Ferill 668. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1506  —  668. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Heiðbrá Ólafsdóttur um íslenskan landbúnað og ESB.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er unnið að áætlun í ráðuneytinu um að Ísland fylgi markmiðum ESB í landbúnaði? Ef svo er, með hvaða hætti? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?

    Atvinnuvegaráðuneytið vinnur ekki að áætlun um að Ísland fylgi markmiðum Evrópusambandsins í landbúnaði. Ástæða þess er að landbúnaður fellur almennt ekki undir gildissvið samnings um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn) þar sem samningurinn nær fyrst og fremst til innri markaðarins og fjórfrelsisins. Sameiginleg landbúnaðarstefna Evrópusambandsins (CAP) fellur því utan við gildissvið EES-samningsins. Viðskipti með tilteknar landbúnaðarvörur eru þó hluti af EES-samningnum, þar sem m.a. er kveðið á um frjálst flæði tiltekinna landbúnaðarafurða og vara sem tilgreindar eru í samningnum og viðaukum við hann, sbr. 3. mgr. 8. gr. samningsins, 19. gr. samningsins og bókun 3 um unnar landbúnaðarafurðir.