Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1536  —  509. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjölda gæsluvarðhalds- og afplánunarfanga.


    Leitað var til Fangelsismálastofnunar vegna fyrirspurnarinnar og er svar ráðherra byggt á upplýsingum þaðan. Fangelsismálastofnun heldur ekki utan um skráningu á upphaflegu ríkisfangi fanga og er því einungis hægt að veita upplýsingar um núverandi ríkisfang þeirra.
    Staða fullnustukerfisins hefur um langa hríð verið þung, skortur á afplánunarrýmum viðvarandi og þeim hefur ekki fjölgað um árabil. Þá hafa dæmdar fangelsisrefsingar og boðunarlisti lengst umfram það sem fangelsiskerfið getur tekið við á hverjum tíma.
    Unnið er að markvissum aðgerðum til þess að bregðast við stöðunni og í haust hefst jarðvegsvinna við öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni. Fangelsið verður fyrsta öryggisfangelsi á Íslandi með 128 afplánunarrými og bætir aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum, efla öryggi og skapa betri skilyrði fyrir menntun, endurhæfingu og meðferð. Þá hefjast einnig framkvæmdir við opna fangelsið að Sogni og fjölgar afplánunarrýmum úr 21 í 35 að framkvæmdum loknum.
    Þá er vert að taka fram að dómsmálaráðuneytið hefur jafnframt nýverið tekið til endurskoðunar verkferla vegna flutnings dæmdra einstaklinga milli ríkja og afplánunar refsinga í heimaríki á grundvelli alþjóðasamninga sem um slíkt samstarf gilda. Haft er að markmiði að um skilvirkt og raunhæft úrræði verði að ræða.

     1.      Hver var heildarfjöldi gæsluvarðhaldsfanga á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni? Einnig er óskað eftir meðallengd gæsluvarðhalds í dögum yfir sama tímabil, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni.
    Í eftirfarandi töflu má sjá heildarfjölda gæsluvarðhaldsfanga á umbeðnu tímabili, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni.
    Vakin er athygli á því að gæsluvarðhaldsfangar geta verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald oftar en einu sinni á fyrrgreindu tímabili og teljast þá jafn oft sem gæsluvarðhaldsfangar.

Heildarfjöldi gæsluvarðhaldsfanga 2019–2025.

Ríkisfang Karlar Konur
Afganistan 11 0
Albanía 117 3
Alsír 6 0
Argentína <3 <3
Austurríki <3 <3
Bandaríkin 5 <3
Belarús 5 0
Belgía <3 <3
Bosnía og Hersegóvína <3 0
Brasilía 6 9
Bretland 13 0
Búlgaría <3 0
Danmörk 7 0
Dóminíka 0 <3
Dóminíska lýðveldið <3 <3
Egyptaland 3 0
Eistland <3 0
Fílabeinsströndin <3 0
Frakkland 13 9
Gambía <3 0
Gana 5 <3
Georgía 86 8
Gínea 3 0
Grikkland 12 <3
Grænland <3 0
Gvæjana <3 0
Holland 15 8
Indland <3 0
Írak 14 0
Íran <3 0
Ísland 415 62
Ísrael <3 0
Ítalía 8 <3
Jamaíka <3 0
Jemen <3 0
Kanada 20 7
Kirgistan <3 0
Kína 10 <3
Kólumbía 11 3
Króatía 3 0
Lettland 33 <3
Litáen 64 6
Líbía <3 0
Marokkó 15 <3
Máritanía <3 0
Mexíkó 3 0
Moldóva 4 <3
Níger <3 0
Nígería 17 10
Pakistan 3 0
Palestína 24 <3
Perú <3 <3
Portúgal 8 6
Pólland 106 14
Ríkisfangslaus einstaklingur <3–1 0
Rúmenía 42 4
Rússland 11 0
Sameinuðu arabísku furstadæmin <3 0
Serbía og Svartfjallaland <3 0
Síerra Leóne <3 0
Slóvakía <3 <3
Sómalía <3 0
Spánn 42 24
Súrínam 5 <3
Sviss <3 0
Svíþjóð 4 <3
Sýrland 10 <3
Tadsíkistan 3 0
Taívan <3 0
Tékkland <3 0
Túnis <3 <3
Tyrkland <3 0
Ungverjaland <3 <3
Úkraína <3 0
Venesúela 4 <3
Víetnam 4 0
Þýskaland 3 <3
Samtals 1239 203

    Í töflunni hér að aftan má sjá meðallengd gæsluvarðhalds í dögum á umbeðnu tímabili, sundurliðað eftir ríkisfangi og kyni.

Meðallengd gæsluvarðhalds í dögum 2019–2025.

Ríkisfang Karlar Konur
Afganistan 38,7 0
Albanía 27,3 11
Alsír 48,2 0
Argentína 0 63
Austurríki 84,5 78
Bandaríkin 119 25,5
Belarús 25,2 0
Belgía 17,5 60
Bosnía og Hersegóvína 212 0
Brasilía 78 111,6
Bretland 60,8 0
Búlgaría 134 0
Danmörk 161,7 0
Dóminíka 0 80
Dóminíska lýðveldið 147 104
Egyptaland 165 0
Eistland 7 0
Fílabeinsströndin 11,5 0
Frakkland 111 71,4
Gambía 42 0
Gana 25,2 2
Georgía 11,2 7,9
Gínea 6,3 0
Grikkland 72,4 58,5
Grænland 770 0
Gvæjana 14 0
Holland 49,5 96,5
Indland 14 0
Írak 31,3 0
Íran 9 0
Ísland 106 43,3
Ísrael 3 0
Ítalía 65,8 59,5
Jamaíka 163 0
Jemen 243,5 0
Kanada 54,1 33,7
Kirgistan 5 0
Kína 9,6 7
Kólumbía 130,3 166,7
Króatía 36,3 0
Lettland 42,2 84
Litáen 35,5 25,8
Líbía 5 0
Marokkó 40,4 9
Máritanía 64 0
Mexíkó 115,7 0
Moldóva 9,5 6
Níger 61 0
Nígería 54,1 44,2
Pakistan 8,7 0
Palestína 34,5 1
Perú 156 156
Portúgal 34,5 93,8
Pólland 75,5 166,8
Ríkisfangslaus einstaklingur 19 0
Rúmenía 2,77 15,5
Rússland 46,5 0
Sameinuðu arabísku furstadæmin 7 0
Serbía og Svartfjallaland 9 0
Síerra Leóne 39 0
Slóvakía 6 184
Sómalía 1 0
Spánn 77,3 68,3
Súrínam 110,8 14
Sviss 68 0
Svíþjóð 149 34
Sýrland 77 6
Tadsíkistan 46,3 0
Taívan 7 0
Tékkland 47,5 0
Túnis 5 12
Tyrkland 2,5 0
Ungverjaland 35 99
Úkraína 4 0
Venesúela 22 45,5
Víetnam 24,8 0
Þýskaland 264,5 184
Meðaltal 68,2 64,1

     2.      Hver var heildarfjöldi afplánunarfanga á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi, kyni og tegund afplánunarúrræðis? Einnig er óskað eftir meðallengd afplánunar í mánuðum yfir sama tímabil, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni.
    Tölur í eftirfarandi töflu sýna vistunarstað við lok afplánunar eða núverandi vistunarstað þeirra fanga sem voru í afplánun í desember 2025.
    Vakin er athygli á því að afplánunarfangar geta afplánað oftar en einu sinni á fyrrgreindu tímabili og teljast þá jafn oft sem afplánunarfangar.

Heildarfjöldi afplánunarfanga á árunum 2019–2025.

Afplánunarstaður/ríkisfang Karlar Konur
Fangelsið Akureyri
Ísland 9 0
Litáen 1 0
Pólland 1 0
Fangelsið Hólmsheiði
Albanía 5 0
Alsír 2 0
Argentína 0 1
Austurríki 0 1
Bandaríkin 1 1
Belarús 1 0
Belgía 0 1
Brasilía 2 6
Bretland 4 0
Búlgaría 1 0
Danmörk 2 0
Dóminíka 0 1
Dóminíska lýðveldið 1 1
Frakkland 4 5
Franska Gínea 0 1
Gambía 1 0
Georgía 3 0
Grikkland 2 1
Grænland 1 0
Holland 5 4
Írak 2 0
Ísland 160 33
Ítalía 3 2
Jamaíka 1 0
Kanada 7 4
Kólumbía 2 1
Kósovó 1 0
Lettland 9 1
Litáen 6 2
Makedónía 1 0
Marokkó 1 0
Mexíkó 2 0
Níger 1 0
Nígería 3 6
Perú 1 0
Portúgal 1 3
Pólland 21 3
Rúmenía 7 0
Rússland 1 0
Síerra Leóne 1 0
Spánn 10 20
Súrínam 3 0
Sviss 1 0
Sýrland 3 0
Taíland 0 1
Ungverjaland 0 2
Venesúela 1 1
Þýskaland 1 0
Fangelsið Litla-Hrauni
Afganistan 1 0
Bandaríkin 1 0
Brasilía 2 0
Bretland 4 0
Búlgaría 1 0
Danmörk 1 0
Frakkland 4 0
Gana 1 0
Georgía 1 0
Grikkland 1 0
Holland 4 0
Ísland 215 0
Ítalía 2 0
Kanada 6 0
Kólumbía 1 0
Króatía 1 0
Lettland 12 0
Litáen 17 0
Marokkó 1 0
Máritanía 1 0
Mexíkó 1 0
Nígería 2 0
Palestína 2 0
Portúgal 4 0
Pólland 32 0
Rúmenía 4 0
Rússland 4 0
Spánn 16 0
Svíþjóð 1 0
Sýrland 3 0
Tadsíkistan 1 0
Tékkland 1 0
Úkraína 2 0
Víetnam 1 0
Þýskaland 1 0
Fangelsið Sogni
Austurríki 1 0
Brasilía 0 2
Frakkland 1 0
Holland 0 2
Ísland 59 14
Jemen 1 0
Lettland 1 0
Litáen 2 0
Líbía 1 0
Nígería 1 0
Portúgal 0 2
Pólland 4 3
Rúanda 1 0
Rúmenía 1 0
Spánn 1 1
Venesúela 1 0
Fangelsið Kvíabryggju
Albanía 3 0
Austurríki 1 0
Dóminíska lýðveldið 1 0
Egyptaland 1 0
Grikkland 1 0
Holland 1 0
Írak 2 0
Ísland 48 1
Kólumbía 2 0
Lettland 2 0
Pólland 3 0
Spánn 2 0
Ungverjaland 1 0
Áfangaheimilið Vernd
Ástralía 0 1
Danmörk 1 0
Frakkland 1 0
Holland 3 0
Ísland 66 7
Lettland 1 0
Litáen 1 0
Marokkó 2 0
Nígería 1 0
Pakistan 1 0
Perú 0 1
Pólland 12 0
Rúmenía 1 0
Spánn 1 0
Sýrland 1 0
Þýskaland 1 0
Rafrænt eftirlit
Albanía 2 0
Holland 0 1
Ísland 134 13
Kenía 0 1
Lettland 2 0
Litáen 8 0
Máritanía 1 0
Portúgal 1 1
Pólland 18 3
Rúmenía 2 0
Rússland 1 0
Síerra Leóne 1 0
Spánn 1 1
Sýrland 1 0
Túnis 1 0
Barna- og fjölskyldustofa
Ísland 3 0
Hlaðgerðarkot
Ísland 24 9
Krýsuvík
Ísland 13 5
SÁÁ
Ísland 43 4
Pólland 1 0
Sjúkrahús/meðferðarstofnun
Danmörk 1 0
Ísland 14 5
Samtals 1156 179

    Í eftirfarandi töflu er afplánunartími þeirra sem voru í afplánun 31. desember 2025 ekki tekinn með þar sem heildartími afplánunar þeirra liggur ekki fyrir. Þá voru jafnframt nokkrir sem afplánuðu refsingu sína að fullu í gæsluvarðhaldi.

Meðaltal afplánunar í mánuðum talið á árunum 2019–2025.

Ríkisfang Karlar Konur
Albanía 7,6 0
Alsír 1 0
Argentína 0 0,9
Austurríki 4,5 0
Ástralía 0 3
Bandaríkin 9,2 0,4
Belarús 0,3 0
Belgía 0 0,1
Brasilía 4,8 1,7
Bretland 4,2 0
Búlgaría 0,4 0
Danmörk 5,5 0
Dóminíka 0 3
Dóminíska lýðveldið 3,8 3,7
Egyptaland 19,1 0
Frakkland 4,3 2,1
Franska Gínea 0 1
Gambía 0,5 0
Gana 5,4 0
Georgía 1,2 0
Grikkland 2,6 11,5
Grænland 7,2 0
Holland 7,7 11,5
Írak 3,4 0
Ísland 13,1 6,9
Ítalía 2,8 2
Jamaíka 0,4 0
Jemen 79,5 0
Kanada 0,9 1
Kenía 0 17,7
Kólumbía 2 1,1
Kósovó 3,4 0
Lettland 6,6 1,3
Litáen 8,9 0,5
Líbía 12,8 0
Makedónía 15 0
Marokkó 36,3 0
Máritanía 15,6 0
Mexíkó 8,4 0
Níger 5,7 0
Nígería 4,6 2,8
Pakistan 0,1 0
Perú 6,5 6,4
Portúgal 8,7 6,4
Pólland 9,2 15,3
Rúanda 19,7 0
Rúmenía 7,7 0
Rússland 11 0
Síerra Leóne 11,3 0
Spánn 5,4 3,6
Súrínam 6,6 0
Sviss 2,5 0
Sýrland 3,4 0
Tadsíkistan 3,5 0
Taíland 0 3
Tékkland 2,7 0
Túnis 12 0
Ungverjaland 9,6 0
Úkraína 2,9 0
Venesúela 6,8 4,3
Víetnam 0,5 0
Þýskaland 16,5 0
Meðaltal 11,4 6,2

     3.      Hver var árlegur fjöldi einstaklinga sem afplánuðu íslenska fangelsisdóma erlendis á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
    Á árunum 2019–2025 samþykktu norræn fangelsisyfirvöld yfirtöku á íslenskum fangelsisrefsingum hjá 10 dómþolum að fullu eða að hluta.

Samþykkt yfirtaka á fullnustu refsingar að fullu/að hluta á árunum 2019–2025.

Ár/Ríkisfang Karlar Konur
2019
Grænland 1 0
Ísland 1 1
2020
Svíþjóð 1 0
2021
Danmörk 2 0
Ísland 2 0
2022
Ísland 1 0
2024
Danmörk 1 0

     4.      Hver var árlegur fjöldi einstaklinga á biðlista eftir afplánun árin 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
    Fangelsismálastofnun heldur skrá yfir fjölda dómþola sem hafa hlotið dóm og hafa verið boðaðir til afplánunar, svokallaðan boðunarlista. Í lok hvers árs er skráður fjöldi þeirra sem eru á boðunarlista, en ekki er haldið utan um ríkisfang eða kyn þeirra sem eru á listanum. Á hinn bóginn er unnt að sýna stöðuna á boðunarlistanum miðað við nýlega stöðu, sbr. eftirfarandi töflu.

Fjöldi dómþola á boðunarlista í maí 2026.

Ríkisfang Karlar Konur
Afganistan 3 1
Albanía 14 0
Alsír 1 1
Bandaríkin 2 0
Belgía 1 0
Bólivía 1 3
Bretland 1 0
Eistland 2 0
Eritrea 1 0
Filippseyjar 1 0
Gana 2 0
Georgía 14 1
Gínea 1 0
Grikkland 0 1
Holland 3 0
Indland 1 0
Írak 5 0
Íran 8 1
Ísland 388 51
Jemen 1 0
Kenía 2 0
Kína 2 0
Kólumbía 1 1
Lettland 10 1
Litáen 37 0
Marokkó 7 1
Máritanía 1 0
Nígería 3 0
Ótilgreint land 1 0
Pakistan 2 0
Palestína 6 0
Pólland 75 8
Ríkisfangslaus/ekki skráð 2 0
Rúmenía 17 2
Rússland 1 0
Slóvenía 1 1
Sómalía 13 0
Spánn 4 1
Svíþjóð 3 0
Sýrland 2 0
Taíland 0 1
Tadsíkistan 1 0
Túnis 1 0
Tyrkland 5 0
Ungverjaland 1 0
Úkraína 2 0
Venesúela 2 0
Þýskaland 1 0
Samtals 653 75

Heildarfjöldi á boðunarlista á tímabilinu 2019–2025.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     5.      Hver var árlegur fjöldi einstaklinga sem fallið höfðu af biðlista eftir afplánun vegna fyrningar fangelsisdóms á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
    

Fjöldi fyrndra fangelsisrefsinga (að hluta eða öllu leyti).

Ár/ríkisfang Karlar Konur
2019
Afganistan 1 0
Georgía 1 0
Ísland 10 1
Litáen 2 0
Máritanía 1 0
2020
Bandaríkin 1 0
Danmörk 1 0
Ísland 15 1
Litáen 3 0
Pólland 1 0
2021
Bandaríkin 1 0
Bretland 1 0
Ísland 21 3
Jórdanía 1 0
Lettland 1 0
Pólland 1 0
Sýrland 1 0
2022
Afganistan 1 0
Albanía 3 0
Ísland 15 3
Lettland 1 0
Palestína 1 0
Sómalía 1 0
Taíland 0 1
2023
Afganistan 1 0
Albanía 5 2
Eritrea 3 1
Georgía 9 0
Indland 1 0
Írak 2 0
Íran 1 0
Ísland 18 1
Litáen 6 0
Pólland 3 1
Slóvakía 1 0
Sómalía 3 0
Srí Lanka 1 0
Sýrland 1 0
Úkraína 1 0
2024
Afganistan 2 0
Albanía 23 0
Kongó 1 0
Eritrea 1 0
Eþíópía 1 0
Frakkland 1 0
Georgía 5 0
Gínea 1 0
Írak 3 0
Íran 4 0
Ísland 31 2
Kína 1 0
Litáen 1 0
Mjanmar 1 0
Nígería 3 0
Pakistan 2 0
Pólland 10 0
Rúanda 0 1
Rúmenía 1 0
Sómalía 2 0
Súdan 1 0
Tyrkland 1 0
2025
Afganistan 1 0
Albanía 11 0
Egyptaland 1 0
Georgía 6 0
Írak 2 0
Íran 2 0
Ísland 24 5
Kólumbía 1 0
Lettland 1 0
Litáen 10 0
Marokkó 1 0
Nígería 1 0
Palestína 1 0
Pólland 7 0
Sómalía 1 0
Úkraína 1 0
Samtals 308 22