Ferill 541. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1510  —  541. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um áhrif hækkana almannatrygginga á örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum.


     1.      Hefur verið gerð ný greining á áhrifum víxlverkunar greiðslna almannatrygginga og örorkulífeyris úr lífeyrissjóðum í kjölfar eða samhliða samþykkt laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026, nr. 99/2025?
    Ný greining á áhrifum hefur ekki verið gerð.

     2.      Hvaða áhrif mun framlenging gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sem varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða til loka ársins 2026 sem samþykkt var á Alþingi í desember 2025, lög nr. 99/2025, hafa á:
                  a.      Árleg útgjöld ríkissjóðs?
                  b.      Tekjur örorkulífeyrisþega til lækkunar/hækkunar?
                  c.      Útgjöld lífeyrissjóða?

    a. Í upphaflegu mati á áhrifum ákvæðis til bráðabirgða XI í lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, var gert ráð fyrir að framlenging ákvæðisins gæti komið í veg fyrir allt að 2 ma.kr. árlega aukningu útgjalda ríkissjóðs vegna víxlverkunar greiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða. Verði gildistími ákvæðisins framlengdur að nýju má gera ráð fyrir sambærilegum áhrifum á ríkissjóð. Að þessu sögðu er þó bent á að endanlegt umfang mun taka mið af greiðslufjárhæðum almannatrygginga sem gilda á viðkomandi ári, fjölda þeirra sem fá greiðslur bæði frá almannatryggingum og lífeyrissjóðum, fjárhæðum greiðslna úr lífeyrissjóðum og tekjutengingu greiðslna almannatrygginga.
    b. Framlenging gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI í lögum nr. 129/1997, sem samþykkt var með lögum nr. 99/2025, hefur þau áhrif að áfram er komið í veg fyrir að almenn hækkun greiðslna úr almannatryggingum leiði til samsvarandi lækkunar örorkulífeyrisgreiðslna úr lífeyrissjóðum. Markmið framlengingarinnar er að verja þá örorkulífeyrisþega sem fá bæði greiðslur úr almannatryggingum og lífeyrissjóðum fyrir neikvæðri víxlverkun milli kerfanna. Án framlengingar myndi almenn hækkun bóta almannatrygginga skila sér verr til sumra bótaþega þar sem greiðslur úr lífeyrissjóðum gætu lækkað á móti. Heildaráhrifin eru því að stuðla að því að hækkun greiðslna úr almannatryggingum komi fram sem raunveruleg tekjuaukning hjá þeim hópi sem annars hefði getað orðið fyrir skerðingu greiðslna frá lífeyrissjóðum vegna samspils kerfanna.
    c. Áhrif á lífeyrissjóði eru þau að þeir geta ekki lækkað greiðslur sínar til örorkulífeyrisþega vegna þeirra almennu hækkana sem ákvæðið tekur til. Þar með verða útgjöld lífeyrissjóða hærri en þau hefðu orðið ef sjóðirnir mættu taka fullt tillit til hækkana frá almannatryggingum. Gera má ráð fyrir að áætlaður kostnaður af framlengingu gildistíma ákvæðisins sé í kringum 1,5 ma.kr.

     3.      Felur breytingin í sér að lífeyrissjóðum sé með öllu óheimilt að láta hækkanir sem urðu á örorkulífeyrisgreiðslum hinn 1. september 2025 samkvæmt lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, leiða til lækkunar á örorkulífeyrisgreiðslum til sjóðfélaga úr lífeyrissjóðum? Ef ekki, hvernig takmarkast þá heimild lífeyrissjóða til að lækka örorkulífeyrisgreiðslur vegna hækkananna 1. september 2025?
    Með framlengingu á ákvæði til bráðabirgða XI í lögum nr. 129/1997 var lífeyrissjóðum áfram gert óheimilt að láta almennar hækkanir sem verða á greiðslum úr almannatryggingakerfinu til örorkulífeyrisþega hafa áhrif á útreikninga og greiðslur örorkulífeyris til sjóðfélaga. Vegna breytinga á kerfi almannatrygginga 1. september 2025, sem fól m.a. í sér hækkun á greiðslum til örorkulífeyrisþega, er í ákvæðinu annars vegar kveðið á um tiltekið meðaltalshlutfall á hækkun greiðslna til þessa hóps og hins vegar meðaltalshækkun 1. janúar 2026 miðað við forsendur fjárlaga. Ef ekkert hefði verið aðhafst lá fyrir að hluti af auknum framlögum úr ríkissjóði vegna nýs kerfis almannatrygginga myndi lækka útgjöld lífeyrissjóða í stað þess að hækka tekjur þeirra sem fá örorkulífeyri almannatrygginga og hafa jafnframt réttindi til örorkulífeyris úr lífeyrissjóðakerfinu.

     4.      Með 21. gr. laga nr. 99/2025 var almenn hækkun skilgreind sem 5,8% hækkun 1. september 2025 og 5,2% hækkun 1. janúar 2026 á grundvelli tillagna sem komu fram í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Hvernig var hlutfallið 5,8% ákvarðað?
    Hlutfallið 5,8% byggist á samanburði á fjárhæðum örorkulífeyris fyrir og eftir breytingu á örorkukerfi almannatrygginga þann 1. september 2025. Við þann samanburð var horft til mismunandi samsetningar greiðslna, eftir því hvort greiðslur fólu meðal annars í sér aldursviðbót og/eða heimilisuppbót. Útreikningarnir sýndu að hækkunin var mismunandi eftir samsetningu greiðslna. Í þeim tilvikum sem lögð voru til grundvallar lá hækkunin á bilinu 1,8% til 8,6%. Meðaltal þeirra hækkana nam 5,8%. Talan 5,8% lýsir því ekki einni samræmdri hækkun allra greiðslna til örorkulífeyrisþega, heldur meðaltalshækkun sem leidd var af samanburði á greiðslum fyrir og eftir kerfisbreytinguna. Þar sem réttindi og greiðslusamsetning bótaþega geta verið mismunandi getur hækkun hjá einstökum bótaþegum verið önnur en 5,8%. Hlutfallið endurspeglar þannig mat á almennri hækkun greiðslna örorkulífeyris úr almannatryggingakerfinu við innleiðingu nýs örorkukerfis en ekki fasta hækkun sem gildir með sama hætti um allar einstakar greiðslur.