Ferill 642. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1520 — 642. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla.
1. Hve mörg stöðugildi hafa verið á ritstjórnum fjölmiðla sem hlotið hafa rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fjölda fastra stöðugilda annars vegar og verktaka hins vegar.
Einkareknum fjölmiðlum er skylt að sinna árlegri skýrslugjöf til fjölmiðlanefndar á grundvelli 1. mgr. 23. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hér eftir lög um fjölmiðla). Skýrsluskilin voru á meðal skilyrða sem einkareknir fjölmiðlar þurftu að uppfylla til að hljóta rekstrarstuðning árin 2021–2025. Upplýsingar í skýrslum fjölmiðla varða næstliðið rekstrarár hverju sinni og lúta m.a. að starfsfólki á fjölmiðlum, greint eftir kyni og starfsheiti.
Með vísan til framangreindrar fyrirspurnar og 1. mgr. 23. gr. laga um fjölmiðla óskaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið eftir því að fjölmiðlanefnd tæki saman upplýsingar úr árlegum skýrslum fjölmiðla til nefndarinnar. Óskað eftir því að samantekt nefndarinnar yrði afmörkuð við fjölmiðlaveitur sem hlutu rekstrarstuðning árin 2021–2025.
Eftirfarandi upplýsingar um fjölda stöðugilda á ritstjórnum fjölmiðlaveitna eru sóttar úr skýrslum fjölmiðla fyrir árin 2020–2024. Upplýsingarnar varða fjölmiðlaveitur sem hlutu rekstrarstuðning a.m.k. einu sinni á árunum 2021–2025:
| 2020 (vegna úthlutunar 2021) | 2021 (vegna úthlutunar 2022) | 2022 (vegna úthlutunar 2023) | 2023 (vegna úthlutunar 2024) | 2024 (vegna úthlutunar 2025) | |
| Fjöldi stöðugilda | 255,67 | 289,43 | 269,25 | 285,76 | 285,66 |
| Fjöldi samþykktra umsókna | 19 | 25 | 25 | 27 | 28 |
Eins og sjá má af töflunni er fjöldi þeirra sem hlutu rekstrarstuðning breytilegur fyrir utan úthlutun árin 2022 og 2023. Vert er að taka fram að á árinu 2023 urðu tvær fjölmiðlaveitur gjaldþrota sem höfðu hlotið rekstrarstuðning árin 2021 og 2022, N4 ehf. og Torg ehf. Var önnur þeirra, Torg ehf., sú þriðja stærsta þegar litið er til fjölda stöðugilda á ritstjórnum fjölmiðla sem hlotið hafa rekstrarstuðning.
Varðandi sundurliðun eftir fjölda verktaka er ekki almennt óskað eftir upplýsingum um verktaka í ársskýrslum fjölmiðlaveitna til fjölmiðlanefndar á grundvelli 1. mgr. 23. gr. laga um fjölmiðla. Aðeins er óskað eftir upplýsingum um fjölda fréttaritara í lok ársins á undan. Er þá átt við fréttaritara sem voru í starfi á vegum rekstraraðila í lok árs, óháð stöðugildi og ráðningarformi, þ.e. lausráðna sem og verktaka:
| 2020 (vegna úthlutunar 2021) | 2021 (vegna úthlutunar 2022) | 2022 (vegna úthlutunar 2023) | 2023 (vegna úthlutunar 2024) | 2024 (vegna úthlutunar 2025) | |
| Fjöldi fréttaritara óháð stöðugildi og ráðningarformi (lausráðnir sem og verktakar) | 79 | 94 | 110 | 124 | 116 |
| Fjöldi samþykktra umsókna | 19 | 25 | 25 | 27 | 28 |
2. Er árangur af rekstrarstuðningi til einkarekinna fjölmiðla mældur með markvissum hætti af hálfu ráðuneytisins eða stofnana þess? Ef svo er, hvernig?
Formlegt árangursmat á stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla hefur ekki farið fram af hálfu ráðuneytisins eða stofnana þess, enn sem komið er. Hins vegar hefur styrkþegum frá árinu 2023 verið skylt að skila greinargerð til úthlutunarnefndar um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en sex mánuðum eftir úthlutun styrks. 1 Úthlutunarnefnd hefur farið yfir þær skýrslur og skilað eigin skýrslum til ráðuneytisins. 2 Skýrslur úthlutunarnefndar hafa gert ráðuneytinu kleift að fylgjast með framkvæmdinni og meta hvort stuðningur til fjölmiðla hafi nýst í samræmi við markmið hans.
Þá inniheldur fjármálaáætlun markmið og mælikvarða sem nýtast eiga við stefnumótun og árangursmat fyrir einstök málefnasvið og málaflokka. Á meðal mælikvarða fyrir málefnasvið 19, fjölmiðlun, er staða Íslands á lista alþjóðasamtakanna Blaðamanna án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum. Listinn er uppfærður á hverju vori og færðist Ísland upp um fimm sæti á milli áranna 2025 og 2026, úr sautjánda sæti í það tólfta.
3. Hafa ráðuneytið eða stofnanir þess upplýsingar um fjölgun eða fækkun stöðugilda, þ.m.t. verktaka, sem rekstrarstuðningur til einkarekinna fjölmiðla byggist á? Ef svo er, hver hefur þróun þessa verið þau ár sem rekstrarstuðningur hefur verið veittur?
Ráðuneytið og fjölmiðlanefnd hafa ekki tekið saman aðrar upplýsingar en þær sem að ofan greinir varðandi fjölgun eða fækkun stöðugilda á fjölmiðlum, þ.m.t. verktaka, sem rekstrarstuðningur til einkarekinna fjölmiðla byggist á.
1 Sbr. 2. mgr. 62. gr. g laga um fjölmiðla sem féll úr gildi 1. janúar 2026, sbr. 10. tölul. 62. gr. g í frumvarpi því sem samþykkt var á Alþingi þann 19. júní sl. um breytingu á lögum um fjölmiðla sem felur í sér að stuðningur við einkarekna fjölmiðla verður festur í sessi til fimm ára (þingskjal 1029, 600. mál).
2 Sbr. skýrslur úthlutunarnefndar til ráðuneytisins, dags. 20. nóvember 2024 og 30. desember 2025, og ábendingar úthlutunarnefndar til ráðuneytisins dags. 16. september 2022.