Ferill 382. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1503 — 382. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.
Félagsmálaráðuneytið tók til starfa 1. janúar 2019 og miðast svar ráðuneytisins við það.
Í eftirfarandi töflu má sjá yfirlit yfir fjármuni sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið og undirstofnanir hafa veitt til loftslagsmála á umræddu tímabili. Fjárhæðir eru í þúsundum króna.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | |
| Félags- og húsnæðismálaráðuneytið | 147 | 220 | 615 | 517 | 789 | 1.168 | 1.598 | ||
| Húsnæðis- og mannvirkjastofnun | 1.462 | 56.984 | 72.688 | 100.017 | 128.809 | 77.933 | |||
| Tryggingastofnun ríkisins | 632 | 623 | 498 | 524 | 770 | 816 | 1.784 | 1.894 | 1.375 |
| Vinnumálastofnun | 831 | 552 | 678 | 1.188 | 2.601 | 3.030 | 3.372 | 3.692 | 3.456 |
| Vinnueftirlitið | 561 | 560 | 740 | 775 | 89 | 353 | 319 | 385 | 1.696 |
| Ríkissáttasemjari | |||||||||
| Gæða- og eftirlitsstofnun ríkisins | |||||||||
| Umboðsmaður skuldara | 128 | 93 | 4 | 200 | 200 | 11 | |||
| Sjónstöðin | 124 | 208 | 257 | 333 | 223 | ||||
| Úrskurðarnefnd velferðarmála |
2. Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
a. skattstyrkjum,
b. aðgerðum í samgöngum,
c. aðgerðum í landbúnaði,
d. öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
a. Engir skattstyrkir hafa verið veittir af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu eða stofnunum þess.
b. Aðgerðir í samgöngum. Fjárhæðir eru í þúsundum króna:
| Stofnun | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Félags- og húsnæðismálaráðuneytið | 147 | 220 | 615 | 517 | 789 | 1.168 | 1.598 | ||
| Húsnæðis- og mannvirkjastofnun | 962 | 1.284 | 2.388 | 4.017 | 5.109 | 5.633 | |||
| Tryggingastofnun ríkisins | 632 | 623 | 498 | 524 | 738 | 808 | 1.784 | 1.717 | 1.375 |
| Vinnumálastofnun | 831 | 552 | 678 | 1.188 | 2.601 | 3.030 | 3.372 | 3.692 | 3.456 |
| Vinnueftirlitið | 561 | 560 | 740 | 775 | 89 | 353 | 319 | 385 | 1.696 |
| Umboðsmaður skuldara | 128 | 93 | 4 | 11 | |||||
| Sjónstöðin | 24 | 108 | 157 | 233 | 123 |
c. Engir fjármunir hafa runnið til aðgerða í landbúnaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu eða stofnunum á umræddu tímabili.
d. Aðrar beinar aðgerðir, svo sem styrkveitingar og kaup á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka. Fjárhæðir eru í þúsundum króna:
| Stofnun | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Húsnæðis- og mannvirkjastofnun | 500 | 55.700 | 70.300 | 96.000 | 123.700 | 72.300 | |||
| Tryggingastofnun ríkisins | 32 | 8 | 177 | ||||||
| Umboðsmaður skuldara | 200 | 200 | |||||||
| Sjónstöðin | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 |
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið heldur utan um árangur af loftslagsaðgerðum og svarar þessum hluta fyrirspurnarinnar fyrir hönd félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
4. Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
| Viðtakandi | Skýring |
| Auður Ástráðsdóttir | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Basalt arkitektar | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Bjarkarlækur ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Efla hf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Félagsbústaðir | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| GeoMaterials | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Gerosion ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Grænni byggð | Askur mannvirkjarannsóknasjóður Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Háskóli Íslands | Askur mannvirkjarannsóknasjóður Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Háskólinn í Reykjavík | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Húsasmiðjan | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Iða ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Laufin ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Mannvit hf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Miðstöð hönnunar og arkitektúrs | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Narfi Þorsteinsson | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Rockpore ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Rækt ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Sei ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Skógræktarfélag Reykjavíkur | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Steypustöðin | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Tandraorka ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Transition Labs | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Tæknisetur | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Ventum ehf | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Verkís | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Verkvinnslan í Gufunesi | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| Visttorg ehf. | Askur mannvirkjarannsóknasjóður |
| VSÓ ráðgjöf | Askur mannvirkjarannsóknasjóður Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Verkvist | Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Ríkiskaup | Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Ólafur Ögmundarson | Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Arkís | Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |
| Nordic Eco-Innovation | Byggjum grænni framtíð – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 |