Ferill 700. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1509  —  700. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum.


     1.      Hvernig var staðið að vali á höfundum skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum?
    Ráðuneytið hafði samband við eftirtalda aðila um þátttöku í sérfræðingahópi sem falið var að skila skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum:
    Hélène Rey, prófessor við London Business School,
    Silvana Tenreyro, prófessor við London School of Economics,
    Torben Andersen, prófessor við Árósaháskóla, og
    Catherine L. Mann, prófessor við Brandeis-háskóla og ytri meðlim í peningastefnunefnd Englandsbanka.
    Að loknum viðræðum við ofangreinda aðila var gerður samningur við Catherine L. Mann. Það var hlutverk Catherine, sem formanns hópsins, að setja hann saman að öðru leyti. Ráðuneytið gerði þó kröfu um að a.m.k. einn meðlimur sérfræðingahópsins þyrfti að koma frá Norðurlöndum.

     2.      Hverjir fengu að koma athugasemdum til höfunda við gerð skýrslunnar?
    Seðlabanki Íslands og fjármála- og efnahagsráðuneytið fengu að koma athugasemdum til höfunda við gerð skýrslunnar, á meðan hún var á vinnslustigi.

     3.      Hvaða athugasemdir, ef einhverjar, bárust skýrsluhöfundum? Svar óskast sundurliðað eftir umsagnaraðilum.
    Ráðuneytið sendi athugasemdir við hvern kafla skýrslunnar, sem sýndar eru í fylgiskjali. Athugasemdir ráðuneytisins sneru meðal annars að því að greining á sveiflum virtist ráðast um of af fjármálahruninu og að ekki væri tekið nægilegt tillit til umbóta sem gerðar voru í kjölfarið. Þá gerði ráðuneytið athugasemdir við túlkun tölfræðigreiningar skýrslunnar og óskaði eftir betri rökstuðningi fyrir ýmsum staðhæfingum.
    Seðlabanki Íslands sendi einnig athugasemdir til skýrsluhöfunda sem sýndar eru í fylgiskjali.
    Skýrsluhöfundar höfðu fullt forræði á verkefninu samkvæmt samningnum og það var þeirra að ákveða að hvaða marki tekið var tillit til athugasemda sem bárust.

     4.      Hver var kostnaðurinn við gerð skýrslunnar?
    Kostnaður við gerð skýrslunnar var 190 þúsund evrur, jafnvirði ríflega 27 milljóna íslenskra króna. Að auki voru fimm þúsund pund greidd fyrir uppsetningu á skýrslunni, jafnvirði ríflega 800 þúsund króna. Um er að ræða launakostnað sérfræðinganna vegna verkefnisins. Hver um sig fékk 40 þúsund evrur fyrir vinnuna utan formanns sem fékk 70 þúsund evrur. Vinnan við skýrsluna stóð yfir í um ár.


Fylgiskjal I.

Athugasemdir fjármála- og efnahagsráðuneytisins.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1509-f_I.pdf


Fylgiskjöl II og III.

Athugasemdir Seðlabanka Íslands.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1509-f_II.pdf

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1509-f_III.pdf