Ferill 673. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1526 — 673. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um stöðu heimilislækna og aðgengi að heilsugæslu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver hefur fjöldi fastráðinna heimilislækna verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
2. Hve mörg ársstörf heimilislækna hafa verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
3. Hver hefur fjöldi íbúa á þjónustusvæði hverrar heilsugæslustöðvar verið á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
4. Hversu margir íbúar hafa verið skráðir með fastan heimilislækni við hverja heilsugæslustöð á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
5. Hver hefur biðtími eftir tíma hjá heimilislækni verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
6. Hve margir gestalæknar hafa starfað við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026 og hversu mörgum ársstörfum hafa þeir sinnt? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum, auk upplýsinga um hversu lengi stöður hafa verið mannaðar með tímabundnum ráðningum í stað fastráðninga.
7. Hve margir læknanemar, kandídatar eða læknar í sérnámi hafa starfað við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026 og hversu stórum hluta þjónustunnar hafa þeir sinnt, eftir því sem gögn leyfa? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
Fyrirspurnin var send á sex heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og fjórar einkareknar heilsugæslustöðvar.
Svör bárust frá fjórum heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni (HVE, HSN, HSA og HSU) og eitt svar frá einkareknu heilsugæslunum (Heilsugæslunni Kirkjusandi).
Ráðuneytið svarar 3. og 4. tölul. fyrirspurnarinnar og svar hverrar stofnunar er svo hvert um sig þar fyrir aftan:
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1526-f_I.pdf