Ferill 694. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1523  —  694. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um fjölmennasta lögheimili landsins.


     1.      Getur erlendur ríkisborgari sem ekki hefur gilt dvalarleyfi á Íslandi verið með skráð lögheimili á Íslandi á sama tíma?
    Í 4. mgr. 14. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, er kveðið á um flutning til Íslands og dvalarleyfi erlendra ríkisborgara. Í ákvæðinu er gerður greinarmunur á ríkisborgurum sem koma frá aðildarríkjum EES/EFTA-svæðisins og þeim sem koma frá ríkjum utan EES/EFTA-svæðisins.
    Hvað ríkisborgara utan EES/EFTA-svæðisins varðar er óheimilt að skrá lögheimili þeirra á Íslandi nema viðkomandi hafi gilt dvalarleyfi útgefið af Útlendingastofnun. Að fenginni samþykktri umsókn um dvalarleyfi skráir Þjóðskrá Íslands lögheimili á Íslandi á grundvelli upplýsinga frá Útlendingastofnun. Upplýsingar um nýjar skráningar berast Þjóðskrá Íslands rafrænt frá Útlendingastofnun, sem jafnframt tilkynnir Þjóðskrá Íslands um einstaklinga sem hafa útrunnið dvalarleyfi.
    Helst kemur til þess að skráning lögheimilis á Íslandi haldist óbreytt þegar dvalarleyfi er runnið út en umsókn um endurnýjun leyfis er enn til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Í slíkum tilvikum helst skráning óbreytt þar til málsmeðferð lýkur.
    Berist Þjóðskrá Íslands tilkynning frá lögreglu eða Útlendingastofnun um brottvísun ríkisborgara utan EES/EFTA-svæðisins, óháð gildistíma dvalarleyfis, er lögheimili viðkomandi skráð úr landi á grundvelli þeirra upplýsinga.
    Ríkisborgarar innan EES/EFTA-svæðisins sækja um skráningu lögheimilis á Íslandi hjá Þjóðskrá Íslands. Þegar umsókn er samþykkt og viðkomandi hefur verið skráður með lögheimili á Íslandi jafngildir sú skráning rétti til dvalar á Íslandi. Réttur til dvalar er tímabundinn þar til viðkomandi hefur átt samfellda búsetu á Íslandi í fimm ár, þ.e. hefur verið með skráð lögheimili hérlendis í þann tíma. Að þeim tíma liðnum verður rétturinn til dvalar sjálfkrafa ótímabundinn.
    Berist Þjóðskrá Íslands tilkynning frá lögreglu eða Útlendingastofnun um brottvísun ríkisborgara frá EES/EFTA-ríki er lögheimili viðkomandi skráð úr landi á grundvelli upplýsinga frá fyrrnefndum stofnunum.

     2.      Hver var fjöldi skráðra aðila á fjölmennasta lögheimili landsins ár hvert á tímabilinu 2010–2025 að stofnunum frátöldum?
Ár Sveitarfélag Heimilisfang Póstnr. Fjöldi íbúa
2010 Reykjavík Hringbraut 50 101 161
2011 Reykjavík Hringbraut 50 101 150
2012 Kópavogur Hörðukór 3 203 152
2013 Kópavogur Engihjalli 9 200 152
2014 Kópavogur Engihjalli 9 200 157
2015 Kópavogur Engihjalli 9 200 158
2016 Kópavogur Hörðukór 3 203 153
2017 Norðurþing Vinnub. Dvergabakki 640 315
2018 Reykjavík Arnarholt 162 398
2019 Reykjavík Arnarholt 162 385
2020 Reykjavík Sæmundargata 21 102 176
2021 Reykjavík Sæmundargata 21 102 181
2022 Reykjanesbær Keilisbraut 745 262 203
2023 Reykjanesbær Keilisbraut 745 262 245
2024 Reykjanesbær Klettatröð 10 262 311
2025 Reykjanesbær Klettatröð 10 262 431