Ferill 545. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1527 — 545. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.
1. Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggjast að verulegu leyti á þjónustu Microsoft. Fyrst og fremst er um að ræða lausnir innan Microsoft 365 skrifstofuhugbúnaðarsvítunnar. Dæmi um lausnir innan Microsoft 365 sem nýttar eru í daglegum rekstri eru Outlook, Word, Excel, Powerpoint, Teams o.s.frv.
Helstu kerfi ráðuneytisins eru eftirfarandi:
| Hugbúnaður/kerfi | Fyrirtæki | Höfuðstöðvar fyrirtækis | Gögn vistuð | Heimilisfesti endanlegra eigenda |
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | Bandaríkin | EES | Bandaríkin |
| Málaskrá | Hugvit | Ísland | Ísland | Ísland |
2. Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Gögn ráðuneytisins sem hýst eru í skýjalausnum erlendra fyrirtækja eru fyrst og fremst til komin vegna almennra daglegra starfa. Þetta eru til að mynda tölvupóstar, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
3. Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
Ekki er í íslenskri löggjöf kveðið á um skilgreiningu á hugtakinu stafrænt fullveldi. Á hinn bóginn kemur hugtakið stafrænt fullveldi fram í þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, sbr. þingsályktun nr. 26/145 og þingsályktun nr. 7/153. Markmið þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland er að tryggja sjálfstæði, fullveldi, lýðræðislegt stjórnarfar og friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna, varnir landsins og vernd stjórnkerfis og mikilvægra innviða samfélagsins.
Við meðferð Alþingis á tillögu forsætisráðherra um breytingu á þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland á 153. löggjafarþingi lagði utanríkismálanefnd þingsins til að í 9. tölul. stefnunnar yrði sérstaklega tekið fram að efla stafrænt fullveldi og var sú tillaga samþykkt. Því orðast 9. tölul. þjóðaröryggisstefnunnar svo: ,,Að efla stafrænt fullveldi og auka net- og upplýsingaöryggi á öllum sviðum samfélagsins með samhæfðum aðgerðum, áframhaldandi uppbyggingu á eigin getu og með samstarfi við önnur ríki.“
Í nefndaráliti utanríkismálanefndar segir: „Í umfjöllun nefndarinnar um net- og upplýsingaöryggi kom hugtakið stafrænt fullveldi ítrekað fyrir sem vísar til getu ríkja til þess að tryggja hina stafrænu innviði og að varaleiðir og þrautavaraleiðir séu til staðar svo að gangvirki samfélagsins verði varið ef neyðarástand skapast.“
Í alþjóðlegri umræðu hefur komið fram víðtækari skilningur á hugtakinu stafrænt fullveldi en endurspeglast í nefndaráliti utanríkismálanefndar frá árinu 2023 sem áður er vísað til, þ.e. að það feli í sér viðurkenningu á sjálfsákvörðunarrétti eða yfirráðum ríkja, fyrirtækja og einstaklinga í hinu stafræna umhverfi hvað varðar meðferð gagna og upplýsinga, vélbúnaðar og hugbúnaðar. Viðurkenna þurfi rétt ríkja til þess að vernda stafrænar upplýsingar ríkis, atvinnulífs og ríkisborgara sinna gegn ólögmætri meðferð upplýsinga og íhlutun eða yfirtöku annarra ríkja, tryggja að ríkið geti sett leikreglur og haldið uppi lögum í landamæralausu tækniumhverfi og gæta grundvallarréttinda borgaranna án þess að hindra alþjóðleg viðskipti eða samskipti. Þessi viðleitni megi þó ekki verða til þess að lama þátttöku í alþjóðlegum viðskiptum eða reisa múra í stafrænum samskiptum, viðskiptum eða þjónustu.
Í víðasta skilningi má halda því fram að með hugtakinu stafrænt fullveldi sé leitast við að viðurkenna og treysta fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt ríkja í stafrænum heimi og þar með getu ríkja til þess að gæta að fullveldi og sjálfstæði ríkisins, vernd stjórnkerfis og lýðræðislegrar stjórnskipunar og öryggi borgaranna innan lögsögu sinnar. Vandinn við stafrænt fullveldi er að internetið er hannað sem landamæralaust kerfi sem gerir hefðbundna landfræðilega stjórn erfiða.
Áskoranir sem tengjast örri tækniþróun tvinnast við aðrar hnattrænar áskoranir og kalla á staðfasta nálgun stjórnvalda er varðar gæslu þeirra hagsmuna sem þjóðaröryggisstefnan miðar að því að tryggja, hvort heldur sem um er að ræða sjálfstæði, fullveldi, lýðræðislegt stjórnarfar og friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna, varnir landsins eða vernd stjórnkerfis og mikilvægra innviða samfélagsins.
4. Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
Öll lén ráðuneytisins eru skráð á Íslandi undir landsléninu .is hjá ISNIC. Þetta þýðir að íslensk lög gilda um eignarhald og umsjón lénanna. ISNIC er íslenskt fyrirtæki og innviðir þess eru staðsettir á Íslandi.
Hvað varðar vefi, póstþjóna og nafnaþjóna þá lýtur það að rekstri og hýsingu þeirrar tækniþjónustu fremur en formlegri skráningu. Eins og rakið er í svörum við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar er sú undirliggjandi þjónusta ýmist vistuð hér á landi eða í skýjalausnum þjónustuaðila innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Póstþjónn ráðuneyta er stilltur á Microsoft. Þegar póstur er sendur á ráðuneyti fer hann í gegnum netþjóna Microsoft. Sjálf pósthólfin og gögnin í þeim eru geymd í gagnaverum Microsoft erlendis (innan EES).
Seðlabanki Íslands. Nafnaþjónar fyrir sedlabanki.is og cb.is eru hýstir á Íslandi, en nafnaþjónar annarra léna Seðlabankans eru í skýjaþjónustu með tengipunkt hérlendis. Póstþjónar eru hýstir á Íslandi, en pósthólf í skýjaþjónustu Microsoft í Evrópu. Vefur Seðlabanka Íslands er hýstur á Íslandi, en hluti gagnabirtingar nýtir skýjaþjónustur Microsoft í Evrópu.
Hagstofa Íslands. Allar skráningar Hagstofu Íslands eru á Íslandi, hjá 1984 ehf. Skráning á póstþjóni er einnig þar en bendir á M365.
Ríkislögmaður. Embættið er með tölvuþjónustu hjá Umbru og vefþjónustu hjá Island.is.
Umboðsmaður barna. Allar skráningar fyrir umboðsmann barna eru á Íslandi.
5. Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
Að frumkvæði þjóðaröryggisráðs hefur verið unnið að þróun og uppbyggingu reksturs öruggrar og fjölþættrar varafjarskiptaleiðar við útlönd um gervihnetti sem nú er að komast í gagnið. Tilgangurinn er að tryggja lágmarksnetsamband ómissandi samfélagsinnviða við útlönd, fari svo að fjarskiptasamband um alla sæstrengi við Ísland rofni á sama tíma.
Verkefnið styður hvort tveggja við markmið þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og netöryggisstefnu og fellur vel að fyrirhugaðri þátttöku Íslands í evrópskri áætlun um öryggisfjarskipti um gervihnetti með þátttöku ríkja ESB og EES.