Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1516 — 491. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um endursendingar hælisleitenda.
1. Hefur ráðherra, í samstarfi við önnur ráðuneyti, unnið að samningum um endursendingar hælisleitenda til erlendra ríkja sem hingað til hafa ekki viljað taka við ríkisborgurum sínum? Ef svo er ekki, hvers vegna?
Í fyrstu skal nefna að samþykkt hafa verið lög um brottfararstöð sem er lokaúrræði til að fylgja eftir ákvörðun stjórnvalda gagnvart einstaklingum sem hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd en virða ekki slíka ákvörðun. Íslensk stjórnvöld hafa verið skuldbundin til að starfrækja slíkt úrræði samkvæmt Schengen-samstarfinu síðan árið 2010.
Samhliða hafa verið samþykkt lög um skimun á landamærum sem gefa stjórnvöldum mikilvægar upplýsingar um hverjir eru að koma hingað til lands og geta brugðist við strax við komu.
Utanríkisráðuneytið annast samningsgerðir við önnur ríki, þ.m.t. tvíhliða samninga um endurviðtöku ríkisborgara þriðju ríkja sem sæta brottvísun frá Íslandi. Dómsmálaráðuneytið ber efnislega ábyrgð á inntaki samninganna. Samningsgerðin fer fram í nánu samstarfi ráðuneytanna tveggja við Útlendingastofnun og heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra. Íslensk stjórnvöld hafa lagt aukna áherslu á gerð endurviðtökusamninga til að stuðla að skilvirkari endursendingum á einstaklingum í ólögmætri dvöl. Í því samhengi hefur verið horft til sambærilegra samninga sem önnur Schengen-ríki hafa gert við þriðju ríki. Mikilvægt er að árétta að árangur í slíkum viðræðum ræðst af vilja beggja aðila. Í þeim tilvikum þar sem ríki hafa ekki viljað taka við eigin ríkisborgurum eða hefja viðræður hefur ekki verið unnt að ná samningum, þrátt fyrir viðleitni íslenskra stjórnvalda. Nokkrir slíkir samningar eru í gildi við eftirfarandi ríki:
Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu eru eftirfarandi tvíhliða endurviðtökusamningar í gildi:
– Albanía
– Georgía
– Rússland
– Úkraína
– Makaó
Samningaviðræður standa nú jafnframt yfir við eftirfarandi ríki: Armeníu, Aserbaísjan, Bosníu og Hersegóvínu, Fílabeinsströndina, Gambíu, Moldóvu, Serbíu og Pakistan. Viðræður eru einnig hafnar við Tyrkland og Kólumbíu.
Ísland hefur lagt til að hefja samningaviðræður við eftirfarandi ríki: Afganistan, Alsír, Bangladesh, Eþíópíu, Írak, Marokkó og Nígeríu.
Þá er til skoðunar að gera samninga við Hong Kong og Venesúela.
2. Hefur verið leitað til hinna Norðurlandanna um aðgang að samningum þeirra við sömu ríki og/eða samstarf við þau þar að lútandi?
Dómsmálaráðuneytið tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um endursendingar, bæði hvað varðar stefnumótun og framkvæmd, í samræmi við regluverk Evrópusambandsins á því sviði. Ísland hefur jafnframt skuldbundið sig til að semja sjálfstætt við þau þriðju ríki sem Evrópusambandið gerir tvíhliða samninga við er varða endursendingar og endurviðtöku.
Meðal Norðurlandanna hefur jafnframt verið lögð áhersla á að efla getu ríkjanna með samþættri nálgun og samræmdum aðgerðum á sviði endursendinga. Á þeim vettvangi hafa íslensk stjórnvöld átt í virku samtali við hin Norðurlöndin, m.a. varðandi framkvæmd og gerð endurviðtökusamninga.
Þá tekur Ísland einnig þátt í ýmsum verkefnum á vettvangi Schengen-samstarfsins sem snúa að framkvæmd endursendinga og endurviðtöku einstaklinga sem bíða brottvísunar.