Ferill 503. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1531 — 503. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um afturköllun alþjóðlegrar verndar og umsóknir um alþjóðlega vernd sem hafa verið dregnar til baka.
1. Hversu oft hefur alþjóðleg vernd, sem veitt hefur verið af íslenskum stjórnvöldum, verið afturkölluð frá gildistöku laga nr. 80/2016, um útlendinga? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftir því hvort ákvörðunin hafi verið endanleg á stjórnsýslustigi af hálfu Útlendingastofnunar eða með úrskurði kærunefndar útlendingamála. Svarið óskast jafnframt sundurliðað eftir ríkisfangi og því hvort talið er að aðili/aðilar málsins hafi snúið aftur til heimaríkis eftir afturköllunina.
Í febrúar síðastliðnum var frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga samþykkt á Alþingi. Með breytingunni var stjórnvöldum heimilað að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarleg eða ítrekuð brot, sem og þeirra sem ógna öryggi ríkisins.
Samkvæmt skráningum í upplýsingakerfi Útlendingastofnunar hefur alþjóðleg vernd verið afturkölluð 238 sinnum frá gildistöku laga nr. 80/2016 þann 1. janúar 2017 til 1. júní 2026. Meðtalin eru þau tilvik þegar aðilar hafa sjálfir átt frumkvæði að því að afsala sér vernd. Í 12 tilvikum hafa ákvarðanir um afturköllun verndar verið staðfestar af kærunefnd útlendingamála en átta mál eru til meðferðar hjá kærunefnd útlendingamála.
Fjöldi afturkallana á alþjóðlegri vernd eftir afturköllunarári og ríkisfangi.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í 203 af 238 tilvikum var aðilum veitt annað dvalarleyfi eftir afturköllun verndar, oftast á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland, eða þá að þeir höfðu heimild til dvalar á öðrum grundvelli. 15 einstaklingar eru skráðir hafa farið til heimaríkis eða annars ríkis þar sem þeir höfðu heimild til dvalar, með aðstoð stjórnvalda eða á eigin vegum. Níu einstaklingar til viðbótar eru skráðir hafa yfirgefið landið en upplýsingar um hvert þeir fóru eru óstaðfestar.
2. Finnast dæmi þess eftir gildistöku laga nr. 80/2016 að alþjóðleg vernd hafi verið afturkölluð í kjölfar þess að handhafar verndarinnar hafi verið sakfelldir fyrir brot gegn XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940? Ef svo er, er óskað eftir því að fjöldi þeirra sé tilgreindur eftir árum og ríkisfangi.
Líkt og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar var frumvarp dómsmálaráðherra er varðar afturköllun verndar samþykkt á Alþingi í febrúar sl. Fram að því var ekki heimild í útlendingalögum til þess að afturkalla alþjóðlega vernd einstaklinga sem hafa verið sakfelldir fyrir brot gegn XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, né fyrir önnur brot á sömu lögum. Því eru ekki dæmi um afturkallanir á slíkum grundvelli á tímabilinu 1. janúar 2017 til 1. júní 2026.
3. Hversu margir hafa dregið umsókn sína um alþjóðlega vernd til baka á árunum 2017– 2025, að báðum árum meðtöldum? Svar óskast sundurliðað eftir árum og ríkisfangi.
Sjá yfirlit hér að aftan.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.