Ferill 721. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1507 — 721. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um eftirlit með lífeyrisgreiðslum.
1. Hefur Tryggingastofnun ríkisins heimild til að fylgjast með því hvort lífeyrisgreiðslur til fólks af erlendum uppruna séu með reglubundnum hætti fluttar úr landi, t.d. með aðgangi að banka- eða greiðslukortaupplýsingum? Hafa stjórnvöld annars staðar á Norðurlöndunum, t.d. í Noregi og Svíþjóð, heimild til slíks eftirlits og ef svo er, hyggja íslensk stjórnvöld á laga- eða reglugerðarbreytingar til að fá sambærilega heimild?
Þegar lífeyrir hefur verið greiddur til lífeyrisþega telst hann eign viðkomandi og hefur viðkomandi þá fullan einkaréttarlegan ráðstöfunarrétt yfir þeim fjármunum. Tryggingastofnun hefur því ekki heimildir til að fylgjast með því hvort lífeyrisgreiðslur til fólks af erlendum uppruna séu með reglubundnum hætti fluttar úr landi.
Ráðuneytinu er ekki kunnugt um hvort stjórnvöld annars staðar á Norðurlöndum hafi heimildir til slíks eftirlits.
2. Hver er árlegur heildarfjöldi mála sem Tryggingastofnun ríkisins opnaði á árunum 2010–2025 vegna gruns um bótasvik, ofgreiðslu bóta eða annars konar frávika, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
Í eftirfarandi töflu má sjá árlegan heildarfjölda mála sem Tryggingastofnun opnaði á árunum 2010–2025 vegna gruns um bótasvik, ofgreiðslu bóta eða annars konar frávika, sundurliðað eftir upprunalandi. Jafnframt liggja fyrir upplýsingar um hvernig heildarfjöldi mála á hverju ári skiptist milli karla og kvenna, sbr. töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.