Ferill 685. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1529 — 685. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Erni Hilmarssyni um húsnæðissjálfseignarstofnanir.
1. Hversu margar eru húsnæðissjálfseignarstofnanir (óhagnaðardrifin leigufélög) á landinu, hvað heita þær og í hvaða sveitarfélögum hafa þær starfsemi?
Frá því að lög um almennar íbúðir, nr. 52/2016, tóku gildi hafa alls 20 húsnæðissjálfseignarstofnanir fengið úthlutað stofnframlögum til íbúða sem staðsettar eru í 38 sveitarfélögum víðs vegar um landið.
Í eftirfarandi töflu er listi yfir húsnæðissjálfseignarstofnanir sem hlotið hafa stofnframlög til byggingar og/eða kaupa á íbúðum fyrir tekju- og eignalægri heimili og í hvaða sveitarfélögum íbúðirnar eru staðsettar:
| Heiti húsnæðissjálfseignarstofnunar | Sveitarfélög |
| Andrastaðir hses. | Reykjavíkurborg |
| Arnrún íbúðafélag hses. | Reykjavíkurborg |
| Batahús hses. | Reykjavíkurborg |
| Bjarg íbúðafélag hses. | Akraneskaupstaður |
| Akureyrarbær | |
| Garðabær | |
| Grindavíkurbær | |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | |
| Hrunamannahreppur | |
| Hveragerðisbær | |
| Mosfellsbær | |
| Norðurþing | |
| Rangárþing eystra | |
| Rangárþing ytra | |
| Reykjanesbær | |
| Reykjavíkurborg | |
| Suðurnesjabær | |
| Sveitarfélagið Árborg | |
| Sveitarfélagið Vogar | |
| Sveitarfélagið Ölfus | |
| Brák íbúðafélag hses. | Akraneskaupstaður |
| Bolungarvíkurkaupstaður | |
| Dalabyggð | |
| Fjallabyggð | |
| Fjarðabyggð | |
| Fljótsdalshreppur | |
| Húnaþing vestra | |
| Ísafjarðarbær | |
| Langanesbyggð | |
| Múlaþing | |
| Mýrdalshreppur | |
| Rangárþing eystra | |
| Reykhólahreppur | |
| Reykjavíkurborg | |
| Skaftárhreppur | |
| Strandabyggð | |
| Sveitarfél. Skagafjörður | |
| Sveitarfélagið Árborg | |
| Sveitarfélagið Skagaströnd | |
| Sveitarfélagið Stykkishólmur | |
| Vesturbyggð | |
| Þingeyjarsveit | |
| Heimilin íbúðafélag hses. | Hafnarfjarðarkaupstaður |
| Íbúðafélag Hornafjarðar hses. | Sveitarfélagið Hornafjörður |
| Leigufélagið Brú hses. | Akraneskaupstaður |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | |
| Reykjanesbær | |
| Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses. | Dalvíkurbyggð |
| Leiguíbúðir Þingeyjarsveit hses. | Þingeyjarsveit |
| Lundartún hses. | Rangárþing ytra |
| Nauthólsvegur 83 hses. | Reykjavíkurborg |
| Nauthólsvegur 85 hses. | Reykjavíkurborg |
| Nauthólsvegur 87 hses. | Reykjavíkurborg |
| Nemendagarðar Lýðháskólans hses. | Ísafjarðarbær |
| Nemendagarðar Menntaskóla hses. | Borgarbyggð |
| Skarðshlíð íbúðarfélag hses. | Hafnarfjarðarkaupstaður |
| Stakkahlíð hses. | Reykjavíkurborg |
| Stúdentagarðar Háskólans V hses. | Ísafjarðarbær |
| Vík hses. | Norðurþing |
2. Hversu margar íbúðir á hver húsnæðissjálfseignarstofnun og hversu margar eru í byggingu á vegum húsnæðissjálfseignarstofnana?
Í eftirfarandi töflu er að finna fjölda íbúða í eigu húsnæðissjálfseignarstofnana samkvæmt skráningu í fasteignaskrá 19. júní 2026:
| Nafn | Kennitala | Fjöldi íbúða í byggingu | Fjöldi fullbúinna íbúða |
| Andrastaðir hses. | 5307201600 | 0 | 7 |
| Arnrún íbúðafélag hses. | 4106170560 | 0 | 18 |
| Batahús hses. | 5105261630 | 12 | 0 |
| Bjarg íbúðafélag hses. | 4909160670 | 185 | 1.070 |
| Brák íbúðafélag hses. | 5507220970 | 79 | 282 |
| Heimilin íbúðafélag hses. | 4103181720 | 0 | 12 |
| Leigufélagið Brú hses. | 6903231840 | 6 | 3 |
| Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses. | 6401182100 | 0 | 8 |
| Leiguíbúðir Þingeyjarsveit hses. | 5702201360 | 0 | 4 |
| Lundartún hses. | 6210190900 | 0 | 4 |
| Nauthólsvegur 83 og 85 hses. | 4102171550 | 0 | 89 |
| Nauthólsvegur 85 hses. | 5611170630 | 0 | 97 |
| Nauthólsvegur 87 hses. | 6903210840 | 148 | 0 |
| Nemendagarðar Lýðháskólans hses. | 5006221800 | 0 | 14 |
| Nemendagarðar Menntaskóla hses. | 4502250290 | 12 | 0 |
| Skarðshlíð íbúðarfélag hses. | 4103181800 | 0 | 12 |
| Stakkahlíð hses. | 5209170980 | 0 | 104 |
| Stúdentagarðar Háskólans V hses. | 5110220880 | 0 | 40 |
| Vík hses. | 4403210380 | 0 | 6 |
| Íbúðafélag Hornafjarðar hses. | 5110160100 | 0 | 5 |
3. Hversu hátt stofnframlag hefur ríkið veitt hverri húsnæðissjálfseignarstofnun?
Í eftirfarandi töflu er að finna heildarfjárhæð stofnframlaga ríkisins til hverrar húsnæðissjálfseignarstofnunar:
| Húsnæðissjálfseignarstofnanir | Samtals stofnframlag |
| Andrastaðir hses. | 34.343.623 kr. |
| Arnrún íbúðafélag hses. | 75.315.571 kr. |
| Bata Hús hses. | 60.610.000 kr. |
| Bjarg íbúðafélag hses. | 8.812.421.307 kr. |
| Brák íbúðafélag hses. | 3.959.715.227 kr. |
| Heimilin íbúðafélag hses. | 50.606.332 kr. |
| Íbúðafélag Hornafjarðar hses. | 37.105.409 kr. |
| Leigufélagið Brú hses. | 108.366.230 kr. |
| Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses. | 56.410.248 kr. |
| Leiguíbúðir Þingeyjarsveit hses. | 22.486.432 kr. |
| Lundartún hses. | 18.134.049 kr. |
| Nauthólsvegur 83 hses. | 660.458.141 kr. |
| Nauthólsvegur 85 hses. | 707.577.525 kr. |
| Nauthólsvegur 87 hses. | 1.255.002.826 kr. |
| Nemendagarðar Lýðháskólans hses | 134.128.588 kr. |
| Nemendagarðar Menntaskóla hses. | 90.184.839 kr. |
| Skarðshlíð íbúðarfélag hses. | 49.953.950 kr. |
| Stakkahlíð hses. | 630.504.827 kr. |
| Stúdentagarðar Háskólans V hses. | 403.147.202 kr. |
| Vík hses. | 35.730.545 kr. |
| Samtals | 17.202.202.872 kr. |
4. Hver á eigið fé sem myndast vegna matsbreytinga fjárfestingareigna í húsnæðissjálfseignarstofnunum?
Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, starfa húsnæðissjálfseignarstofnanir samkvæmt lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, sé ekki kveðið á um annað í lögum nr. 52/2016. Sjálfseignarstofnun er sjálfstæður lögaðili sem á sig sjálf. Það eigið fé sem myndast við rekstur stofnunarinnar, svo sem vegna matsbreytinga fjárfestingareigna, tilheyrir því stofnuninni sjálfri en hvorki stofnendum hennar, stjórnarmönnum né öðrum aðilum.
Fjallað er um endurgreiðslu stofnframlaga í 16. gr. laga um almennar íbúðir. Við endurgreiðslu stofnframlaga rennur hluti af því eigin fé sem verður til vegna matsbreytinga aftur til þeirra aðila sem veittu stofnframlagið. Endurgreiðslur stofnframlaga renna annars vegar í Húsnæðismálasjóð (endurgreiðsla á stofnframlagi ríkisins) og hins vegar til viðkomandi sveitarfélags (endurgreiðsla á stofnframlagi frá hlutaðeigandi sveitarfélagi).
Endurgreiða skal stofnframlag ef íbúð er seld eða notkun hennar breytt að verulegu leyti eða íbúðin er leigð öðrum en leigjendum undir tekju- og eignamörkum laganna. Jafnframt er heimilt að gera að skilyrði við úthlutun stofnframlaga að þau verði endurgreidd þegar upphafleg lánsfjármögnun hefur verið greidd upp, íbúð fer í útleigu eða samkvæmt samkomulagi um hvenær endurgreiðslur stofnframlaga skuli hefjast. Þrátt fyrir að um heimildarákvæði sé að ræða hefur í framkvæmd verið gerð slík krafa um endurgreiðslu stofnframlaga allt frá upphafi. Þess skal þó getið að samkvæmt lögunum verður ekki gerð krafa um endurgreiðslu viðbótarframlaga frá ríkinu sem veitt eru vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga og vegna íbúðarhúsnæðis sem ætlað er námsmönnum eða öryrkjum, sbr. 2. mgr. 11. gr. laganna. Hið sama á við um sérstakt byggðaframlag frá ríkinu skv. 3. mgr. 11. gr. laganna.
Fjárhæð endurgreiðslu stofnframlags skal nema sama hlutfalli af verði almennrar íbúðar við endurgreiðslu og stofnframlag nam af upphaflegu stofnvirði hennar. Við ákvörðun endurgreiðslufjárhæðar skal miða við mat óhlutdrægs aðila á söluvirði íbúðarinnar. Húsnæðismálasjóður, sem móttakandi endurgreiðslu á stofnframlagi ríkisins, og hlutaðeigandi sveitarfélag sem veitti stofnframlag fá þannig hlutdeild í matsbreytingum eigna við endurgreiðslu stofnframlaga.
Jafnframt kveða lögin á um að við slit stofnunarinnar skuli framselja þær eignir sem eftir standa, þegar allar skuldir hafa verið greiddar og stofnframlög ríkis og sveitarfélaga endurgreidd, til Húsnæðismálasjóðs, skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 52/2016. Ásamt fyrrnefndum endurgreiðslum á stofnframlögum ríkisins, söluvirði almennra íbúða og andvirði eigna sem eftir standa við slit húsnæðissjálfseignarstofnunar, ber húsnæðissjálfseignarstofnunum enn fremur að greiða Húsnæðismálasjóði hagnað af sölu almennra íbúða, nema í þeim tilvikum þegar andvirði almennrar íbúðar sem er seld er notað til kaupa á íbúðarhúsnæði sem nota á í sama tilgangi. Enn fremur ber þeim að greiða í sjóðinn 50% af leigugreiðslum af almennum íbúðum, eftir að dreginn hefur verið frá kostnaður vegna reksturs þeirra. Um greiðslur húsnæðissjálfseignarstofnana í Húsnæðismálasjóð er að öðru leyti fjallað í 4. mgr. 22. gr. laga um almennar íbúðir.
Markmið framangreinds fyrirkomulags er að tryggja sjálfbærni almenna íbúðakerfisins þannig að fjármunir og uppsafnað eigið fé haldist innan kerfisins og nýtist áfram til byggingar og endurbóta á almennum íbúðum í þágu almennings. Þannig rennur það eigið fé sem verður til vegna matsbreytinga fjárfestingaeigna til Húsnæðissjóðs og til áframhaldandi uppbyggingar almenna íbúðakerfisins.
5. Hvernig hefur eigið fé húsnæðissjálfseignarstofnana þróast árin 2018–2026?
Ráðuneytið hefur ekki aðgang að umbeðnum upplýsingum.
6. Hvert er eigið fé þeirra húsnæðissjálfseignarstofnana sem hafa fengið stofnframlög frá ríkinu og hve stór hluti þess er vegna matsbreytinga fjárfestingareigna?
Ráðuneytið hefur ekki aðgang að umbeðnum upplýsingum.
7. Er lögaðila, sem leigir út húsnæði sem byggt eða keypt var að heild eða hluta með stofnframlögum skv. III. kafla laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, heimilt að binda leigu við önnur atriði en fjárhagsstöðu leigjanda? Ef svo er, er lögaðila heimilt að gera félagsaðild leigjanda að skilyrði fyrir leigu húsnæðis?
Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. og 1. mgr. 19. gr. laga um almennar íbúðir er meginreglan sú að almennum íbúðum skuli einungis úthlutað til leigjenda sem eru undir tilgreindum tekju- og eignamörkum við upphaf leigu.
Lögaðila er einnig heimilt að binda úthlutun og leigu við önnur málefnaleg sjónarmið en einvörðungu fjárhagsstöðu, að því tilskildu að umsækjandi uppfylli tekju- og eignamörk laganna. Þannig kemur fram í 3. mgr. 19. gr. laga nr. 52/2016 að almennt skuli farið eftir biðlista, en eiganda almennra íbúða er sérstaklega heimilt að setja reglur um forgangsrétt til leigu með hliðsjón af fjölskyldustærð, félagslegum aðstæðum eða fjárhagsstöðu. Jafnframt skal við úthlutun stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun.
Lögin gera einnig ráð fyrir að stofnframlög séu veitt vegna almennra íbúða sem ætlaðar eru sérstökum hópum. Skv. 2. mgr. 11. gr. laganna er til að mynda heimilt að veita viðbótarframlög vegna íbúðarhúsnæðis sem ætlað er námsmönnum eða öryrkjum. Þegar húsnæði er sérstaklega reist eða keypt fyrir tiltekinn markhóp (t.d. stúdentaíbúðir eða sérhæft húsnæði fyrir fatlað fólk) er úthlutun bundin því að umsækjandi tilheyri þeim hópi.
Að öðru leyti er eiganda almennra íbúða heimilt að setja eigin málefnalegu skilyrði fyrir úthlutun íbúða, en ákvæði 15. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga um almennar íbúðir kveður á um að í samþykktum húsnæðissjálfseignarstofnana skuli koma fram hvernig staðið skuli að úthlutun almennra íbúða.