Ferill 728. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1514  —  728. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um afdrif mála fyrir yfirskattanefnd.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörg mál voru kærð til yfirskattanefndar á árunum 2016–2025?
     2.      Hversu mörgum málum lauk með úrskurði yfirskattanefndar á árunum 2016–2025?
     3.      Hve marga úrskurði birti yfirskattanefnd á vefsvæði sínu á árunum 2016–2025?
     4.      Í hve mörgum tilfellum á árunum 2016–2025 afréð ríkisskattstjóri eða ráðherra málaflokksins að höfða dómsmál til ógildingar á úrskurði yfirskattanefndar?
     5.      Hversu mörg mál voru felld niður á árunum 2016–2025 að beiðni skattaðila undir meðferð máls fyrir yfirskattanefnd?
     6.      Hversu mörg mál voru felld niður eða afturkölluð á árunum 2016–2025 að beiðni ríkisskattstjóra undir meðferð máls fyrir yfirskattanefnd? Hafi mál verið fellt niður eða afturkallað að beiðni ríkisskattstjóra er þess óskað að stutt reifun á ágreiningsefni hvers máls fylgi svarinu.


    Ráðuneytið leitaði til yfirskattanefndar við vinnslu svarsins.
    Í eftirfarandi töflu er svar við 1., 2., 3. og 5. tölul. fyrirspurnarinnar tekið saman.
2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
1. Fjöldi kæra til yfirskattanefndar 249 188 209 192 206 214 173 189 194 200
2. Fjöldi úrskurða 275 202 202 201 191 223 158 197 170 204
3. Birtir úrskurðir 97 68 65 83 74 115 88 108 92 85
Hlutfall 35,30% 33,70% 32,20% 41,30% 38,70% 51,60% 55,70% 54,50% 54,10% 41,70%
5. Mál felld niður skv. beiðni aðila 5 5 4 11 5 1 4 3 4 7
     4. tölul. Málshöfðunarheimild stjórnvalda á úrskurðum yfirskattanefndar er bundin við ráðherra, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd. Á tímabilinu ákvað ráðherra málaflokksins að höfða eitt mál til ógildingar úrskurði yfirskattanefndar. Málið var síðar fellt niður án þess að ganga til dóms.
     6. tölul. Á umræddu tímabili hefur ekkert mál verið fellt niður að beiðni ríkisskattstjóra enda er hann ekki kærandi í málum fyrir yfirskattanefnd heldur aðeins aðilar máls.