Ferill 710. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1537 — 710. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Örnu Láru Jónsdóttur um staðsetningu starfa hjá ríkinu.
1. Hver hefur þróun fjölda starfa hjá ríkinu verið frá árinu 2016, sundurliðað eftir árum, ráðuneytum og ríkisstofnunum?
Í eftirfarandi töflu er sýndur fjöldi stöðugilda eftir ríkisaðilum (stofnunum) og verkefnum frá árinu 2016 til 2025. Í ljósi þess að málefni hafa færst milli ráðuneyta á tímabilinu eru upplýsingar settar fram í stafrófsröð. Í töflu 1 er sýnt hvernig ríkisaðilar og verkefni hafa orðið til við samruna á tímabilinu. Í þeim tilvikum hefur samtala umræddra ríkisaðila og verkefna verið notuð.
Í viðauka er að finna töflur með upplýsingum um fjölda stöðugilda sundurliðað eftir ráðuneytum, stofnunum og árum. Allar tölur koma úr launakerfi ríkisins.
Tafla 1. Ríkisaðilar og verkefni – fjöldi stöðugilda 2016–2025.
Í töflunni er sýndur samruni þar sem við á.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hversu mörg ný stöðugildi og störf hafa orðið til hjá ríkinu á fyrrgreindu tímabili og hvernig skiptast þau milli stjórnunarstarfa, sérfræðistarfa og almennra starfa? Svar við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar óskast sundurliðað eftir:
a. Landshlutum þar sem höfuðborgarsvæðið er sérstakur landshluti.
b. Sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
c. Landinu öllu án áhrifasvæðis höfuðborgarinnar (svæðið frá Hvítá í Borgarfirði í vestri að Hvítá í Árnessýslu í austri).
Til að sjá hversu mörg ný stöðugildi og störf hafa orðið til hjá ríkinu á umræddu tímabili og hvernig þau skiptast í stjórnunarstörf, sérfræðistörf og almenn störf, sundurliðað eftir landshlutum og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, voru skoðaðar tölur um heildarfjölda stöðugilda í launakerfi ríkisins. Eftir hreinsun gagna (ekki hafa öll stöðugildi skráð póstnúmer eða skráða ISTARF-flokkun) byggjast myndir að aftan á 95% allra stöðugilda hjá ríkinu á tímabilinu. Í viðauka er að finna töflur með sundurliðun.
Eftirfarandi flokkun var gerð á ISTARF: Stjórnunarstörf eru flokkur 1 (störf kjörinna fulltrúa, æðstu embættismanna og stjórnenda). Sérfræðistörf eru flokkur 2 (sérfræðistörf). Almenn störf eru allir hinir flokkarnir: 3 (tæknar og sérmenntað starfsfólk), 4 (skrifstofufólk), 5 (þjónustu-, umönnunar- og sölustörf), 6 (störf bænda og fiskimanna), 7 (störf iðnaðarmanna og sérhæfðs iðnverkafólks), 8 (störf véla- og vélgæslufólks) og 9 (ósérhæfð störf).
Mynd 1. Breyting á fjölda stöðugilda frá 2016–2025 eftir tegund starfa og landshlutum.
Stöðugildi eftir landshlutum og tegund starfa þar sem höfuðborgarsvæðið er sérstakur landshluti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á mynd 1 er sýnd breyting á fjölda stöðugilda á tímabilinu 2016–2025 þar sem störf eru flokkuð í stjórnunarstörf, sérfræðistörf og almenn störf eftir landshlutum. Samkvæmt því sem fram kemur á myndinni fækkaði stjórnunarstörfum á Austurlandi um 7% á tímabilinu, sérfræðistörfum á Austurlandi fjölgaði um 23% og almennum störfum fjölgaði um 8%. Um sundurliðun vísast til viðauka.
Mynd 3. Breyting á fjölda stöðugilda frá 2016–2025 eftir staðsetningu utan eða innan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar og tegundum starfa.
Stöðugildi á landinu öllu án áhrifasvæðis höfuðborgarinnar (svæðið frá Hvítá í Borgarfirði í vestri að Hvítá í Árnessýslu í austri).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á mynd 3 er sýndur fjöldi stöðugilda frá 2016 til 2025 þar sem búið er að flokka störf í stjórnunarstörf, sérfræðistörf og almenn störf. Brotnar línur sýna fjölda stöðugilda sem eru staðsett utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar en heilar línur sýna stöðugildi sem eru staðsett innan áhrifasvæðisins.
Hér hafa störf verið flokkuð eftir póstnúmerum. Þau póstnúmer sem tilheyra t.d. Borgarnesi og Selfossi hafa verið flokkuð utan áhrifasvæðis. Þó ber að hafa í huga að t.d. Landbúnaðarháskólinn flokkast utan áhrifasvæðis þó að hann sé sannarlega austan megin við Hvítá í Borgarnesi þar sem póstnúmerið tilheyrir Borgarnesi. Um sundurliðun upplýsinga vísast til töflu í fylgiskjali.
Á mynd 3 sést að almennum störfum innan áhrifasvæðis hefur fækkað um 6,5% á tímabilinu en almennum störfum utan áhrifasvæðis hefur fjölgað um 9,1%. Sérfræðistörfum innan áhrifasvæðis hefur fjölgað um 5,8% en sérfræðistörfum utan áhrifasvæðis hefur fjölgað um 22,2%. Stjórnunarstörfum innan áhrifasvæðis hefur fækkað um 27,7% og sérfræðistörfum utan áhrifasvæðis hefur fækkað um 10,7%.
3. Hefur ráðherra íhugað að leggja fram frumvarp til laga sem kveður á um að binda störf hjá ríkinu ákveðnum landshlutum með því að skilyrða störfin við tiltekna staðsetningu? Í því samhengi er átt við störf sem krefjast staðbundinnar viðveru á vinnustað.
Engar slíkar hugmyndir hafa verið til skoðunar af hálfu ráðuneytisins eða stofnana sem undir það heyra.
4. Hefur verið skoðað að setja mælikvarða um fjölda starfa eftir landshlutum og meðallaunum inn í ársskýrslur opinberra stofnana og ráðuneyta?
Engar slíkar hugmyndir hafa verið til skoðunar af hálfu ráðuneytisins eða stofnana sem undir það heyra.
5. Kemur til greina af hálfu ráðherra að leggja til með frumvarpi til laga hámark á stöðugildi ákveðinna landshluta? Til dæmis höfuðborgarsvæðið?
Engar slíkar hugmyndir hafa verið til skoðunar. Markmiðið er að veita góða, nútímalega og sveigjanlega þjónustu um allt land og halda kostnaði í skefjum. Vandséð er að lög um hámark eða lágmark stöðugilda á einstökum landsvæðum samræmist þeim markmiðum.
6. Hvernig telur ráðherra, með tilliti til stefnumótunar í mannauðsmálum ríkisins, að gengið hafi að fylgja eftir markmiðinu um óstaðbundin störf sem sett var í lið B.7 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036.
Verkefni um óstaðbundin störf heyrir undir innviðaráðuneyti samkvæmt því sem fram kemur í byggðaáætlun.
Fylgiskjal I.
Að aftan eru viðaukar við svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar til skýringar á fjölda stöðugilda eftir ráðuneytum. Ekki hefur verið tekið tillit til samruna.
Tafla V.1. Forsætisráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.2. Dómsmálaráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.3. Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.4. Heilbrigðisráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.5. Félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.6. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.7. Innviðaráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.8. Matvælaráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.9. Menningar- og viðskiptaráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.10. Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.11. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla V.12. Utanríkisráðuneyti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal II.
Tafla V.13 þar sem sýnd er breyting á fjölda stöðugilda á árunum 2016 til 2025 eftir landshlutum, tegundum starfa, ríkisaðilum og verkefnum.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1537-f_II.pdf
Fylgiskjal III.
Tafla V.14 þar sem sýnd er breyting á fjölda stöðugilda á árunum 2016 til 2025 eftir sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, tegundum starfa, ríkisaðilum og verkefnum.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1537-f_III.pdf
Fylgiskjal IV.
Tafla V.15 þar sem sýnd er breyting á fjölda stöðugilda á árunum 2016 til 2025 eftir því hvort þau eru innan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar eða utan sem og tegundum starfa, ríkisaðilum og verkefnum.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1537-f_IV.pdf