Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1521  —  223. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um aðgerðir vegna ástandsins á Sahel-svæðinu og í Súdan.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Telur ráðherra að næg áhersla sé lögð á aðgerðir vegna ástandsins á Sahel-svæðinu og í Súdan í þróunarsamvinnu og málsvarastarfi á vegum Íslands?

    Íslensk stjórnvöld hafa um árabil stutt við mannúðarverkefni í Súdan og á Sahel-svæðinu (nánar tiltekið Mið-Sahel-svæðinu). Í þeim efnum ber að nefna að í stefnu um þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 eru Mið-Austurlönd og Afríka sunnan Sahara skilgreind sem áherslusvæði þegar kemur að mannúðaraðstoð. Þá hafa íslensk stjórnvöld ítrekað vakið athygli á ástandi mála í Súdan og Sahel-svæðinu á alþjóðavettvangi, ekki síst í mannréttindaráði og allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt innleiðir Ísland þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins og öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna stöðu mála á svæðinu.

Mannúðaraðstoð.
    Stefna Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu 2024–2028 tilgreinir stefnumið um mannúðaraðstoð. Á þeim grunni byggir Ísland ákvarðanir sínar um aðgerðir á Sahel-svæðinu og í Súdan. Áhersla er lögð á matvælaöryggi, aðgang að vatni, heilbrigðismál og félagsvernd, ásamt bættu aðgengi mannúðaraðstoðar. Þá eru mannréttindi, kynjajafnrétti og umhverfismál bæði sértæk og þverlæg mál. Áherslustofnanir Íslands í mannúðar- og neyðaraðstoð eru Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna (CERF), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Frekari ákvarðanir um hvert framlög eigi að renna er svo hluti af reglulegri áætlanagerð í mannúðaraðstoð þar sem tekið er tillit til neyðar og þarfa hverju sinni.
    Frá upphafi árs 2023, þegar yfirstandandi átök hófust í Súdan, hafa íslensk stjórnvöld veitt 710 millj. kr. til verkefna áherslustofnana Íslands í mannúðar- og neyðaraðstoð í landinu og 360 millj. kr. í verkefni þeirra á Mið-Sahel-svæðinu (Búrkína Fasó, Malí og Níger). Þess ber þó að geta að óstöðugleiki og átök á Sahel-svæðinu hófust mun fyrr og hefur Ísland veitt framlög til verkefna áherslustofnana sem starfa á svæðinu um árabil. Skiptinguna á framlögum milli áherslustofnana má sjá hér að aftan. Til viðbótar má þess geta að Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland styður með árlegu framlagi, hefur einnig stutt við verkefni í Súdan og á Sahel-svæðinu á sama tímabili.


Tafla 1. Framlög vegna átaka og óstöðugleika í Súdan og á Mið-Sahel-svæðinu frá og með árinu 2023.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.









    Þá fjármögnuðu íslensk stjórnvöld stöðu íslensks ungliða (e. Junior Professional Officer) á árunum 2021–23 hjá UNHCR í Suður-Súdan. Viðkomandi starfaði að verkefnum sem sneru að fólki sem er á flótta innan lands, en þörfin á mannúðaraðstoð í Suður-Súdan hefur lengi verið mjög mikil.

Þvingunaraðgerðir.
    Ísland tekur þátt í þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins og öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna ástandsins í Súdan og á Sahel-svæðinu. Hafa þvingunaraðgerðirnar m.a. beinst gegn einstaklingum frá Súdan, Suður-Súdan, Malí og Níger.

Málsvarastarf.
    Skýrslugjafar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hafa safnað saman trúverðugum gögnum sem benda til þess að framdir hafi verið stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni sem beri einkenni þjóðarmorðs í Súdan. Því er mikilvægt að alþjóðasamfélagið beiti stríðandi fylkingar og bandamenn þeirra þrýstingi í því augnamiði að vernda almenna borgara og koma í veg fyrir frekari voðaverk í Súdan og útbreiðslu átaka á Sahel-svæðinu.
    Ísland tekur virkan þátt í málsvarastarfi til að vekja athygli á ástandinu á Sahel-svæðinu og þá sér í lagi í Súdan. Hefur það einkum verið gert á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í Genf, New York og Róm, bæði í samfloti við önnur ríki og í eigin nafni. Utanríkisráðherra hefur einnig tekið upp málefni Súdans í erindum sínum á alþjóðavettvangi. Frá því að borgarastyrjöldin braust út í Súdan árið 2023 hefur Ísland lagt nafn sitt við a.m.k. 60 opinberar yfirlýsingar á alþjóðavettvangi vegna ástandsins í Súdan og á Sahel-svæðinu (sjá eftirgreint yfirlit sem er ekki tæmandi listi).
    Ísland hefur sérstaklega nýtt setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna til þátttöku í umræðum um stöðu mannúðar- og mannréttindamála í Súdan. Á vegum ráðsins er starfandi sérstakur skýrslugjafi og rannsóknarnefnd um alvarleg mannréttindabrot og brot á alþjóðlegum mannúðarlögum í landinu sem reglulega gefa ráðinu skýrslu um stöðu mála. Slíkar umræður hafa verið haldnar í hverri lotu ráðsins undanfarin misseri og flytja Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin þá sameiginleg ávörp. Ísland hefur tvívegis samið og flutt slík ávörp undanfarið ár, en Ísland var á meðal ríkja sem kölluðu eftir stofnun rannsóknarnefndarinnar.
    Ísland flutti einnig ávarp fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í svokallaðri brýnni umræðu um versnandi ástand í El Obeid í Norður-Kordofan þann 3. júlí sl. Þar lýstu ríkin yfir áhyggjum af grimmdarverkum í Súdan og kölluðu eftir tafarlausri stöðvun árása og ábyrgðarskyldu gerenda. Þá kallaði Ísland ásamt fleiri ríkjum eftir aukafundi vegna voðaverkanna í El Fasher sem var haldinn 14. nóvember sl. og var meðflutningsaðili ályktunar sem fordæmdi víðfeðm mannréttindabrot, þar á meðal dráp á grundvelli kynþáttar, aftökur án dóms og laga, nauðganir, kynbundið ofbeldi og beitingu hungursneyðar sem vopns í átökum.
    Teikn eru á lofti um að átökin í Súdan geti borist til nærliggjandi landa, ekki síst til Suður-Súdans þar sem varað hefur verið við því að borgarastyrjöld geti brotist út. Ísland flutti ávarp 27. febrúar sl. í mannréttindaráðinu fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þar sem kallað var sérstaklega eftir upprætingu rótgróins refsileysis í ríkinu með vísan í skýrslu rannsóknarnefndar fyrir Suður-Súdan.
    Hvað önnur ríki á Sahel-svæðinu varðar, þá tók Ísland t.d. undir ályktun ESB um endurnýjun umboðs sérstaks skýrslugjafa mannréttindaráðsins fyrir Erítreu og einnig yfirlýsingu ESB á vettvangi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um alvarleg mannréttindabrot á vinnumarkaði þar í landi. Þá studdi Ísland yfirlýsingu ESB varðandi mannréttindabrot í Malí, svo örfá dæmi séu tekin.

Tafla 2. Aðkoma Íslands að yfirlýsingum, ávörpum o.fl. frá upphafi borgarastyrjaldar í Súdan.

Dags. Framkvæmd Vettvangur
10. júlí 2026 Ísland tekur undir yfirlýsingu v/harðnandi átaka í El Obeid (N-Kordofan), Súdan ESB
6. júlí 2026 Ísland greiðir atkvæði með ályktun um mannréttindi í Erítreu Mannréttindaráðið
3. júlí 2026 Ísland o.fl. kalla eftir brýnni umræðu vegna ástands í El Obeid (N-Kordofan), Súdan Mannréttindaráðið
18. júní 2026 Ísland tekur undir yfirlýsingu ríkjabandalags um að koma í veg fyrir hryllingsverk og tryggja réttlæti fyrir Súdan Mannréttindaráðið
16. júní 2026 Ársskýrsla mannréttindaráðsins, yfirlýsing Íslands Mannréttindaráðið
15. júní 2026 Ísland tekur undir yfirlýsingu ESB um alvarleg mannréttindabrot á vinnumarkaði (nauðungarvinna) í Erítreu Alþjóðavinnumálastofnunin
14. júní 2026 Ísland flytur erindi NB8 ríkja í umræðu um skýrslu rannsóknanefndar Mannréttindaráðið
12. júní 2026 Norræn yfirlýsing um matvælaóöryggi og Súdan Matvælaáætlun Sþ
11. júní 2026 Ísland tekur undir yfirlýsingu ESB um mannréttindabrot Malí um barnavinnu Alþjóðavinnumálastofnunin
4. maí 2026 UPR yfirlýsing. Níger Mannréttindaráðið
21. apríl 2026 Ísland tekur undir yfirlýsingu ESB á þriggja ára afmæli borgarastyrjaldarinnar ESB
4. apríl 2026 Yfirlýsing Íslands varðandi Níger (UPR) Mannréttindaráðið
27. mars 2026 Ræða Íslands til stuðnings ályktunar (L.19) um mannréttindi í Suður-Súdan Mannréttindaráðið
16. mars 2026 Ræða Íslands um stöðu mannréttinda í Súdan í umræðu með mannréttindasamtökum Mannréttindaráðið
16. mars 2026 Ísland tekur undir yfirlýsingu ESB í almennri umræðu þar sem minnst er á Súdan Mannréttindaráðið
2. mars 2026 Ræða Íslands, almenn umræða, minnst á Súdan Mannréttindaráðið
27. feb. 2026 NB8 yfirlýsing sem Ísland semur og flytur um Suður-Súdan Mannréttindaráðið
26. feb. 2026 NB8 yfirlýsing í tengslum við skýrslu rannsóknarnefndar Mannréttindaráðið
23. feb. 2026 Utanríkisráðherra flytur ávarp um El Fasher Mannréttindaráðið
18. feb. 2026 Sameiginleg yfirlýsing utanríkisráðherra líkt þenkjandi ríkja um mannúðarkrísu í Kordofan Þýskaland
9. feb. 2026 Ísland flytur yfirlýsingu NB8 í umræðu um El Fasher Mannréttindaráðið
3. des. 2025 Ísland flytur norrænt ávarp um matvælaöryggi Matvælaáætlun Sþ
17. nóv. 2025 Ísland flytur norrænt ávarp um hungursneyð Öryggisráð Sþ
14. nóv. 2025 Aukafundur um El Fasher. Ísland meðflutningsaðili ályktunar sem fordæmir víðfeðm mannréttindabrot Mannréttindaráðið
14. nóv. 2025 NB8 ræða þar sem kallað er eftir vopnahléi Mannréttindaráðið
10. nóv. 2025 Ísland tekur undir sameiginlega yfirlýsingu ríkjahóps um mannúðarkrísu í El Fasher Noregur
31. okt. 2025 Norræn yfirlýsing í almennri umræðu allsherjarþingsins um skýrslu mannréttindaráðsins. Minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, almenn umræða
8. okt. 2025 Ávarp Íslands um áherslu á mannréttindi í íslenskri utanríkisstefnu. Minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, 3. nefnd
27. sept. 2025 Utanríkisráðherra flytur ávarp og minnist á Súdan á leiðtogaviku allsherjarþingsins (UNGA 80) Allsherjarþing Sþ, leiðtogavika
24. sept. 2025 Ávarp utanríkisráðherra um mannúðardiplómasíu, minnist á Súdan Allsherjarþing Sþ, leiðtogavika
23. sept. 2025 Ræða Íslands í almennri umræðu, minnst á Súdan Mannréttindaráðið
8. sept. 2025 NB8 yfirlýsing í umræðu um rannsóknarskýrslu um Súdan Mannréttindaráðið
1. apríl 2025 NB8 yfirlýsing um tækniaðstoð til Suður-Súdan Mannréttindaráðið
20. mars 2025 Ávarp Íslands, m.a. um Súdan Mannréttindaráðið
28. feb. 2025 NB8 yfirlýsing í umræðu um rannsóknarskýrslu um Suður-Súdan Mannréttindaráðið
27. feb. 2025 Ísland flytur NB8 yfirlýsingu í umræðum um rannsóknarskýrslu um Súdan Mannréttindaráðið
10. des. 2024 Áheitaráðstefna um mannúðaraðstoð CERF, NY
27. nóv. 2024 Norræn yfirlýsing um neitunarvald í málefnum Súdan Allsherjarþing Sþ, almenn umræða
27. nóv. 2024 Óformleg stuðningsyfirlýsing 117 ríkja til mannúðarstarfsfólks, m.a. í Súdan Höfuðstöðvar Sþ
20. nóv. 2024 Norræn yfirlýsing um notkun neitunarvalds, minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, almenn umræða
1. nóv. 2024 Ísland flytur norrænt ávarp í umræðum um skýrslu mannréttindaráðsins, minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, almenn umræða
23. okt. 2024 Ísland flytur ávarp í almennri umræðu um vernd mannréttinda, minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, 3. nefnd
17. okt. 2024 Ávarp Íslands um mannúðarmál, minnst á Súdan Flóttamannastjóri Sþ
14. okt. 2024 Yfirlýsing Íslands um mannréttindi barna, minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, 3. nefnd
7. okt. 2024 NB8 yfirlýsing um mannréttindi í Suður-Súdan Mannréttindaráðið
30. sept. 2024 Norrænt ávarp um leiðtogahlutverk í þágu friðar, minnst á Súdan Öryggisráð Sþ
24. sept. 2024 Yfirlýsing Íslands, almenn umræða, minnst á Súdan og Sahel Mannréttindaráðið
10. sept. 2024 Ávarp NB8 í umræðum um Súdan Mannréttindaráðið
16. apríl 2024 Ávarp Íslands á áheitaráðstefnu í París, fyrir Súdan og Sahel Frakkland
28. mars 2024 NB8 yfirlýsing í umræðum með óháðum sérfræðingi í málefnum Malí Mannréttindaráðið
19. mars 2024 Ísland tekur þátt í yfirlýsingu líkt þenkjandi þjóða um mannúðaraðgengi í Súdan Mannréttindaráðið
1. mars 2024 NB8 yfirlýsing vegna skýrslu um Súdan Mannréttindaráðið
1. mars 2024 NB8 yfirlýsing vegna stöðu mannréttinda í Suður-Súdan Mannréttindaráðið
12. des. 2023 NB8 ávarp í umræðum um Súdan Mannréttindaráðið
31. okt. 2023 Ávarp Íslands í umræðu um skýrslu mannréttindaráðsins, minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, almenn umræða
27. sept. 2023 Ávarp utanríkisráðherra Íslands, minnst á Súdan Allsherjarþing Sþ, leiðtogavika
19. júní 2023 NB8 yfirlýsing v/skýrslu um stöðu mannréttinda í Súdan Mannréttindaráðið
3. júní 2023 NB8 yfirlýsing um mannréttindi í Suður-Súdan Mannréttindaráðið
31. maí 2023 Fréttatilkynning stjórnvalda og greint frá frásögn UNICF um stöðu barna þegar sex vikur eru liðnar af átökum í Súdan Stjórnarráðið
7. mars 2023 NB8 yfirlýsing um stöðuna í Súdan og í Suður-Súdan Mannréttindaráðið