Ferill 718. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1530  —  718. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Sif Árnadóttur um afgreiðslu umsókna hjá Rannís.


     1.      Hver er meðalafgreiðslutími umsókna til Rannís um staðfestingu rannsóknar- og þróunarverkefna samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki síðustu þrjú ár?
    Meðalafgreiðslutími umsókna síðustu þriggja ára er 240 dagar. Meðalafgreiðslutími miðast við tímabilið frá umsóknarfresti til lokaniðurstöðu frá Rannís.

     2.      Hversu margar umsóknir bíða nú afgreiðslu hjá Rannís og hversu margar þeirra hafa beðið lengur en:
                  a.      þrjá mánuði,
                  b.      sex mánuði,
                  c.      tólf mánuði?
    
Á árinu 2025 voru 467 umsóknir um skattaendurgreiðslu vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar teknar til afgreiðslu, en 60 umsóknum var hafnað vegna formsatriða. Af þeim sem voru teknar til efnislegrar afgreiðslu voru 329 umsóknir vegna nýrra verkefna og 138 umsóknir vegna framhaldsverkefna.
    Miðað við stöðuna 25. ágúst 2026 var staða umsókna eftirfarandi:
     –      Afgreiðslu 384 umsókna (82%) var lokið og 83 umsóknir (18%) í afgreiðsluferli.
     –      67 umsóknir um ný verkefni voru í afgreiðsluferli hjá Rannís, þar af 44 umsóknir þar sem beðið var svara frá fyrirtækjunum. Í þessum tilfellum hefur afgreiðsluferli því tekið um 11 mánuði. Til viðbótar voru fjórar umsóknir sem hafði verið hafnað en umsækjendur fóru fram á endurupptöku.
     –      11 framhaldsumsóknir voru í afgreiðsluferli hjá Rannís, þar af 8 umsóknir þar sem beðið var svara frá fyrirtækjum. Í þessum tilfellum hefur ferlið tekið rúma 16 mánuði. Til viðbótar var ein umsókn sem hafði verið hafnað en umsækjendur fóru fram á endurupptöku.

     3.      Hverjar eru helstu ástæður þess að afgreiðsla umsókna fyrir árið 2025 hefur tafist?
    Umsóknum hefur fjölgað verulega á undanförnum árum, m.a. í kjölfar breytinga á stuðningskerfinu frá árinu 2020. Jafnframt hefur fjölgað málum þar sem reynir á afmörkun og skilgreiningu rannsókna- og þróunarverkefna, samkvæmt lögum og reglugerðum. Kröfur um eftirlit hafa aukist, þar á meðal varðandi fjárhagsstöðu umsækjenda, sem í einhverjum tilvikum hefur kallað á frekari gagnaöflun og lengri afgreiðslutíma. Í mörgum málum hefur verið kallað eftir viðbótarupplýsingum og gögnum áður en unnt hefur verið að taka endanlega ákvörðun. Þannig hefur Rannís sent yfir 1.000 fyrirspurnir og óskir um viðbótarupplýsingar vegna umsókna ársins 2025.

     4.      Hefur verklag eða kröfur Rannís vegna umsókna breyst á síðustu árum, m.a. varðandi kröfur um frekari gögn eða upplýsingar eftir að umsókn hefur verið lögð fram?
    Í kjölfar nýs samnings Rannís og fjármála- og efnahagsráðuneytis í árslok 2023, og með hliðsjón af úttekt OECD árið 2023, hefur á síðustu árum verið lögð aukin áhersla á eftirlit, skýrari framkvæmd og upplýsingagjöf vegna stuðnings við rannsóknar- og þróunarverkefni í fyrirtækjum. Með breytingu á lögum nr. 152/2009, sem samþykkt var á Alþingi í lok árs 2024, ásamt reglugerðarbreytingu sem tók gildi í kjölfarið, voru þessar áherslur styrktar enn frekar. Aukið eftirlit hefur m.a. falið í sér ítarlegri skoðun á því hvort verkefni teljist raunverulega rannsóknar- og þróunarverkefni, hvort kostnaður sé styrkhæfur og hvort fyrirtæki séu í fjárhagsvanda. Samstarf og upplýsingamiðlun milli Rannís og Skattsins hefur einnig aukist í kjölfar lagabreytingarinnar í lok árs 2024.

     5.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja fyrirsjáanleika og eðlilegan afgreiðslutíma fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem reiða sig á endurgreiðslur vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar í rekstri sínum?
    Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða til að bæta fyrirsjáanleika og stytta afgreiðslutíma umsókna um stuðning vegna rannsókna og þróunarverkefna.
    Að frumkvæði menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra og í samræmi við ákvæði í lögum nr. 152/2009 hefur ráðgefandi fagnefnd um mat á rannsóknar- og þróunarverkefnum verið sett á fót. Nefndin er skipuð fulltrúum MNH, FJR og SA og hóf störf í apríl 2026. Hlutverk nefndarinnar er að veita Rannís ráðgefandi álit um einstök álitamál sem upp koma við mat á rannsóknar- og þróunarverkefnum, sér í lagi fagleg atriði umsókna. Álit nefndarinnar hafa lagt skýrari línur um álitamál sem snerta fjölmargar umsóknir og þannig haft áhrif til góðs á afgreiðsluhraða umsókna.
    Umsóknareyðublað hefur verið einfaldað fyrir nýjar umsóknir, frá og með árinu 2026. Markmið með þeim breytingum er að umsóknarferli verði einfaldara og skilvirkara fyrir bæði fyrirtæki og umsýsluaðila.
    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, unnið að heildarendurskoðun laga nr. 152/2009. Í fyrri áfanga þeirrar endurskoðunar var áhersla lögð á að bæta laga- og regluverk og skilyrði stuðningsins með það að markmiði að skýra framkvæmd og auka skilvirkni. Lagabreytingar þess efnis hafa þegar tekið gildi og munu koma til framkvæmda 1. október 2026. Í þeim breytingum felst m.a. heimild til að samþykkja verkefni til tveggja ára hjá litlum fyrirtækjum, í því skyni að auka fyrirsjáanleika og minnka umsýslubyrði fyrir lítil fyrirtæki.
    Seinni hluti heildarendurskoðunar á lögum og regluverki stuðningsins er langt kominn og frumvarp þess efnis mun verða kynnt í samráðsgátt á næstu vikum. Breytingar sem kynntar verða lúta meðal annars að skýrari skilgreiningum og skilyrðum stuðnings sem og breytingum á umsóknar- og málsmeðferð. Lagt er til að heimilt verði að staðfesta verkefni að hluta til og einnig að heimilt verði að staðfesta verkefni til allt að fjögurra ára í senn. Markmiðið er að auka fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki sem vinna að langtímaverkefnum og draga úr stjórnsýslubyrði sem felst í endurteknum umsóknum um sama verkefni.
    Aðrar fyrirhugaðar breytingar felast í því að sótt verði um verkefni til Rannís áður en það hefst, en ekki eftir að verkefnið er farið af stað, eins og reyndin er í dag. Þá er unnið að því að samræma skilgreiningar betur við GBER-reglur EES-samningsins, um almennar undanþágur frá tilkynningarskyldu vegna ríkisaðstoðar. Sérstök áhersla verður á að skýra reglur um styrkhæfan kostnað, eignarhald, hugverkaréttindi og aðkeypta þjónustu, bæði til að draga úr túlkunarvafa og einfalda eftirlit. Jafnframt er lagt til að komið verði á formlegri stjórnsýslukæruleið, sem myndi styrkja réttaröryggi umsækjenda.
    Almennt er þessum breytingum ætlað að stuðla að skilvirkari málsmeðferð og hraðari afgreiðslu umsókna, án þess að það komi niður á eftirliti og gæðum í umsýslu.

     6.      Hvenær telur ráðherra raunhæft að umsækjendur geti vænst svara við umsóknum sem bárust á árinu 2025?

    Rannís gerir ráð fyrir að ljúka afgreiðslu þeirra umsókna frá 2025 sem enn eru í afgreiðsluferli fyrir lok september, að því gefnu að nauðsynleg svör og gögn hafi borist frá umsækjendum. Í meira en helmingi þeirra mála sem eru óafgreidd er beðið frekari svara frá umsækjendum. Endanleg afgreiðsla einstakra mála getur þó tekið lengri tíma ef óskað er eftir endurupptöku eða ný gögn berast sem krefjast frekara efnislegs mats.