Ferill 663. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1533 — 663. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um stöðugildi hjá RÚV.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve mörg stöðugildi fréttamanna og dagskrárgerðarmanna hafa verið hjá RÚV þau ár sem stuðningur við einkarekna fjölmiðla hefur verið veittur? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fastra stöðugilda annars vegar og verktaka hins vegar.
2. Hefur ráðuneytið upplýsingar um fjölgun eða fækkun stöðugilda hjá RÚV, þ.m.t. verktaka? Ef svo er, hver hefur þróunin verið á þeim árum sem rekstrarstuðningur við einkarekna fjölmiðla hefur verið veittur?
Stuðningur við einkarekna fjölmiðla hefur verið veittur árlega frá árinu 2021 samkvæmt lögum nr. 58/2021. Áður hafði sérstakur tímabundinn stuðningur verið veittur árið 2020 vegna kórónuveirufaraldursins. Faraldurinn og efnahagsleg áhrif hans höfðu veruleg áhrif á rekstur RÚV á árunum 2020–2022 og til að gefa skýrari mynd af þróun stöðugilda fyrir og eftir þetta tímabil eru upplýsingar fyrir árið 2019 því einnig teknar með.
Við túlkun upplýsinganna þarf að hafa í huga að flokkun starfsmanna sem fréttamanna eða dagskrárgerðarmanna byggist á starfsheitum í mannauðskerfi RÚV og er ekki í öllum tilvikum einhlít. Starfssvið geta skarast, starfsheiti hafa í sumum tilvikum breyst á tímabilinu og breytingar á skipulagi eða verkefnum geta haft áhrif á flokkun einstakra starfsmanna án þess að samsvarandi breyting verði á heildarfjölda stöðugilda. Á þetta einkum við um starfsmenn sem sinna fréttatengdri dagskrárgerð þvert á miðla RÚV. Tölurnar ber því fyrst og fremst að líta á sem vísbendingu um þróun þessara starfshópa fremur en nákvæma afmörkun á öllu vinnuframlagi við fréttir og dagskrárgerð.
Þá ná tölur um fréttamenn ekki eingöngu til starfsmanna fréttastofu heldur einnig til íþróttafréttamanna og nokkurra starfsmanna á dagskrárdeild sjónvarps og í útvarpi. Að sama skapi nær flokkur dagskrárgerðarmanna eingöngu til þeirra starfsmanna sem bera starfsheiti sem falla undir þann flokk. Aðrir starfsmenn sem koma með beinum hætti að gerð dagskrárefnis, svo sem pródúsentar, klipparar og myndatökumenn, teljast ekki til dagskrárgerðarmanna í þessari sundurliðun.
Í eftirfarandi töflu má sjá þróun fastra stöðugilda hjá RÚV á árunum 2019–2025. Stöðugildum fækkaði um 7% frá 2019 til 2022, m.a. vegna aðgerða til að bregðast við erfiðri rekstrarstöðu í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Tekjur RÚV drógust verulega saman á árunum 2020 og 2021 og mikil verðbólga setti jafnframt aukinn þrýsting á reksturinn árið 2022. Stöðugildum fjölgaði á ný á árunum 2023 og 2024 samhliða bættri tekjuþróun og lækkandi verðbólgu. Á árinu 2025 var stöðugildum aftur fækkað í 269 sem var liður í aðgerðum til að bæta rekstrarstöðu RÚV. Það sem af er árinu 2026 hafa stöðugildi verið um 270. Heildarfjöldi stöðugilda hjá RÚV er því nú svipaður og árið 2019, áður en stuðningur við einkarekna fjölmiðla kom til.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þegar þróun einstakra starfshópa er skoðuð sést að samsetning stöðugilda hjá RÚV hefur breyst á tímabilinu. Stöðugildi fréttamanna voru 64 árið 2019 og 70 árið 2025, en voru fæst 63 árið 2022. Stöðugildi starfsmanna sem flokkaðir eru sem dagskrárgerðarmenn voru 45 árið 2019 en voru 49 á síðasta ári. Samanlagt fjölgaði því stöðugildum þessara tveggja starfshópa úr 109 í 119, eða um 9%, frá árinu 2019 til ársins 2025. Á sama tíma fækkaði heildarstöðugildum RÚV úr 271 í 269. Þróunin endurspeglar því fyrst og fremst breytta samsetningu starfsmannahópsins fremur en fjölgun stöðugilda hjá RÚV í heild.
Við mat á þessari þróun þarf jafnframt að hafa framangreinda fyrirvara um starfaflokkun í huga. Breytingar á verkefnum, skipulagi og starfsheitum geta haft áhrif á það undir hvaða starfshóp einstakir starfsmenn falla og því þarf að túlka breytingar á einstökum starfshópum með hliðsjón af því.
Varðandi verktaka þarf að hafa í huga að eðli verktöku hjá RÚV er mjög fjölbreytt og fjöldi einstaklinga sem fá verktakagreiðslur gefur því takmarkaða mynd af umfangi vinnuframlags. Árlega fá um 800–900 einstaklingar einhverjar verktakagreiðslur frá RÚV. Þörf fyrir verktaka ræðst meðal annars af árstíðasveiflum, stórum viðburðum og ójafnri mannaflaþörf yfir árið. Þá skal það jafnframt tekið fram að í meira en áratug hefur gilt sú regla hjá RÚV að einstaklingur geti ekki verið launamaður og verktaki hjá RÚV á sama tíma.
Umfang verktöku er mjög mismunandi. Sumir verktakar, svo sem tökumenn og þýðendur, sinna verkefnum reglulega yfir árið en aðrir fá aðeins eina eða fáar greiðslur, t.d. fyrir einstakan pistil í útvarpi eða tónlistaratriði í sjónvarpi. Langstærstur hluti þeirra einstaklinga sem teljast til verktaka fær því aðeins óverulegar greiðslur frá RÚV á hverju ári.
Fjöldi verktaka sem sinna reglubundinni dagskrárgerð eða fréttamennsku hefur verið um 23–26 á ári undanfarin ár, en var lægri á árunum 2021 og 2022. Vinnuframlag verktaka er ekki skráð í stöðugildum í gögnum RÚV og hefur umfang vinnuframlags þeirra því verið gróflega áætlað og umreiknað í heilsársstöðugildi fyrir þessa samantekt. Samkvæmt því mati hefur umfangið numið um 9–12 stöðugildum á ári.
Rétt er að leggja áherslu á að hér er um gróft mat að ræða. Til einföldunar og til að tryggja samanburðarhæfni milli ára er í matinu fyrst og fremst horft til verktaka sem sinna reglulegri dagskrárgerð eða fréttamennsku, svo sem vikulegri þáttagerð í útvarpi. Ekki eru teknir með verktakar sem sinna tímabundnum afleysingum, einstökum pistlum eða innslögum né stökum þáttum eða þáttaröðum.