Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1512  —  544. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um fjölda einstaklinga frá MENAP-löndum.


     1.      Hvað eru margir einstaklingar frá MENAP-löndum (Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Afganistan og Pakistan) á aldrinum 18–67 ára nú búsettir á Íslandi?
    Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands eru samtals 2.034 einstaklingar frá MENAP-löndum skráðir með lögheimili á Íslandi. Við úrvinnslu fyrirspurnarinnar var stuðst við skilgreiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) á MENAP-ríkjum.

Miðausturlönd
BH Barein
IR Íran
IQ Írak
JO Jórdanía
QW Kúveit
LB Líbanon
OM Óman
QA Katar
SA Sádi-Arabía
SY Sýrland
AE Sameinuðu arabísku furstadæmin (UAE)
YE Jemen
Norður-Afríka
DZ Alsír
DJ Díbútí
EG Egyptaland
LY Líbía
MA Marokkó
MR Máritanía
SO Sómalía
SD Súdan
TN Túnis
Afganistan og Pakistan
AF Afganistan
PK Pakistan

     2.      Hversu margir þeirra hafa búið hér í þrjú ár eða lengur?
    Alls hafa 1.169 af þeim 2.034 einstaklingum sem skráðir eru með lögheimili á Íslandi búið hérlendis í þrjú ár eða lengur.