17,1 | 54.954 kr. |
| BG | Kranar | Grindarbómukranar á hjólum > 18 tm | 17,1 | 54.954 kr. |
| BH | Kranar | Hleðslukranar > 18 tm | 8,2 | 26.352 kr. |
| BS | Kranar | Vökvakranar með skotbómu > 18 tm | 10,2 | 32.779 kr. |
| CA | Kranar | Hafnarkranar < 18 tm | 6,9 | 22.174 kr. |
| CB | Kranar | Brúkranar | 8,2 | 26.352 kr. |
| CD | Kranar | Hlaupakettir, talíur og vöruvindur | 5,4 | 17.364 kr. |
| CI | Kranar | Iðnaðarkranar < 18 tm | 7,5 | 24.102 kr. |
| DA | Kranar | Farandkranar < 18 tm | 8,0 | 25.709 kr. |
| DK | Kranar | Körfukranar | 7,6 | 24.424 kr. |
| OS | Kranar | Steypudælukranar | 7,6 | 24.424 kr. |
| EA | Jarðvinnuvélar | Gröfur á hjólum m/360* snúningi | 6,7 | 21.632 kr. |
| EB | Jarðvinnuvélar | Gröfur á beltum | 6,7 | 21.632 kr. |
| EH | Jarðvinnuvélar | Gröfur á hjólum | 6,7 | 21.632 kr. |
| EK | Jarðvinnuvélar | Gröfur á hjólum, ekki fyrir umferð | 6,7 | 21.632 kr. |
| FB | Jarðvinnuvélar | Beltaskóflur | 6,7 | 21.632 kr. |
| FH | Jarðvinnuvélar | Hjólaskóflur | 6,7 | 21.632 kr. |
| GB | Jarðvinnuvélar | Jarðýtur | 6,1 | 19.603 kr. |
| GS | Aðrar vinnuvélar | Borvagnar, stærri gerð | 7,7 | 24.745 kr. |
| HV | Jarðvinnuvélar | Vegheflar | 7,0 | 22.496 kr. |
| IA | Lyftarar & flutningstæki | Lyftarar og flutningstæki – dráttartæki á flugvöllum | 4,6 | 14.783 kr. |
| IB | Aðrar vinnuvélar | Sópar, snjóplógar, snjóblásarar | 4,6 | 14.783 kr. |
| ID | Jarðvinnuvélar | Dráttarvélar með tækjabúnaði | 6,0 | 19.282 kr. |
| IF | Lyftarar & flutningstæki | Flutningatæki, t.d. dembarar sem fara hraðar en 30 km/klst, burðargeta > 5 t | 4,6 | 14.783 kr. |
| II | Aðrar vinnuvélar | Sérbúnar vinnuvélar í iðjuverum | 4,6 | 14.783 kr. |
| IM | Jarðvinnuvélar | Gröfur, ámokstursskóflur, minni gerð | 6,0 | 19.282 kr. |
| IS | Aðrar vinnuvélar | Snjótroðarar | 6,0 | 19.282 kr. |
| IT | Aðrar vinnuvélar | Dráttartöggar | 4,6 | 14.783 kr. |
| JF | Lyftarar & flutningstæki | Lyftitæki, fjölnota tæki lyftigeta < 5 t | 5,2 | 16.711 kr. |
| JL | Lyftarar & flutningstæki | Lyftarar og flutningstæki – lyftarar, lyftigeta > 1,2 t en < 10+, lyftihæð > 0,4 m og stjórnandi getur ferðast með |
4,3 | 13.819 kr. |
| JV | Lyftarar & flutningstæki | Lyftiverkpallar á flugvöllum | 5,2 | 16.711 kr. |
| KG | Lyftarar & flutningstæki | Lyftarar > 10 t lyftigeta | 6,0 | 19.282 kr. |
| KL | Lyftarar & flutningstæki | Lyftitæki, fjölnota tæki lyftigeta > 5 t | 6,0 | 19.282 kr. |
| LS | Jarðvinnuvélar | Valtarar, sjálfkeyrandi | 5,0 | 16.068 kr. |
| MM | Jarðvinnuvélar | Malbikunarvélar, fræsarar, sjálfkeyrandi | 3,8 | 12.212 kr. |
| NB | Aðrar lyftur | Bílalyftur | 7,0 | 22.496 kr. |
| NC | Aðrar lyftur | Bílalyftur, vökvaknúnar | 4,0 | 12.855 kr. |
| NF | Fólkslyftur | Fólkslyftur | 7,6 | 24.424 kr. |
| NF | Fólkslyftur | Fólkslyftur – úttekt á uppsetningu | 11,6 | 37.278 kr. |
| NG | Fólkslyftur | Fólks- og vörulyftur | 7,6 | 24.424 kr. |
| NG | Fólkslyftur | Fólks- og vörulyftur – úttekt á uppsetningu | 11,6 | 37.278 kr. |
| NH | Fólkslyftur | Hjólastólalyftur | 5,0 | 16.068 kr. |
| NH | Fólkslyftur | Fólkslyftur – hjólastólalyftur, stórskoðun | 6,3 | 20.246 kr. |
| NM | Fólkslyftur | Fólkslyftur – þjónustulyftur, burðargeta < 100 kg | 6,3 | 20.246 kr. |
| NR | Fólkslyftur | Rúllustigar | 7,6 | 24.424 kr. |
| NR | Fólkslyftur | Rúllustigar, stórskoðun | 7,6 | 24.424 kr. |
| NV | Aðrar lyftur | Vörulyftur | 6,3 | 20.246 kr. |
| NV | Aðrar lyftur | Vörulyftur, úttekt eftir uppsetningu | 6,3 | 20.246 kr. |
| NL | Aðrar lyftur | Lyftur sérstakrar gerðar | 7,6 | 24.424 kr. |
| OB | Aðrar lyftur | Togbrautir fyrir skíðafólk | 9,7 | 31.173 kr. |
| OS | Aðrar lyftur | Stólalyftur | 33,4 | 107.336 kr. |
| OT | Aðrar lyftur | Toglyftur | 15,9 | 51.097 kr. |
| PH | Kranar | Hleðslukranar < 18 tm | 8,2 | 26.352 kr. |
| RB | Jarðvinnuvélar | Borvagnar, minni gerð | 5,4 | 17.364 kr. |
| RM | Jarðvinnuvélar | Jarðborar, minni gerð | 5,4 | 17.364 kr. |
| RS | Jarðvinnuvélar | Jarðborar, stærri gerð | 10,2 | 32.779 kr. |
| SA | Aðrar vinnuvélar | Valtarar, sópar, plógar, blásarar o.fl., dregin tæki | 4,5 | 14.461 kr. |
| SB | Aðrar vinnuvélar | Lyfti- og vökvabúnaður ökutækja | 5,5 | 17.675 kr. |
| SD | Aðrar vinnuvélar | Garðúðunartæki og álíka búnaður | 4,5 | 14.461 kr. |
| SE | Aðrar vinnuvélar | Vélar tengdar ökutæki, minni gerð | 4,5 | 14.461 kr. |
| SF | Jarðvinnuvélar | Brjótar | 4,5 | 14.461 kr. |
| SH | Jarðvinnuvélar | Hörpur | 4,5 | 14.461 kr. |
| SI | Leiktæki | Stórar hringekjur, stærri tæki | 12,0 | 38.564 kr. |
| SJ | Leiktæki | Litlar hringekjur, minnitæki | 7,5 | 24.102 kr. |
| SK | Leiktæki | Leiktæki, minni gerð | 4,0 | 12.855 kr. |
| SL | Leiktæki | Leiktæki, minnsta gerð | 3,0 | 9.641 kr. |
| SM | Lyftarar & flutningstæki | Lyftitæki sem gengið er með eða staðið á palli, lyftigeta = 1.2, lyftihæð > 0,4 m og < 2,5 m | 3,5 | 11.248 kr. |
| SN | Lyftarar & flutningstæki | Lyftarar og flutningstæki – flutningatæki sem stjórnandi ferðast með, lyftigeta = 1000 kg, lyftihæð < 0,4 m | 3,5 | 11.248 kr. |
| VA | Kranar | Gámarammar | 4,0 | 12.855 kr. |
| VB | Aðrar lyftur | Aðrar lyftur – lyftiverkpallar < 150 kg lyftigeta | 3,0 | 9.641 kr. |
| VD | Kranar | Brettaskápar, herðatré | 3,5 | 11.248 kr. |
| VH | Aðrar lyftur | Körfur til að hífa fólk og lyfta fólki | 3,0 | 9.641 kr. |
| VL | Aðrar lyftur | Lyftiverkpallar > 150 kg lyftigeta og byggingarlyftur | 7,0 | 22.496 kr. |
| VP | Aðrar lyftur | Hengiverkpallar | 7,0 | 22.496 kr. |
| XA | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, aðalskoðun | 14,2 | 45.634 kr. |
| XA | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, reglubundin skoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| XB | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, aðalskoðun | 14,2 | 45.634 kr. |
| XB | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, reglubundin skoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| XD | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, aðalskoðun | 14,2 | 45.634 kr. |
| XD | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, reglubundin skoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| YA | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, aðalskoðun | 14,2 | 45.634 kr. |
| YA | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, reglubundin skoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| YB | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, aðalskoðun | 14,2 | 45.634 kr. |
| YB | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, reglubundin skoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| YD | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, aðalskoðun | 14,2 | 45.634 kr. |
| YD | Katlar og þrýstib | Þrýstihylki/farmgeymar, reglubundin skoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| ZA | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 1, stórskoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| ZA | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 1, ársskoðun | 9,7 | 31.173 kr. |
| ZB | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 2, stórskoðun | 20,0 | 64.273 kr. |
| ZB | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 2, ársskoðun | 12,0 | 38.564 kr. |
| ZD | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 3, stórskoðun | 38,0 | 122.119 kr. |
| ZD | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 3, ársskoðun | 21,5 | 69.094 kr. |
| ZE | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 4, stórskoðun | 38,0 | 122.119 kr. |
| ZE | Katlar og þrýstib | Eimkatlar 4, ársskoðun | 21,5 | 69.094 kr. |
| ZF | Katlar og þrýstib | Vatnshitunarkerfi | 5,0 | 16.068 kr. |
| ZG | Katlar og þrýstib | Neysluvatnshylki | 1,5 | 4.820 kr. |
| Z | Katlar og þrýstib | Gasmæling, 1. geymir | 7,6 | 24.424 kr. |
| Z | Katlar og þrýstib | Gasmæling, hver geymir umfram fyrsta | 1,1 | 3.536 kr. |
| Z | Katlar og þrýstib | Vottun á þrýstiraun | 4,0 | 12.855 kr. |
| Réttindi | Réttindi | Verklegt próf á vinnuvél | 3,5 | 11.248 kr. |
| Réttindi | Réttindi | Verklegt próf í notkun sprengiefna | 2,9 | 9.320 kr. |
| Réttindi | Réttindi | Útgáfa skírteina til stjórnunar farandvinnuvéla | 2,8 | 8.998 kr. |
| Réttindi | Réttindi | Endurútgáfa skírteina til stjórnunar farandvinnuvéla og færslu nýrra réttinda | 2,8 | 8.998 kr. |
| Skrá | Skráning | Skráning vinnuvélar | 10,0 | 32.137 kr. |
| Eig. | Eigendaskipti | Eigendaskipti vinnuvéla | 1,4 | 4.499 kr. |
| Réttindi | Réttindi | Nýtt ADR-skírteini, vottorð vegna starfsþjálfunar | 4,0 | 12.855 kr. |
| Réttindi | Réttindi | Endurútgáfa ADR-skírteina, vottorð vegna starfsþjálfunar | 4,0 | 12.855 kr. |
| Skrá | Skráning | Skráning lyfta í flokkum NF og NG | 5,5 | 17.675 kr. |
Útseld þjónusta og kaup á upplýsingum úr vinnuvélaskrá:
| Þjónusta | Gjald |
| Fyrirlestur sérfræðings 45–60 mín. | 61.200 kr. |
| Fyrirlestur sérfræðings 2 tímar | 91.600 kr. |
| Fyrirlestur sérfræðings 3 tímar | 110.000 kr. |
| Endurtekinn fyrirlestur hjá sama aðila 45–60 mín. | 40.200 kr. |
| Tímagjald sérfræðings | 14.300 kr. |
| Stakar mælingar | 40.800 kr. |
| Mælingar í heilan dag | 74.100 kr. |
| Hávaðamæling | 12.870 kr. |
| Ljósmæling | 12.870 kr. |
| Inniloftsmæling – einn dagur | 12.870 kr. |
| Inniloftsmæling – ein vika | 22.540 kr. |
| Staðfesting á erlendum réttindum | 10.926 kr. |
| Aðgangsgjald að rafrænum aðgangi | 310.900 kr. |
| Rafrænn aðgangur, hvert skráningarnúmer | 22 kr. |
| Rafrænn aðgangur, hver kennitala | 560 kr. |
| Listi yfir ákveðinn flokk vinnuvéla/tækja | 12.030 kr. |
| Listi yfir alla flokka vinnuvéla/tækja | 18.050 kr. |
| Markaðstölur vikunnar | 9.130 kr. |
| Markaðstölur mánaðarins | 12.350 kr. |
| Markaðstölur ársins | 18.050 kr. |
Forsendur útreiknings á þjónustugjaldi:
Rekstrarframlag Vinnueftirlitsins er tvískipt, annars vegar ríkisframlag sem ákveðið er á fjárlögum hvers árs og hins vegar áðurnefndar gjaldskrártekjur. Ríkisframlaginu er ætlað að fjármagna vettvangsathuganir og stafræn samskipti auk eftirlits með brotastarfsemi á vinnumarkaði, starfsmannaleigum og útsendum starfsmönnum.
Á árinu 2021 var settur á fót starfshópur skipaður fulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins, félagsmálaráðuneytisins og Vinnueftirlitsins þar sem markmiðið var að kostnaðargreina gjaldskrá stofnunarinnar og skýra betur hvaða þjónustu gjaldið eigi að standa undir.
Niðurstöður greiningarinnar lágu fyrir í árslok 2021 eftir að búið var að tímamæla einstaka aðgerðir sem þarf til að sinna hverri þjónustu að teknu tilliti til þess kostnaðar sem þarf til að sinna þjónustunni. Gerðar voru nokkrar mælingar en miðgildi hverrar mælingar látið gilda sem viðmið hverju sinni.
Niðurstaða þessarar greiningar var sú að fjöldi gjaldeininga var leiðréttur bæði til lækkunar og hækkunar eftir því sem við átti. Verði fyrir gjaldeiningu var haldið óbreyttu fyrir árið 2022 en fjöldi gjaldeininga breyttist til leiðréttingar. Þessi útreikningur er síðan endurskoðaður á hverju ári á sama tíma og unnið er að áætlun fyrir næsta ár.
Gjöld vegna skoðana og nýskráningar á vinnuvélum og tækjum, gjöld vegna verklegra prófa á vinnuvélar og útgáfu og endurnýjunar skírteina eru tekjur sem eiga að standa undir kostnaði vegna þeirrar starfsemi stofnunarinnar er lýtur að skoðunum vinnuvéla og tækja og starfsemi þeim tengdri. Gjaldskrá stofnunarinnar hefur engu að síður einungis einu sinni verið breytt í samræmi við forsendur fjárlaga frá árinu 2019 en það var fyrir árið 2021. Öll hin árin hefur gjaldskrá stofnunarinnar verið samþykkt með mismun upp á -0,5% til -5,9% frávik frá forsendum fjárlaga um hækkanir á gjaldskrá fyrir hlutaðeigandi ár. Ástæður þessa hafa verið aðgerðir stjórnvalda til að styðja við markmið gerðra kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins um að halda hækkunum á gjaldskrám hins opinbera í lágmarki í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda þar um. Hefur því þessi hluti rekstursins verið vanfjármagnaður en það bætt upp með ríkisframlagi.
Flest þeirra námskeiða sem Vinnueftirlitið heldur á grundvelli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum eru netnámskeið. Við kostnaðarmat þeirra námskeiða sem stofnuninni ber að halda en eru einnig kennd af einkaaðilum var horft til þeirra fjárfestinga sem voru í stafvæðingu námskeiðanna, reiknuð hlutdeild þeirra í kostnaði við fræðslustarfsemi stofnunarinnar, viðhalds kerfanna og árlegs kostnaðar við notkunar á námskeiðskerfi sem rekið er af einkaaðila (Akademias).
Þegar þetta er reiknað saman kemur í ljós að endurgreiðslutími þessara námskeiða er u.þ.b. þrjú ár. Stofnunin gerir sem sagt ráð fyrir að ráðast í töluverðan kostnað við endurskoðun á námsefninu á þriggja ára fresti að meðaltali.
Hér á eftir er listi yfir þau námskeið sem eru í boði hjá Vinnueftirlitinu í dag.
Námskeið – yfirlit – kostnaður:
| Tegund námskeiðs | Verð |
| ADR grunnnámskeið | 82.800 kr. |
| ADR sprengifim efni | 23.300 kr. |
| ADR tankar | 50.000 kr. |
| ADR geislavirk efni | 23.300 kr. |
| ADR endurmenntun, grunnnámskeið | 34.300 kr. |
| ADR endurmenntun, sprengifimur farmur | 23.300 kr. |
| ADR endurmenntun, tankanámskeið | 26.500 kr. |
| ADR endurmenntun, geislavirk efni (flokkur 7) | 23.300 kr. |
| Almenn sprengiefnanámskeið | 140.900 kr. |
| Meðhöndlun asbests | 23.900 kr. |
| Frumnámskeið | 57.400 kr. |
| Byggingakrananámskeið | 51.800 kr. |
| ÖT/ÖV námskeið | 41.400 kr. |
| Þjónustuaðilar í vinnuvernd | 117.600 kr. |
Vinnumálastofnun.
Vinnumálastofnun innheimtir engin þjónustugjöld.