Ferill 705. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1518  —  705. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um skráningu barna fæddra erlendis í Þjóðskrá Íslands.


     1.      Hve mörg börn fædd erlendis hafa verið skráð í þjóðskrá á hverju ári á tímabilinu 2010–2025?

Ár Fjöldi barna
2010 1.019
2011 1.048
2012 1.062
2013 1.082
2014 1.097
2015 1.189
2016 1.303
2017 1.365
2018 1.438
2019 1.402
2020 1.297
2021 1.315
2022 2.311
2023 1.901
2024 1.658
2025 1.370

     2.      Hver er árlegur fjöldi fyrrgreindra barna á tímabilinu 2010–2025;
                  a.      sem átti móður fædda á Íslandi en föður fæddan erlendis?
                  b.      sem átti móður fædda erlendis en föður fæddan á Íslandi?
                  c.      sem átti tvo foreldra fædda erlendis?
                  d.      sem átti tvo foreldra fædda á Íslandi?
                  e.      þar sem ástæða nýskráningar var ættleiðing barns erlendis frá?
                  f.      þar sem ástæða nýskráningar var staðgöngumæðrun?


Ár Móðir íslensk, faðir erlendur
2010 234
2011 241
2012 245
2013 222
2014 215
2015 251
2016 255
2017 244
2018 239
2019 237
2020 214
2021 220
2022 228
2023 207
2024 172
2025 165
Ár Móðir erlend, faðir íslenskur
2010 147
2011 165
2012 175
2013 147
2014 179
2015 190
2016 157
2017 153
2018 173
2019 174
2020 185
2021 164
2022 158
2023 152
2024 111
2025 117
Ár Foreldrar fæddir erlendis
2010 370
2011 347
2012 360
2013 448
2014 457
2015 507
2016 670
2017 753
2018 823
2019 823
2020 743
2021 764
2022 1.778
2023 1.416
2024 1.244
2025 967
Ár Foreldrar fæddir á Íslandi
2010 268
2011 295
2012 282
2013 265
2014 246
2015 241
2016 221
2017 215
2018 203
2019 168
2020 155
2021 167
2022 147
2023 126
2024 131
2025 121
Ár Ættleiðing erlendis frá
2010 3
2011 1
2012 4
2013 3
2014 3
2015 7
2016 4
2017 7
2018 3
2019 5
2020 2
2021 0
2022 1
2023 1
2024 2
2025 1

    Staðgöngumæðrun er óheimil hér á landi, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands heldur stofnunin ekki sérstaklega utan um tölfræði er varðar börn sem fæðast erlendis í kjölfar staðgöngumæðrunar og óskað er skráningar á í þjóðskrá. Einstaka mál hafa þó borist stofnuninni er varða staðgöngumæðrun er fór fram erlendis. Í slíkum tilfellum er hvert mál metið fyrir sig. Ef staðfest er að ætlaður faðir barnsins sé í raun líffræðilegur faðir þess er til að mynda unnt að viðurkenna faðerni þess. Staðgöngumóðirin er hins vegar alltaf talin vera móðir barnsins. Stofnunin heldur eins og áður segir þó ekki sérstaka tölfræði um slík mál.