Ferill 610. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1511 — 610. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um rekstrarkostnað og arðsemismat.
1. Hver er áætlaður rekstrarkostnaður almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2026 til ársins 2035?
Vísað er til yfirlits um rekstraráætlun almenningssamgangna í fylgiskjali 1.
2. Hver var rekstrarkostnaður Vegagerðarinnar árin 2015–2025 og hver er áætlaður rekstrarkostnaður 2026–2030?
Rekstrarkostnaður Vegagerðarinnar er birtur í töflu 2 í fylgiskjali 2. Farið er yfir helstu forsendur á bls. 2–3 í sama fylgiskjali.
3. Hver var rekstrarkostnaður Betri samgangna árin 2015–2025 og hver er áætlaður rekstrarkostnaður 2026–2030?
Betri samgöngur ohf. voru stofnaðar með lögum frá Alþingi árið 2020 og rekstur hófst árið 2021. Rekstrarkostnaður fyrirtækisins, raunkostnaður samkvæmt ársreikningum 2021–2025 og áætlun til ársins 2030, er birtur í töflu 1 í fylgiskjali 2.
4. Hverjar voru helstu forsendur arðsemismatsins? Hér er átt við tekjur og gjöld, bæði á framkvæmdatíma og eftir að innviðir hafa verið byggðir.
Við uppfærslu samgöngusáttmálans, sem lauk í ágúst 2024, var unnin félagshagfræðileg greining til að meta arðsemi allra stofnvegaverkefna og borgarlínuverkefna í heild sinni m.v. uppfærðar kostnaðar- og tímaáætlanir fyrirhugaðra verkefna sáttmálans til 2040.
Greiningin hefur ekki verið þýdd á íslensku en hana má finna á vef Stjórnarráðsins. Greining á arðsemi, þ.e. samfélagslegum ábata af verkefnasafni samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, á móti stofn- og rekstrarkostnaði við verkefnin var unnin af COWI með samræmdri, alþjóðlegri aðferðafræði og nýjustu útgáfu reiknilíkans frá danska samgönguráðuneytinu. Aðferðafræðin og arðsemislíkanið voru innleidd hérlendis 2013 og áður beitt t.d. við greiningu á Sundabraut (2021), fyrstu lotu Borgarlínu (2020) og hagrænt mat á framtíð áætlunarflugs innan lands (2014).
Í greiningunni er stofnkostnaður allra verkefna sáttmálans, auk rekstrar og viðhalds nýrra innviða, metinn á móti reiknuðum ábata samfélagsins af nýjum innviðum yfir 50 ára tímabil. Í töflu 5.1 í fylgiskjali 3 eru upplýsingar um áætlaðan stofnkostnað verkefna sáttmálans á verðlagi 2023 sem lágu til grundvallar. Í greiningunni er notað svokallað P85-gildi úr kostnaðaráætlunum hverrar framkvæmdar sem er hærri áætlun en P50-gildi sem birt er í greinargerð viðræðuhóps og framkvæmdatöflu. Í töflu 5.1 eru upplýsingar um áætlaðan rekstrarkostnað innviða sáttmálans og aukna þjónustu almenningssamgangna með innleiðingu nýs leiðanets með Borgarlínu- og strætisvögnum.
Á móti stofn- og rekstrarkostnaði er metinn fjárhagslegur ábati af verkefnum sáttmálans í formi styttri ferðatíma, minni umferðartafa, aukins umferðaröryggis, minni umhverfisáhrifa og fleiri þátta. Ferðatími og tímavirði vega þar þyngst. Áætlaðar fargjaldatekjur almenningssamgangna, á móti rekstrarkostnaði, eru birtar í töflu 6.1 í fylgiskjali 3.
Tímavirði er reiknað með samræmdri alþjóðlegri aðferðafræði á grundvelli meðallauna á viðkomandi svæði og kaupmáttar.
Fylgiskjal I.
Rekstraráætlun almenningssamgangna – nýtt leiðanet með Borgarlínu (2024).
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1511-f_I.pdf
Fylgiskjal II.
Rekstrarkostnaður Betri samgangna og Vegagerðarinnar.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1511-f_II.pdf
Fylgiskjal III.
Áætlaður stofnkostnaður framkvæmda – þjóðhagslegur ábati.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1511-f_III.pdf