Ferill 661. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1528  —  661. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um ferðir utanríkisþjónustunnar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margar utanlandsferðir hafa verið farnar á vegum utanríkisþjónustunnar, þar á meðal af pólitískt ráðnum starfsmönnum, frá því að ríkisstjórnin tók við völdum? Óskað er eftir að í svari komi fram dagsetning ferðar, áfangastaður, fjöldi einstaklinga í hverri ferð, erindi ferðar og lengd hennar.

    Öflug hagsmunagæsla starfsfólks utanríkisþjónustunnar kallar á reglulegt samráð og ræktun náinna tengsla við önnur ríki, jafnt tvíhliða sem á vettvangi alþjóðastofnana. Utanríkisþjónustan sinnir hagsmunagæslu á sviði utanríkis- og varnarmála, utanríkisviðskipta og þróunarmála, sem falla oft hvert undir sitt ráðuneyti hjá öðrum ríkjum. Þróun heimsmála hefur síður en svo dregið úr mikilvægi virkrar þátttöku í alþjóðasamstarfi. Þótt fjarfundarbúnaður sé mikið notaður í starfi utanríkisþjónustunnar kemur hann ekki alltaf í stað funda í eigin persónu þar sem öryggi upplýsinga og traust eru lykilatriði.
    Á tímabilinu frá 21. desember 2024 til 30. apríl 2026 voru farnar 835 ferðir á vegum utanríkisþjónustunnar til 67 mismunandi ríkja. Flestar þessara ferða, eða 683, voru til Evrópulanda, ýmist vegna tvíhliða samskipta við Evrópuríki eða fjölþjóðlegs samstarfs á vettvangi alþjóðastofnana sem þar eru staðsettar. Þar af voru 239 til einhvers Norðurlandanna: Grænlands, Færeyja, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar, Álandseyja og Finnlands. Á tímabilinu voru farnar 75 ferðir til Vesturheims, þ.e. til Bandaríkjanna og Kanada, og 44 ferðir til Asíu. Þá voru farnar 28 ferðir til Afríku, einkum vegna þróunarsamvinnuverkefna, sem og 5 ferðir til Rómönsku Ameríku og Karíbahafsins.
    Í 723 tilvikum (87%) ferðuðust starfsmenn utanríkisþjónustunnar einir síns liðs en í 78 tilvikum (9%) ferðuðust tveir starfsmenn saman. Í 34 tilvikum (4%) ferðuðust fleiri en tveir saman. Að meðaltali ferðaðist 1,19 starfsmaður í hverri ferð. Tæplega tveir þriðju hlutar ferðanna stóðu yfir í fjóra daga eða skemur og meðallengd ferða var 4,9 dagar.
    Svar þetta tekur jafnframt til aðstoðarmanna ráðherra sem ráðnir eru skv. 22. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Aðstoðarmenn ráðherra fóru í 33 af framangreindum 835 ferðum á tímabilinu.
    Hvorki eru taldar með ferðir starfsfólks á milli starfsstöðva vegna, eða í tengslum við, flutninga eða afleysingar. Þá eru ekki taldar með ferðir innan umdæma sendiráða Íslands erlendis.