Ferill 716. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1535  —  716. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um flutningskostnað raforku.


     1.      Hefur verið metið innan ráðuneytisins hvaða áhrif flutningskostnaður raforku á landsbyggðinni hefur á heimili, fyrirtæki og atvinnuuppbyggingu?
    Rétt er að hafa í huga að flutningskostnaður er einn af þremur meginþáttum raforkukostnaðar, ásamt kostnaði vegna orkuvinnslu og dreifingar, og myndar almennt minnsta hlutann af þeim kostnaðarliðum.
    Flutningskostnaður raforku hefur sveiflast meira en venjulegt er undanfarin ár og misseri vegna ýmissa þátta. Ber þar helst að nefna skerðingar á raforku vegna slæmra vatnsára, erfiðleika í rekstri nokkurra stórnotenda og dómsmála vegna gjaldskrárbreytinga Landsnets.
    Þrátt fyrir að framangreind atriði hafi valdið meiri sveiflum á gjaldskrá fyrirtækisins en búast má við að jafnaði hefur hlutfall flutningskostnaðar af raforkukostnaði lækkað undanfarin ár og áætlanir Landsnets gefa ekki tilefni til þess að ætla að það breytist.
    Í einstökum tilfellum hefur á sér stað veruleg hækkun á flutningskostnaði þar sem notendur hafa ekki lengur átt kost á því að semja um skerðanlegan flutning í kjölfar staðbundinnar styrkingar flutningskerfisins. Í slíkum tilfellum er í raun ekki um gjaldskrárhækkun að ræða heldur er verið að greiða venjulegt gjald fyrir betra og öruggara flutningskerfi í stað afsláttarverðs fyrir verra og óáreiðanlegra flutningskerfi.
    Flutningskostnaður er sá sami um land allt en ólíkur eftir því hvort um er að ræða flutning til stórnotanda eða almenns notanda sem tengist í gegnum dreifiveitu. Flutningskostnaður, einn og sér, er ekki talinn hafa ráðandi áhrif á atvinnuuppbyggingu heldur kemur þar fleira til, eins og afhendingaröryggi og afhendingargeta raforku. Nánari umfjöllun um raforkuverð, dreifikostnað og flutningskostnað má sjá í skýrslu Raforkueftirlitsins, Þróun raforkukostnaðar og áhrif á notendur og mælaborði á heimasíðu eftirlitsins.

     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að tryggja að flutningskostnaður raforku verði ekki til þess að draga úr samkeppnishæfni atvinnulífsins eða gera aukna raforkunotkun og orkuskipti óhagkvæm? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Ráðherra leggur áherslu á að flutningskostnaður raforku sé hóflegur, fyrirsjáanlegur og styðji við samkeppnishæfni atvinnulífsins, orkuskipti og hagkvæma nýtingu raforku. Jafnframt fylgist ráðherra vel með samkeppnishæfni flutningskerfisins og þróun gjaldskrármála.
    Hlutfall flutningskostnaðar af heildarkostnaði raforku hefur lækkað. Á sama tíma hefur verið ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar til að bæta afhendingaröryggi og auka flutningsgetu kerfisins. Nauðsynleg uppbygging flutningskerfisins getur falið í sér kostnað til skemmri tíma en skapar jafnframt forsendur fyrir aukinni orkuöflun, orkuskiptum, atvinnuuppbyggingu og minni kostnaði vegna flöskuhálsa og rekstrartruflana til lengri tíma.
    Flutningur raforku er sérleyfisstarfsemi og flutningsfyrirtækið sætir lögbundnu eftirliti Raforkueftirlits Umhverfis- og orkustofnunar. Raforkueftirlitið ákvarðar tekjumörk fyrirtækisins og hefur eftirlit með kostnaðarskiptingu þess og gjaldskrám. Gjaldskrárbreytingar eru teknar til yfirferðar áður en þær taka gildi og gjaldskrár skulu endurspegla kostnað og stuðla að skilvirkni, hagkvæmni og jafnræði. Þetta eftirlitskerfi er grundvallarþáttur í því að gæta hagsmuna notenda og tryggja að sérleyfisstaða flutningsfyrirtækisins leiði ekki til óeðlilegs kostnaðar.
    Samkeppnishæfni raforkukerfisins ræðst þó ekki eingöngu af gjaldskrá eða verði raforku. Hún byggist einnig á þáttum á borð við afhendingaröryggi, flutnings- og afhendingargetu, stöðugleika kerfisins, nýtingu þess og aðgengi að nægjanlegri raforku á viðráðanlegu verði. Það er markmið ríkisstjórnarinnar að efla samkeppnishæfni raforkukerfisins og samfélagsins í heild. Það er langtímaverkefni sem krefst skynsamlegra ákvarðana og samfelldrar uppbyggingar innviða.
    Þótt síðustu ár hafi einkennst af ákveðnum óstöðugleika, m.a. vegna slæmra vatnsára og tilheyrandi orkuskerðinga, rekstrarerfiðleika stórnotenda sem og ágreinings og málaferla um innmötunargjald hefur þróunin til lengri tíma litið að mörgu leyti verið jákvæð.
    Ráðuneytið hefur regluverk um tekjumörk og gjaldskrár flutningsfyrirtækisins ávallt til skoðunar. Þar á meðal er metið hvort þörf sé á breytingum á raforkulögum eða regluverki sem gætu aukið svigrúm til markvissari gjaldskrárþróunar og betri nýtingar flutningskerfisins, án þess að vikið sé frá kröfum um gagnsæi, kostnaðartengingu, jafnræði og sjálfstætt eftirlit. Markmiðið er að gjaldskrárfyrirkomulagið styðji sem best við samkeppnishæfni, atvinnuuppbyggingu og orkuskipti, auk þess að tryggja jafnt aðgengi að raforku um land allt. Til marks um viðvarandi eftirfylgni ráðuneytisins má nefna frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (hagkvæmari uppbygging raforkukerfisins og sjálfstæði Raforkueftirlitsins), á þingmálaskrá.
    Þá má nefna að samkomulag ráðuneytisins við Landsnet lagði grunn að hagkvæmari uppbyggingu flutningskerfis á Norðausturlandi en ella hefði verið möguleg. Sú uppbygging skapar mikilvægar forsendur fyrir aukinni orkuvinnslu og raforkunotkun á svæði sem hefur lengi setið eftir vegna innviða sem ekki hafa að fullu staðið undir kröfum samtímans.