Ferill 722. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1513  —  722. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um fjárhæð lífeyrisréttinda og fjölda lífeyrisþega.


     1.      Hver var árleg heildarfjárhæð örorkulífeyris, endurhæfingarlífeyris eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslna á tímabilinu 2010–2025, þ.m.t. öll viðbótarréttindi sem tengjast þessum bótaflokkum, svo sem heimilisuppbót, barnalífeyrir og bifreiðatengdir bótaflokkar, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
    Í töflu 1.1 (fylgiskjal 1) má sjá árlega heildarfjárhæð örorkulífeyris, endurhæfingarlífeyris og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna sem greidd var á tímabilinu 2010–2025, að meðtöldum öllum viðbótarréttindum sem tengjast þessum bótaflokkum, sundurliðað eftir upprunalandi þeirra sem fengu slíkar greiðslur. Frekari greining á upprunalandi eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs er ekki tiltæk. Þá má í töflu 1.2 (fylgiskjal 2) sjá framangreinda árlega heildarfjárhæð á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs.

     2.      Hver var árlegur heildarfjöldi þeirra sem fengu örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur að upphæð 1 kr. eða meira árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
    Í töflu 2.1 (fylgiskjal 3) má sjá árlegan heildarfjölda þeirra sem fengu örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur að upphæð 1 kr. eða meira árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi þeirra sem fengu slíkar greiðslur. Frekari greining á upprunalandi eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs er ekki tiltæk. Þá má í töflu 2.2 (fylgiskjal 4) sjá framangreindan árlegan heildarfjölda á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs.

     3.      Hver var árleg heildarfjárhæð ellilífeyrisréttinda á tímabilinu 2010–2025, þ.m.t. öll viðbótarréttindi sem tengjast þessum bótaflokki, svo sem heimilisuppbót, barnalífeyrir og bifreiðatengdir bótaflokkar, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
    Í töflu 3.1 (fylgiskjal 5) má sjá árlega heildarfjárhæð ellilífeyrisréttinda á tímabilinu 2010– 2025, að meðtöldum öllum viðbótarréttindum sem tengjast þessum bótaflokki, sundurliðað eftir upprunalandi þeirra sem fengu slíkar greiðslur. Frekari greining á upprunalandi eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs er ekki tiltæk. Þá má í töflu 3.2 (fylgiskjal 6) sjá framangreinda árlega heildarfjárhæð á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs.

     4.      Hver var árlegur heildarfjöldi einstaklinga sem fengu ellilífeyri frá TR að upphæð 1 kr. eða meira á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni og því hvort viðkomandi átti lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs?
    Í töflu 4.1 (fylgiskjal 7) má sjá árlegan heildarfjölda einstaklinga sem fengu greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun að upphæð 1 kr. eða meira á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi viðkomandi einstaklinga. Frekari greining á upprunalandi eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs er ekki tiltæk. Þá má í töflu 4.2 (fylgiskjal 8) sjá framangreindan árlegan heildarfjölda á tímabilinu 2010–2025, sundurliðað eftir kyni og því hvort viðkomandi hafi átt lögheimili á Íslandi eða erlendis í lok hvers árs.


Fylgiskjal 1.

Tafla 1.1.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_I.pdf


Fylgiskjal 2.

Tafla 1.2.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_II.pdf


Fylgiskjal 3.

Tafla 2.1.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_III.pdf


Fylgiskjal 4.

Tafla 2.2.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_IV.pdf


Fylgiskjal 5.

Tafla 3.1.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_V.pdf


Fylgiskjal 6.

Tafla 3.2.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_VI.pdf


Fylgiskjal 7.

Tafla 4.1.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_VII.pdf


Fylgiskjal 8.

Tafla 4.2.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1513-f_VIII.pdf