Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1517  —  706. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um hjónavígslur hjá sýslumanni.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hve margar hjónavígslur voru hjá sýslumanni árlega á tímabilinu 2010–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum, sýslumannsembættum og því hvort um er að ræða hjónavígslu tveggja einstaklinga með íslenskt ríkisfang, tveggja með erlent ríkisfang eða eins með íslenskt og annars með erlent ríkisfang, og fjölda þeirra sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd hér á landi á vígsludegi.

    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá sýslumannaráði vegna fyrirspurnarinnar.
    Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannaráði voru 13.806 hjónavígslur hjá sýslumanni á tímabilinu 2010–2025. Nánari sundurliðun eftir árum, sýslumannsembættum og því hvort um hafi verið að ræða hjónavígslu tveggja einstaklinga með íslenskt ríkisfang, tveggja með erlent ríkisfang eða eins með íslenskt og annars með erlent ríkisfang er að finna í töflu hér að aftan.
    Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannaráði er þó ekki unnt að veita upplýsingar um fjölda hjónaefna sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd hér á landi á vígsludegi þar sem slíkt er ekki skráð sérstaklega í starfskerfi sýslumanna.


Upplýsingar um hjónavígslur hjá sýslumanni árin 2010–2025.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.