Ferill 168. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1522  —  168. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um samstarf Grænlands og Íslands.


     1.      Hvernig hefur tvíhliða samstarfi Íslands og Grænlands verið háttað?
    Tvíhliða samstarf Íslands og Grænlands hefur verið mjög gott í gegnum tíðina. Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið verið áhugasöm um að auka og dýpka það enn frekar. Opnun sendiskrifstofu Íslands í Nuuk árið 2013 og sendiskrifstofu Grænlands í Reykjavík hefur aukið samskiptin. Löndin eiga í reglulegu samstarfi á ráðherra- og embættismannastigi. Í gegnum tíðina hafa yfirlýsingar verið undirritaðar um samstarf landanna á ýmsum sviðum. Hér má nefna yfirlýsingu sem forsætisráðherrar landanna undirrituðu í október 2022 til marks um gagnkvæman vilja til að auka samstarfið enn frekar. Í kjölfarið var þróuð framkvæmdaáætlun sem inniheldur skilgreindar aðgerðir sem miða að því að dýpka tengslin og nýta þau tækifæri sem felast í samstarfinu. Einnig undirrituðu forsætisráðherrar landanna yfirlýsingu 21. október 2025 þar sem fyrri yfirlýsing var áréttuð.

     2.      Hvaða tækifæri eru til að efla samstarf Íslands og Grænlands?
    Efla má samstarf Íslands og Grænlands með ýmsu móti til að endurspegla sameiginlega hagsmuni og aukna landfræðilega þýðingu norðurslóða. Í yfirlýsingu forsætisráðherra landanna frá 2022 eru tilgreind eftirfarandi sjö meginsvið: Viðskipti, fiskveiðar, efnahagssamstarf, loftslagsbreytingar og líffræðilegur fjölbreytileiki, jafnréttismál, menntun og rannsóknir, og menningarsamstarf. Í yfirlýsingu forsætisráðherranna frá 2025 er lögð áhersla á að hraða undirbúningi fyrir gerð viðskiptasamnings milli Íslands og Grænlands og styrkja innviði á svæðinu, t.d. þegar kemur að lagningu fjarskiptastrengja milli landanna.
    Fjölmörg tækifæri eru fyrir hendi til að efla samstarf landanna, svo sem á sviði viðskipta, orku, innviða, umhverfismála, menntunar og menningar, og byggja á sameiginlegum grunni norðurslóðaþjóðanna: Samstöðu, sjálfbærni og virðingu fyrir náttúru og samfélögum. Með því að nýta sameiginlega styrkleika, þróa sanngjarnt viðskiptasamband og efla tengsl á sviði menntunar, orku og umhverfis getur samstarfið orðið fyrirmynd annarra ríkja á norðurslóðum.

     3.      Hyggst ráðherra efla samstarf Íslands og Grænlands á sviði viðskipta og varnarmála? Ef svo er, hvernig?
    Á Íslandi hefur verið pólitískur vilji til að efla samstarf Íslands og Grænlands á mörgum sviðum, þar með talið á sviði viðskipta og varnarmála. Unnið er að sterkari efnahagslegri tengingu og aukinni varnarsamvinnu innan ramma sameiginlegra hagsmuna.
    Gagnkvæmur vilji ríkir til að kanna grundvöll fyrir gerð viðskiptasamnings, m.a. með stofnun sameiginlegs vinnuhóps sem mun leggja fram tillögur til að styrkja viðskipti, fjárfestingar og efnahagslegt samstarf. Þetta felur í sér tækifæri á sviði sjávarútvegs, orku, nýsköpunar og innviða, sem bæði löndin sjá sem mikilvægt fyrir sjálfbæra þróun og efnahagsöryggi.
    Utanríkis- og varnarmál Grænlands heyra undir Danmörku, sem sér um alþjóðlega samvinnu og varnarsamninga, en Grænland er meðráðandi í stefnumótun Danmerkur í þessum málum. Aukið samstarf á sviði varnar- og öryggismála felur fyrst og fremst í sér stefnumótandi áherslur og byggist á samræmingu sameiginlegra hagsmuna í Norður-Atlantshafi, einnig öflun upplýsinga, skipulagslegri samræmingu og þátttöku í norðurslóðasamstarfi, m.a. um öryggis- og varnarmál.

     4.      Hyggst ráðherra efla samstarf Íslands og Grænlands á sviði félags- og menntamála? Ef svo er, hvernig?
    Vilji er til að efla samstarf landanna á sviði félags- og menntamála. Í yfirlýsingum forsætisráðherranna frá 2022 og 2025 er lögð áhersla á menntun, rannsóknir og samfélagsþróun. Er þar m.a. mælt fyrir um eflingu samstarfs með því að styrkja háskólasamstarf, rannsóknir, nýsköpun, nemenda- og kennaraskipti, og samfélagsverkefni sem stuðla að jafnrétti og sjálfbærri þróun.