Ferill 726. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1508 — 726. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um örorkulífeyris-, sjúkra- og endurhæfingargreiðslur eftir upprunalandi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir einstaklingar á vinnualdri, 18–66 ára, voru búsettir á Íslandi árin 2021– 2025, sundurliðað eftir ári, upprunalandi (eða fæðingarlandi eftir þeirri flokkun sem stjórnvöld nota), kyni og aldri?
2. Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu örorkulífeyri frá Tryggingastofnun árin 2021–2025, sundurliðað eins og að framan?
3. Hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum vinnualdri fengu sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur (áður endurhæfingarlífeyri) frá Tryggingastofnun árin 2021–2025, sundurliðað eins og að framan?
Í fylgiskjali 1 má sjá hversu margir einstaklingar á aldrinum 18–66 ára voru búsettir á Íslandi árin 2021–2025, sundurliðað eftir ári og upprunalandi. Jafnframt má í fylgiskjali 1 sjá hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum aldri fengu greitt meira en eina krónu í örorkulífeyri frá Tryggingastofnun á sama tímabili, sundurliðað eftir ári og upprunalandi. Loks má í fylgiskjali 1 sjá hversu margir einstaklingar á fyrrgreindum aldri fengu greitt meira en eina krónu í sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur (áður endurhæfingarlífeyri) frá Tryggingastofnun á sama tímabili, sundurliðað eftir ári og upprunalandi. Í fylgiskjali 2 má sjá upplýsingar um fjölda einstaklinga á fyrrgreindum aldri sem fengu greitt meira en eina krónu í örorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá Tryggingastofnun á sama tímabili, sundurliðað eftir kyni og aldri.
Fylgiskjal 1.
Fjöldi einstaklinga á aldrinum 18–66 ára, sundurliðað eftir ári og upprunalandi.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1508-f_I.pdf
Fylgiskjal 2.
Fjöldi einstaklinga á aldrinum 18–66 ára, sundurliðað eftir kyni og aldri.