Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1515  —  288. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um fíkniefnanotkun í fangelsum.


     1.      Hversu oft á ári undanfarin fimm ár hafa fangar orðið uppvísir að fíkniefnanotkun í fangelsinu á Hólmsheiði annars vegar og Litla-Hrauni hins vegar? Ef fjöldi þessara tilfella liggur ekki fyrir, hversu útbreitt vandamál er fíkniefnanotkun í fangelsum að mati ráðherra?

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.












    Upplýsinga var aflað frá Fangelsismálastofnun.
    Framangreindar tölur veita upplýsingar um fjölda agaviðurlaga sem fangar hafa sætt vegna brota gegn þeim reglum sem gilda um vímuefni og lyf í fangelsum. Í einhverjum tilvikum getur verið um sama fanga að ræða þannig að fjöldinn endurspeglar ekki fjölda fanga heldur fjölda tilvika þar sem brotið hefur verið gegn reglunum. Vandamálið er útbreiddara í fangelsinu Litla-Hrauni heldur en í fangelsinu á Hólmsheiði. Ástæðuna má meðal annars rekja til þess að fangelsið Hólmsheiði er sérhönnuð fangelsisbygging og aðstæður og möguleikar þar til að sporna við innstreymi fíkniefna eru mun betri en á Litla-Hrauni.

     2.      Hafa fangelsisyfirvöld næg úrræði og heimildir til að bregðast við fíkniefnanotkun í fangelsum?
    Samkvæmt lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, er fanga óheimilt að hafa í vörslum sínum áfengi og ávana- og fíkniefni. Sömu lög hafa að geyma ýmsar heimildir til að sporna við fíkniefnanotkun í fangelsum, svo sem leit á fanga, líkamsrannsókn og leit í klefa fanga. Einnig er heimilt að taka öndunar-, blóð- eða þvagsýni eða annars konar lífsýni úr fanga ef grunur leikur á að hann hafi neytt áfengis eða ávana- og fíkniefna, við komu í fangelsi og við almennt eftirlit. Brot fanga á reglum um ávana- og fíkniefni varða agaviðurlögum auk þess sem agabrot af því tagi geta haft áhrif á möguleika fanga til að njóta dags- og fjölskylduleyfa og til að afplána refsingu sína, til að mynda í opnu fangelsi.
    Þá njóta fangelsi landsins svigrúms við innra skipulag sitt og geta fært fanga á milli deilda eða eftir atvikum bygginga til að sporna eða bregðast við notkun ávana- og fíkniefna. Loks eru allar heimsóknir til fanga háðar samþykki Fangelsismálastofnunar. Þá er framkvæmd bakgrunnsskoðun á fyrirhuguðum gestum og heimilt er að útiloka eða takmarka heimsóknir sé talin hætta á að heimsóknin verði nýtt til að smygla ávana- eða fíkniefnum inn í fangelsi.
    Ekki verður því talið að heimildir skorti að lögum til að bregðast og sporna við notkun ávana- og fíkniefna í fangelsum landsins. Aftur á móti hefur reynst vandasamt að halda fullum aðskilnaði einstaklinga og hópa í fangelsinu Litla-Hrauni, fjölmennasta fangelsi landsins, meðal annars með þeim afleiðingum að þar gengur verr en annars staðar að stemma stigu við útbreiðslu ávana- og fíkniefna og nánast útilokað að koma alfarið í veg fyrir það. Þetta gerir meðferðarstarf erfiðara, hefur neikvæð áhrif á öryggi fanga og starfsfólks og eykur líkur á ofbeldi innan veggja fangelsisins. Með byggingu nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni verður hægt að aðskilja betur einstaklinga og mismunandi hópa innan fangelsisins. Þar af leiðandi verður hægt að koma betur í veg fyrir útbreiðslu ávana- og fíkniefna innan fangelsisins.

     3.      Hvaða úrræði hafa fangelsisyfirvöld til að bjóða föngum upp á fíknimeðferðir og hvaða meðferðir eru í boði?
    Í fangelsinu Litla-Hrauni er starfrækt meðferðardeild fyrir þá fanga sem glíma við fíknivanda og vilja takast á við hann. Þar er daglegur stuðningur undir handleiðslu meðferðarfulltrúa sem einnig veitir einstaklingsmeðferð- og stuðning byggðan á 12-spora kerfinu. Alla jafna er gert ráð fyrir þriggja mánaða meðferðartíma nema lengri tíma sé þörf.
    Í öðrum fangelsum er boðið upp á stuðningsviðtöl hjá starfsfólki meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar eða hjá sérstöku geðheilsuteymi fangelsis þegar um tvíþættan vanda er að tefla, svo sem fíknivanda og geðheilsuvanda. Unnið er út frá svonefndu áhugahvetjandi samtali og hugrænni atferlismótun tengdri fíkn með það að leiðarljósi að styðja við bata. Í öllum fangelsum eru jafnframt haldnir reglulegir AA-fundir, annaðhvort á staðnum eða í gegnum fjarfundabúnað. Þá getur Fangelsismálastofnun undir vissum kringumstæðum leyft fanga að vistast á heilbrigðis- eða meðferðarstofnun.