Ferill 452. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1505  —  452. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um skýrslur um matvælabirgðir og mælaborð um fæðuöryggi.


     1.      Eru tvær skýrslur sem kynntar voru á málþingi ráðherra 27. nóvember sl. um fæðuöryggi ritrýndar, þ.e. skýrsla um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu og skýrsla um tillögur að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi?
    Skýrsla um tillögur að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi og skýrsla um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu voru unnar á vegum Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands annars vegar og Landbúnaðarháskóla Íslands hins vegar. Farið var eftir hefðbundnu ferli háskólanna tveggja við útgáfu/skil skýrslna í nafni þeirra.

     2.      Hvað stóð vinnsla skýrslnanna yfir lengi og hvernig var ferlið við að velja aðila í verkið?
    Skýrslur sem þessar hafa ekki verið unnar hérlendis áður og leitað var til háskóla til að vinna verkefnið. Bakgrunnur verkefnanna er skýrsla starfshóps forsætisráðuneytisins um neyðarbirgðir sem kom út árið 2022.
    Skýrsla um tillögur að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi var unnin á tímabilinu nóvember 2024 til loka júní 2025.
    Skýrsla um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu var unnin á tímabilinu september 2024 til desember 2024.

     3.      Voru gerðir skriflegir samningar um verkin þar sem kveðið var á um eftirfylgni? Ef svo er, hvernig fór sú eftirfylgni fram?
    Það var gerður samningur um tillögugerð á sviði neyðarbirgða matvæla við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
    Skýrsla um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu var unnin á grundvelli samnings atvinnuvegaráðuneytisins og Landbúnaðarháskóla Íslands um þjónustu á sviði rannsókna, þróunarvinnu og sérhæfðrar ráðgjafar.
    Ekki var kveðið á um eftirfylgni í samningunum sjálfum en skýrsluhöfundar voru fengnir til þess að kynna niðurstöður skýrslnanna og var haldið málþing í nóvember 2025 þar sem skýrslurnar tvær voru kynntar ásamt mælaborði um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi.
    Það er síðan í höndum atvinnuvegaráðuneytisins að fylgja skýrslunum eftir og meta næstu skref.

     4.      Hver var heildarkostnaður við gerð skýrslnanna tveggja, sundurliðaður eftir skýrslum, hverjir fengu greitt, hve mikið og fyrir hvað?
    Skýrsla um tillögur að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi var unnin af Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Samkvæmt samningnum var heildargreiðsla 8.000.000 kr. og var greitt fyrir þá vinnu að móta tillögur að tegundum og magni neyðarbirgða matvæla sem þyrftu að vera til staðar í landinu ef aðfangakeðjur rofna eða landið lokast í ákveðinn skilgreindan tíma.
    Skýrsla um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu var unnin á grundvelli samnings atvinnuvegaráðuneytisins og Landbúnaðarháskóla Íslands um þjónustu á sviði rannsókna, þróunarvinnu og sérhæfðrar ráðgjafar. Verkefnið var að fjalla um hvaða neyðarbirgðir er nauðsynlegt að hafa í landinu til að matvælaframleiðsla geti staðið af sér tímabundna röskun á aðföngum.

     5.      Hve langan tíma tók að útbúa mælaborð um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi sem kynnt var á sama málþingi og hvernig var ferlið við að velja aðila í verkið?
    Yfirlit um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi (mælaborð) var unnið á tímabilinu mars 2025 til júní 2025. Leitað var til ráðgjafafyrirtækisins Nordic Insights um gerð mælaborðsins. Með því starfaði rýnihópur skipaður sérfræðingum Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla Íslands og atvinnuvegaráðuneytisins.

     6.      Voru gerðir skriflegir samningar um gerð mælaborðsins þar sem kveðið var á um eftirfylgni? Ef svo er, hvernig fór sú eftirfylgni fram?
    Það var gerður samningur við ráðgjafafyrirtækið Nordic Insights um gerð yfirlits um stöðu fæðuöryggis. Það var ekki kveðið sérstaklega á um eftirfylgni en fulltrúi fyrirtækisins var fenginn til að kynna yfirlitið/mælaborðið m.a. á málþingi sem haldið var í nóvember 2025.

     7.      Hver var heildarkostnaður við gerð mælaborðsins, sundurliðaður eftir því hverjir fengu greitt, hve mikið og fyrir hvað?
    Heildarkostnaður við gerð mælaborðsins var 3.480.000 kr. og var upphæðin greidd til fyrirtækisins Nordic Insights samkvæmt samningnum.

     8.      Hvernig hyggst ráðuneytið nýta umrætt mælaborð og hverjir aðrir geta nýtt sér það?
    Mælaborðið er opið öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér efni þess og fylgjast með þróun þeirra lykilþátta sem eru settir fram. Mælaborðið var unnið á þeim forsendum að auðvelt sé að uppfæra það árlega. Mælaborðið auðveldar ráðuneytinu og öðrum hagaðilum að fylgjast með þróun helstu þátta fæðuöryggis, stöðu þeirra og horfum. Mælaborðið verður nýtt í verkefnum ráðuneytisins sem fram undan eru við að efla fæðuöryggi og styrkja áfallaþol matvælaframleiðslu á Íslandi.