Ferill 515. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1532 — 515. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um fjölda handtekinna með erlent ríkisfang.
1. Hve margir einstaklingar með erlent ríkisfang voru handteknir 2019–2025, sundurliðað eftir árum, tegund brota og þjóðerni?
Ráðuneytið kallaði eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra vegna fyrirspurnarinnar. Samkvæmt embættinu eru fyrirliggjandi tölfræðiupplýsingar um fjölda handtekinna einstaklinga aðgengilegar með uppflettingu í kerfum lögreglunnar, sundurliðað eftir því hvort viðkomandi hafi íslenskt eða erlent ríkisfang. Ekki eru fyrirliggjandi tölur um fjölda handtekinna sundurliðað eftir þjóðerni og tegund brota.
Athygli er vakin á því að samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra þarf að taka mið af því að ríkisfang segir ekki til um hvort viðkomandi sé búsettur hér á landi. Í tölunum geta því verið ferðamenn eða aðrir sem dvelja hér í styttri tíma.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 1. Fjöldi handtekinna árin 2019 og til og með 24. júní 2026, sundurliðað eftir því hvort viðkomandi hafi íslenskt eða erlent ríkisfang.
Á mynd 1 hér fyrir ofan má sjá heildarfjölda einstaklinga sem voru handteknir ár hvert, ásamt sundurliðun eftir því hvort hinn handtekni var með íslenskt ríkisfang eða erlent, árin 2019–2025, og hversu margir hafa verið handteknir á árinu 2026 miðað við stöðuna 24. júní 2026. Flestir voru handteknir árið 2019 eða rétt tæplega 5.000 einstaklingar og næst flestir í fyrra eða rúmlega 4.800 einstaklingar.
2. Hvert var hlutfall útlendinga af heildarfjölda handtekinna á hverju ári á sama tímabili, sundurliðað eftir tegund brota? Óskað er eftir því að ef um er að ræða handtöku vegna gruns um brot á almennum hegningarlögum verði svarið sundurliðað eftir brotaflokkum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 2. Hlutfall handtekinna árin 2019 til og með 24. júní 2026, sundurliðað eftir því hvort viðkomandi hafi íslenskt eða erlent ríkisfang.
Á mynd 2 hér fyrir ofan má sjá hlutfall handtekinna einstaklinga, fyrir hvers konar brot ár hvert, frá ársbyrjun 2019 til og með 24. júní 2026, sundurliðað eftir því hvort hinn handtekni var með íslenskt ríkisfang eða erlent.
Í þessu sambandi er notast við breytuna ríkisfang til að greina á milli, en hugtakið útlendingur er meðal annars skilgreint í lögum um útlendinga, nr. 80/2016, sem einstaklingur sem hefur ekki íslenskan ríkisborgarétt. Sjá má á tölunum að flestir íslenskir ríkisborgarar voru handteknir árið 2019, eða rétt yfir 3.100 einstaklingar. Hins vegar voru flestir erlendir ríkisborgarar handteknir árið 2025, eða rúmlega 2.000 einstaklingar
Sundurliðun hlutfalla eftir tegund brota er ekki fyrirliggjandi eins og fyrr greinir.